Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 14
 4. desember 2006 MÁNUDAGUR „Það hefur orðið gjörbylting og textarnir eru allt öðruvísi en við eigum að venjast.“ Guðmundur B. Kristmundsson dósent við KHÍ VísiNDi Mun meiri munur er á genasamsetningu mannfólksins en áður var talið, kemur fram í nýrri breskri rannsókn sem fjall- að er um á fréttavef breska ríkis- útvarpsins, BBC. Vísindamennirnir rannsökuðu genasamsetningu 270 manna og uppgötvuðu að stór hluti genanna getur verið til staðar í fleiri en tveimur afritum, eða vantað algjör- lega. Til þessa hefur verið talið að hvert gen væri jafnan í tvíriti, þar sem annað eintakið kæmi frá móður en hitt frá föður. Hingað til hafa vísindamenn einnig talið að DNA eins tiltekins einstaklings væri 99,9 prósent eins og upplag þess næsta, en nú virðist sem breytileikinn sé mun meiri. „Það sem kom okkur einna mest á óvart var hversu breytilegt DNA-ið okkar er í afritafjölda. Við teljum þetta vera minnst tólf pró- sent af erfðamenginu. Breytileik- inn í afritafjöldanum sem vísinda- menn hafa séð áður var einfaldlega bara efsti toppurinn á ísjakanum á meðan meginhlutinn lá og maraði í kafi, óséður,“ sagði Matthew Hurles, vísindamaðurinn sem leiddi rannsóknina. Sum þessara nýuppgötvuðu frávika eru í þeim hluta erfða- mengisins sem hafa áhrif á heilsu okkar, að sögn Hurles, og munu niðurstöður rannsóknarinnar þess vegna breyta því hvernig vísinda- menn leita að genum sem tengjast sjúkdómum. - smk Ný bresk rannsókn á genum mannfólksins: Mikill munur á samsetningu Gen nýjar breskar rannsóknir benda til þess að genamunur manna sé mun meiri en áður var talið. MeNNtAMÁl Margir fullorðnir telja að þeir geti bætt lestrar- og rit- færni sína og hafa skoðun á því hvernig að því mætti standa. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn þar sem lestrarpróf var lagt fyrir rúmlega þrjú hundruð þátttakend- ur víðs vegar í atvinnulífinu og tekið viðtal við þá. Hópurinn endurspeglaði menntunarstig þjóðarinnar. Guðmundur B. Kristmundsson, dósent við Kennaraháskóla Íslands, stóð að rannsókninni ásamt Elísa- betu Arnardóttur talmeinafræð- ingi. Guðmundur segir að góðir lesarar vilji auka lestrarhraða en slakari lesarar bæta lesskilning. „Það er spurning hvort þeir sem lesa minna og hafa meira fyrir því nýti lesturinn ekki jafn vel og hinir. Þeir vilja kannski ná meira út úr textanum frekar en að auka lestrarhraða. Margir vilja takast á við margs konar texta og svolítið er um að menn vilji læra að skrifa bréf,“ segir hann. Guðmundur segir að „svolítið af fólki“ vilji „læra að semja sögur og ljóð. Það eru ótrúlega margir sem halda dagbók og þar eru konur í meirihluta. Nokkrir vilja nýta lesturinn til að hjálpa börn- um við heimanámið og hjá þeim slakari í hópnum er áberandi að þeir vilja læra að lesa upphátt.