Fréttablaðið - 28.11.2006, Side 30

Fréttablaðið - 28.11.2006, Side 30
Þunglyndi og depurð af völd- um skammdegis er í hugum margra goðsögn ein á meðan ástandið er mjög raunverulegt fyrir aðra. Dagsbirtulampar hafa verið notaðir um árabil til að létta lund þeirra sem þjást í myrkrinu og í Vesturbæj- arlauginni logar nú dagsljós langt fram á kvöld. Gestir Vesturbæjarlaugarinnar geta nýtt sér dagsbirtulampa um leið og þeir skella sér í sund. Lamp- arnir eru liður í verkefninu Reykjavik spa city og hefur mælst mjög vel fyrir meðal gesta. „Verkefnið er ætlað að stuðla að fjölnýtingu sundlauganna til að auka heilsubótartilboð. Við feng- um lampana í fyrrahaust og erum eina laugin sem er með þá í borg- inni,“ segir Guðrún Arna Gylfa- dóttir, framkvæmdastjóri Vestur- bæjarlaugar. Á dimmum vetrarmorgnum getur verið erfitt að koma sér af stað út í daginn, svo góður skammt- ur af ljósi getur verið ágætis orku- gjafi fyrir daginn. Talið er að um tæp fjögur prósent Íslendinga þjá- ist af árstíðabundnu þunglyndi einhvern tíma á ævinni þar sem einkennin eru meðal annars dep- urð, kvíði, orkuleysi og síþreyta. Tímabilið getur varað frá hausti til vors og er skortur á dagsljósi nefnt sem ein af helstu ástæðunum. „Lamparnir voru settir upp hjá okkur í október og eru í gangi fram á vor,“ segir Guðrún Arna. Gest- irnir eru á öllum aldri og Guðrún segir góða aðsókn í lampana, sér- staklega á kvöldin. „Það er mælst til þess að fólk sitji í lömp- um hálf- tíma í senn,“ segir Guðrún. Á hálftíma gefur lamp- inn frá sér birtu sem sam- svarar sex tímum í sólarljósi. „Þetta eru ekki útfjólubláir geislar svo maður verður ekki brúnn. Þess utan hitna þeir ekki og eru algjör- lega hættulausir,“ segir Guðrún. Nýlegar rannsóknir sýna einnig að lamparnir geti bætt svefntrufl- anir, síþreytu, fyrirtíðaspennu og flugþreytu en séu þó engin töfra- lausn. „Það er mikilvægt að fólk leiti læknis ef það finnur fyrir alvarlegri vanlíðan. Lamparnir eru bara viðbót við dagsljósið og ef þeir eru notaðir markvisst gegn þunglyndi verður það að gerast í samráði við lækni,“ segir Guðrún Arna. Einar Magnússon, verslunar- stjóri Pfaff Borgarljósa, er með litla dagsljósalampa sem henta vel á skrifborð. Einar segir marga kennara nota lampana fyrir þreytta nemendur og nefnir nem- endur með lesblindu. Lamparnir eru af öllum stærðum og gerðum bæði stórir skermir og skrifstofu- lampar í alls kyns hönnun. Mikil- vægt er að lesa leiðbeiningar vel sem fylgja lömpunum og fá ráð frá starfsfólki verslana. Starfsfólk Vesturbæjarlaugar gefur upplýs- ingar um lampana sem eru í laug- inni. Afgreiðslutími Vesturbæjar- laugar er: virka daga frá 6.30-22.00 og um helgar frá kl. 8.00-20.00. Nánari upplýsingar: Vesturbæjar- laug sími 5515004, www.itr.is Upplýsingar um skammdegis- þunglyndi og dagsbirtulampa: www.dagsbirta.com Pfaff Borgarljós bjóða dags- birtulampa sem hafa gefið góða raun: www.pfaff.is Lampar sem fá dimmu í dagsljós breytt www.svefn.is Hreinsar loftið Eyðir lykt Drepur bakteríur ECC Bolholti 4 Sími 511 1001 - kvef - ofnæmi - eyrnabólga - ennis og kinnholusýking Fæst í apótekum Ég nota Sterimar, það hjálpar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.