Fréttablaðið - 28.11.2006, Page 27
jólakort }
Gerð aðventukransa er orðinn
fastur liður í jólaundirbúningi
á flestum íslenskum heimilum.
Kransarnir hafa lengi tíðkast
á meginlandi Evrópu en hefðin
barst tiltölulega seint til Ís-
lands og festist ekki í sessi fyrr
en er líða tók á sjöunda áratug
síðustu aldar.
Aðventukransinn er upprunninn í
Þýskalandi þar sem lengi hefur
tíðkast að skreyta hús með grein-
um sígrænna trjáa fyrir jólin.
Kransinn er táknrænn að því leyti
að hið sígræna greni táknar lífið,
sem er í Kristi og hin logandi kerti
benda til komu Jesú Krists, hins
lifandi ljóss.
Um 1800 hafði hið hefðbundna
jólatré náð mikilli útbreiðslu og
snemma á 19. öld fór að sjást ný
tegund af jólatrjám í Þýskalandi,
en þau voru sett saman úr þremur
misstórum krönsum og hengd í
loftið. Ekki leið á löngu þangað til
hægt var að kaupa kransatrén á
jólamörkuðum víða um landið og
voru þau markaðssett sem jóla-
skraut sem ætti að setja upp tölu-
vert fyrr en hin hefðbundnu jóla-
tré. Fljótlega var því farið að
kenna kransana við aðventuna og
sett fjögur kerti í þá, eitt fyrir
hvern sunnudag jólaföstunnar.
Með tímanum urðu kransarnir að
borðskrauti og tók þessi siður að
breiðast út til nágrannalandanna
eftir það.
Kirkjan gerði siðinn einnig að
sínum og lagaði hann að kirkju-
árinu og táknkerfi kirkjunnar.
Guðspjöll aðventusunnudaganna
boða komu krists og logandi kertin
tákna aðdragandann að henni.
Fyrsta kertið heitir spádóms-
kerti og táknar það fyrirheit spá-
mannanna um komu frelsarans.
Annað kertið heitir Betlehems-
kerti og er nefnt eftir fæðingar-
bæ Jesú.
Þriðja kertið heitir hirðakerti
og er nefnt eftir hirðingjunum
sem fyrstir fengu fregnir um fæð-
ingu frelsarans.
Fjórða kertið heitir englakerti
og er nefnt eftir englunum sem
fluttu fréttina um fæðingu frels-
arans.
Aðventukransar bárust ekki til
Íslands fyrr en eftir síðari heims-
styrjöldina og sáust þeir fyrst
sem skraut í einstaka búðarglugg-
um og á veitingastöðum.
Útbreiðsla kransanna hér á landi
var frekar hæg til að byrja með
en á sjöunda áratugnum voru þeir
orðnir algeng söluvara um allt
land. Á sama tíma varð einnig
algengt að fólk gerði sína eigin
aðventukransa og fljótt var það
orðinn sjálfsagður hluti jólaundir-
búningsins. Í dag eru aðventu-
kransar mjög vinsælt skraut á
íslenskum heimilum.
Hvert kerti hefur
sína merkingu
Nýbýlavegi 12
Sími 554 3533
Opið virka daga 10-18 Laugardaga 10-16
g æ ð i o g g l æ s i l e i k i
Stærðir 36 - 48
Flottar
peysur
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is