“ Talsverður munur er á lestrar- og ritvenjum karla og kvenna. Guðmundur segir að konur fari mun meira á bókasafn og hjálpi börnunum við heimanám. Aldur skiptir máli þegar lestrar- og rit- venjur eru skoðaðar og lestrar- færni er tengd aldri. Fleiri í elsta hópnum eru hæglæsir og hafa ekki sömu tök á lestri og yngra fólkið. „Það er merkilegt hve ríkt er í fólki að skrifa og hvað margir, um níutíu prósent svarenda, telja sig geta skrifað minningargrein. Það er ekki vísbending um þennan rit- ótta sem skólinn hefur verið sak- aður um,“ segir Guðmundur. „Sú þróun hefur átt sér stað á undanförnum árum að þjóðin er farin að skrifa og skrifar djöful- inn ráðalausan eins og sagt var í gamla daga. Hún skrifar og skrif- ar,“ segir Guðmundur og bendir á að gríðarlegur vöxtur hafi orðið í lestri og ritun á tölvu, með bloggi á netinu, tölvupósti og sms-i. „Það hefur orðið gjörbylting og textarnir eru allt öðruvísi en við eigum að venjast. Getum við ekki nýtt þessa hvatningu sem skapast af nýrri tækni og samskiptum og farið að vinna öðruvísi með mál og málhegðun í skólanum,“ spyr hann. ghs@frettabladid.is Margir vilja bæta lestrar- og ritfærni Talsverður munur er á lestrar- og ritvenjum karla og kvenna að því er fram kemur í nýrri rannsókn. Ekki gætir ritótta hjá þjóðinni þótt textinn sé annar en áður, nú á dögum skrifa menn blogg, tölvupóst og sms. eKKi vísBendinG um ritótta „Það er merkilegt hve ríkt er í fólki að skrifa og hvað margir, um níutíu prósent svarenda, telja sig geta skrifað minningargrein. Það er ekki vísbending um þann ritótta sem skólinn er sakaður um,“ segir Guðmundur B. Kristmundsson, dósent við Kennaraháskóla Íslands. Hann og elísabet Arnardóttir talmeinafræðingur stóðu að rannsókn á lestrar- og ritfærni Íslendinga. FréttABlAðið/Anton Þrjár máltíðir = 1075,- Veitingastaður IKEA Opnum kl. 9:00 mánudaga - laugardaga 195,- 2 rúnstykki, 1 egg, skinkusneið, ostsneið, smjör, sulta og heitur drykkur 290,- Grænmetisbuff m/kúskús, grænmeti og graslaukssósu 590,- Hangikjöt með kartöflum, uppstúf, rauðkáli og grænum baunum Þú átt allt gott skilið! kl. 9:00 - 11:00 Morgunverður Hádegisverður framreiddur allan daginn Kvöldverður framreiddur allan daginn fram að jólum BARNAVeRND Verið er að leggja lokahönd á að færa inn upplýsingar í umfangsmikinn gagnagrunn Barnahúss, að sögn Helgu Rúnu Péturs, sérfræðings hjá Barna- verndarstofu. Grunnurinn hefur að geyma allar þær upplýsingar sem aflað hefur verið um hvert mál fyrir sig sem borist hefur til Barnahúss frá stofnun þess 1998. Nú er verið að setja inn gögn fyrir þetta ár, en málin eru nú skráð í grunninn jafnóðum og þau berast. „Um er að ræða mjög nákvæm- ar upplýsingar, aldur, kyn og bak- grunnsupplýsingar þeirra barna sem koma hingað,“ segir Helga Rúna. „Einnig er skráð sú tegund ofbeldis sem barn lendir í, en ofbeldið er flokkað í þætti eftir alvarleikastigi. Þá er skráð inn það sem vitað er um gerendur. Loks fylgjumst við með ferli máls sé það kært og hvernig því lýkur.“ Helga Rúna segir fljótlegt að kalla allar þær upplýsingar úr grunninum sem óskað sé eftir hverju sinni. Þetta gagnist vel við gerð ársskýrslu þar sem leitast hafi verið við að gefa mynd af stöðu mála eftir hvert ár. Þá gagn- ist grunnurinn vel við stærri rann- sóknir á þessum málaflokki. - jss Öllum upplýsingum um mál sem hafa borist Barnahúsi safnað saman: Leggja lokahönd á gagnagrunn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.