Fréttablaðið - 04.12.2006, Qupperneq 12
12 4. desember 2006 MÁNUDAGUR
jólapakkinn!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/D
A
S
3
51
38
1
1/
06
Aðrir möguleikar á aðalvinningum í desember:
14. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
21. des. er 3 millj. eða 6 millj. á tvöfaldan
29. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
Það er því til mikils að vinna
fyrir aðeins þúsund krónur.
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
Kauptu miða í DAS, á þúsund kall, fyrir 7. des.
Þú gætir þú unnið harðasta jólapakkann í ár.
Hummer H3
+ 5 milljónir
í skottinu
ef þú átt
tvöfaldan
miða!
Harðasti
MeNNiNG Landsbankinn hefur
ákveðið að styrkja útgáfu Lær-
dómsrita Hins íslenska bókmennta-
félags til næstu þriggja ára. Þetta
er í tilefni af 190 ára afmæli Hins
íslenska bókmenntafélags á þessu
ári en Landsbankinn fagnar einnig
120 árum á þessu ári. Styrkurinn
nemur 1,5 milljónum króna á ári
hverju næstu þrjú ár.
„Bókmenntafélagið áformar
útgáfu þriggja til fimm Lærdóms-
rita á ári hverju næstu árin.
Rausnarlegur fjárstuðningur
Landsbankans næstu þrjú ár mun
auðvelda framkvæmd þessarar
útgáfuáætlunar og er því afar
kærkomin,“ segir Sigurður Lín-
dal, forseti Hins íslenska bók-
menntafélags.
Bókmenntafélagið hóf útgáfu
Lærdómsritanna árið 1970 og hafa í
þessari ritröð birst öndvegisrit á
sviði margvíslegra fræða sem hafa
markað spor í sögu mannsandans.
Með útgáfu ritanna vill Bókmennta-
félagið leggja sitt af mörkum til að
tengja Íslendinga við hið besta í
menntun og vísindalegri hugsun í
veröldinni. Lærdómsritin verða
orðin 65 talsins á þessu ári og þar af
hafa fimm komið í tveimur bindum.
„Bókmenntafélagið kann Lands-
bankanum bestu þakkir fyrir veitt-
an stuðning,“ segir Sigurður Líndal.
- áp
Landsbankinn styrkir útgáfu Lærdómsrita Hins íslenska bókmenntafélags:
Gefur 1,5 milljónir króna á ári
SamStarfið innSiglað Halldór J.
Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans,
Björgólfur Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, Sigurður
Líndal, forseti Bókmenntafélagsins og
Jón Sigurðsson stjórnarmaður voru kátir
við undirskrift samningsins.
skipUlAGsMÁl Lyubomyra Petruk
sem býr á Urðarstíg í Reykjavík
vill reka eldhús til framleiðslu á
tilbúnum mat á Bergstaðastræti
14. Þaðan yrði maturinn fluttur
einu sinni á dag. Í húsnæðinu yrði
sömuleiðis lítil verslun þar sem
boðið væri upp á austur-evrópskan
mat og netkaffi fyrir um fimm
gesti þar sem áður var bakarí í
kjallara hússins.
Skipulagsráð Reykjavíkur
gerir ekki athugasemdir við að
Lyubomyra sæki um byggingar-
leyfi til að koma þessu í kring en
bendir henni á að hún þurfi
samþykki meðeigenda fyrir þeim
breytingum sem gera þurfi. - gar
Nýjung á Bergstaðastræti:
Vill selja mat og
reka netkaffi
Enn í fullu fjöri Boris Jeltsín, fyrr-
verandi forseti Rússlands, brá sér í gær
á völlinn og fylgdist með viðureign
Rússa nokkurs og Argentínumanns í
tennis. Eins og sjá má á myndinni hélt
Jeltsín ákaft með sínum manni.
fRéttABLAðið/AP
kíNA Valgerður Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra tók í gærmorgun
formlega í notkun fyrsta áfanga
íslenskar hitaveitu í borginni Xian
Yang í Kína að viðstöddu fjöl-
menni. Miklar vonir eru bundnar
við hitaveituna og er stefnt að því
að hún verði sú stærsta í heimi.
Uppbygging hitaveitunnar er sam-
starfsverkefni Shaanxi Geothermal
Energy og ENEX Kína, en að því
standa Orkuveita Reykjavíkur,
Glitnir og ENEX, sem er útflutn-
ingsvettvangur íslenskra þekkingar-
fyrirtækja í orkuvinnslu. Fulltrúar
íslenskra orkufyrirtækja voru
viðstaddir athöfnina ásamt kín-
verskum fyrirmennum.
Fyrsti áfanginn kostaði rúmar
200 milljónir króna. Sá næsti, sem
verður ráðist í á komandi ári, er
margfalt stærri og metinn á um
4,2 milljarða króna. Xian Yang er
fimm milljón manna borg sem
hefur verið nefnd opinberlega
„jarðhitaborg Kína“. Hitaveitan
sem gangsett var í gær er fyrir
þrjá háskóla og hitar upp um 170
þúsund fermetra, sem áður voru
hitaðir með kolum. Á næstu tíu
árum eru áform um að kynda að
minnsta kosti helming nýbygg-
inga borgarinnar með jarðhita,
sem eru um fimmtán milljónir
fermetra, eða húsnæði fyrir um
hálfrar milljónar manna byggð.
„Ég er ákaflega stolt að verða
vitni að því að íslensk þekking og
reynsla verður til þess að bæta
lífsgæði fólks í Kína og um leið að
draga úr brennslu kola í heimin-
um,“ segir Valgerður Sverrisdótt-
ir. „Ég verð auðmjúk frammi
fyrir þeirri staðreynd að þróun
vistvænnar og endurnýjanlegrar
orku til húshitunar í Kína getur
haft í för með sér miklar breyt-
ingar á orkustefnu Kína og jafn-
vel veraldarinnar allrar.“
stigur@frettabladid.is
Íslensk hita-
veita í Kína
Valgerður Sverrisdóttir tók í gær í notkun fyrsta
áfanga íslenskrar jarðhitaveitu í Kína. Stefnt er að því
að hún verði sú stærsta sinnar tegundar í heimi. Jarð-
varmaorkan leysir mengandi kolabrennslu af hólmi.
unnið að frágangi hitavEitunnar fyrsti áfangi íslenskrar jarðhitaveitu í Kína er í
höfn og gangsetti Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra veituna í gær.
loNDoN Það andar
köldu milli rúss-
neskra og breskra
stjórnvalda í kjöl-
far opinberrar
birtingar á bréfi
njósnarans, Alex-
anders Litvinenk-
os. Bréfið skrifaði
Litvinenko á bana-
beði sínu en í því
sakar hann Vladimír Pútín, forseta
Rússlands, meðal annars um að
hafa ráðið sér bana.
Rússar eru sagðir reiðir Bret-
um fyrir að hafa ekki hindrað birt-
ingu bréfsins.
Talsmaður breskra yfirvalda
bendir hins vegar á að þar sem
Litvinenko hafi verið undir eftir-
liti lögreglu en ekki í haldi hennar
hafi ekki verið hægt að hindra
ritun bréfsins né opinbera birt-
ingu þess. - rve
Bréf KGB njósnara veldur usla:
Rússar reiðir Bretum
vegna bréfs Litvinenkos
vladimír Pútín