Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 37

Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 37
MÁNUDAGUR 4. desember 2006 13 Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., formaður Húseigendafélagsins svarar spurningum um húseigendamál Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið huseigandi@frettabladid.is. að þessu sinni fjalla ég um þau tvö meginefni sem í fyrirsögninni greinir en nokkrar fyrirspurnir hafa borist um þessi atriði. A) VAnrækSlA á VerkSkyld- um – TrASSATollur á eigendum í fjöleignarhúsum hvíla margvíslegar skyldur. Þær geta t.d. bæði verið fjárhagslegar og verklegar. Það er alkunna að eigendur eru misglaðir og fúsir til sameiginlegra verka, t.d. umhirðu lóðar, þrifa á sameign o.þ.h. sumir eru algjörir trassar sem engu nenna og ekkert gera þannig að öll verk og vinna lendir á samviskusömum og ábyrgum sameigendum þeirra. slíkt ástand er óþolandi og því verða að vera tiltæk úrræði og verkfæri til að knýja slíka trassa og skussa til verka eða til að jafna reikningana. Húsfundur setur reglur en ekki stjórnin húsfélag getur innan vissra marka sett reglur og beitt úrræðum og viðurlögum gagnvart eigendum sem vanrækja þær verkskyldur, sem á þeim hvíla. slíkar reglur geta verið í húsfélagssamþykktum, almennum húsreglum, sérstökum reglum eða í fundarsamþykkt. stjórn húsfélags er ekki bær til að setja slíkar reglur. Það er húsfundar að gera það. verður að gæta þess að rétt sé staðið að boðun fundar og að hann sé haldinn í samræmi við fyrirmæli fjöleignarhúsalaga. Það er mjög brýnt að standa rétt að samningu og samþykkt slíkra reglna. annars geta þær fallið um sjálfar sig og verið metnar gildis- lausar og þá er verr af stað farið en heima setið. Trassatollur húsfélag getur þannig sett reglur um að verk skuli unnið á kostnað þess sem ekki efnir sína skyldu. einnig má ákveða viðurlög þannig að eiganda sé gert að greiða ákveðna fjárhæð til húsfélagsins ef hann svíkst um skyldu sína. slík viðurlög geta verið nauðsynleg og eðlileg en þau verða að vera í eðlilegu samhengi við vanræksl- una og vinnusvikin og gæta verður jafnræðis við beitingu slíkra reglna. Fjárhæðir verða að vera í hófi og mega ekki fara fram úr kostnaðinum við að vinna verkið. Aldraðir og öryrkjar: sem fæstar verkskyldur Það er líka annað til í þessu efni. eigendum í fjöleignarhúsum er mörgum ófært að standa undir verkskyldum sínum og vilja því frekar greiða. má þar nefna aldraða og öryrkja. sennilega er skynsamlegast að hafa verkskyldurnar sem fæstar og minnst íþyngjandi og breyta þeim í peningaskyldur þar sem því verður viðkomið þannig að keypt verði þjónusta í stað þess að reyna að tosa eigendur til verka sem þeir hafa annaðhvort ekki nennu eða getu til. B) GreiðSluSkyldA þóTT HAGnýTinG Sé enGin Fyrirspurnir hafa borist um synjun eigenda á að taka þátt í sameigin- legum kostnaði með þeim rökum að hann noti viðkomandi sameign ekki neitt. svo sem þegar um sameiginlegt þvottahús er að ræða og eigandi er með þvottavél í íbúð sinni og notar ekki sameiginlegt þvottahús og vill því ekki taka þátt í kostnaði vegna þess og sameigin- legra tækja. einnig þegar eigandi sem býr ekki í íbúð sinni sem stendur auð um lengri tíma neitar að taka þátt í rekstrarkostnaði sameignarinnar. afnotarétturinn skapar greiðslu- skyldu þótt afnot séu engin. hér er það afnotarétturinn og afnotamöguleikinn sem skiptir máli og ræður um greiðsluskylduna. Þótt íbúðareigandi nýti ekki sam- eignina eða sameiginlegan búnað í bráð eða lengd, þá er meginreglan sú að hann er engu að síður skuld- bundinn til að greiða hlutdeild í kostnaði vegna þeirra. þvottahús Íbúðareiganda sem kýs að hafa þvottavél í íbúð sinni og að nota sameiginlegt þvottahús og þvotta- vél ekki, ber að taka þátt í hvers kyns kostnaði við sameiginlegt þvottahús og tæki þess og búnað, þ.e. vegna viðhalds, reksturs og tækjakaupa. Þetta gildir eins og endranær með þeim fyrirvara að ákvörðun sem hefur útgjöld í för með sér sé löglega tekin. ekki búið í íbúð sama er að segja ef íbúðareigandi lætur íbúð sína standa auða og ónotaða í lengri eða skemmri tíma. Það tjóar ekki fyrir hann að neita að taka þátt í sameiginlegum rekstr- ar- og viðhaldskostnaði sameignar- innar þótt hann geti sýnt fram á að hann hafi ekki haft nein afnot eða gagn af henni. hann verður allt að einu að axla allar skyldur gagnvart húsfélaginu og öðrum eigendum, bæði skyldu til greiðslu hlutdeildar í sameiginlegum kostnaði og eins líka verkskyldur, t.d. sameignarþrif og umhirðu lóðar. leiktæki, hjóla- og vagna- geymslur Fleiri dæmi má nefna um að það er hagnýtingarrétturinn og notkunarmöguleikinn en ekki raunveruleg not og hagnýting í bráð, sem ræður greiðsluskyldunni. Barnlaus íbúðareigandi verður að taka þátt í kostnaði við endurnýjun, viðhald og rekstur, á sameiginlegum leiktækjum á lóðinni. Kostnaður við hjóla- og vagnageymslur er sameigin- legur kostnaður allra, líka þeirra sem aldrei nota þær. loftnet – Bílleysingjar sama gildir um sameiginleg útvarps- og sjónvarpsloftnet og búnað, magnara og þess háttar. allir íbúðareigendur verða að taka þátt í kostnaði við þannig búnað, líka þeir sem eiga hvorki útvarp né sjónvarp og ætla aldrei að ánetjast slíku. sá sem engan á bílinn og fær aldrei akandi gesti verður eins og hinir að taka þátt í kostnaði við standsetn- ingu, viðhald og rekstur á sameigin- legu bílastæði og aðkeyrslum. lyftan og galvaskur eigandi ef galvaskur íbúðareigandi ákveður einn góðan veðurdag að nú sé tímabært að stunda holla hreyf- ingu og að framvegis muni hvorki hann né neinn á hans vegum nota lyftuna, heldur hlaupa allra sinna ferða, þá væri það vísast gott mál fyrir hann sjálfan en það myndi ekki leysa hann undan þeirri kvöð að taka þátt í öllum kostnaði við árans lyftuna. ATHuGASemdir: Fréttablaðinu hafa borist það margar fyrirspurnir að því verður ekki við komið að svara þeim öllum beint og sérstaklega. hefur sú leið verið valin að flokka þær eftir lagasviðum og lagaatriðum er þær lúta að og fjalla um þau efni og lagaatriði sem mest er spurt um. Það er gert með almennum hætti í greinaformi án þess að einstakar fyrirspurnir séu tilgreindar og birtar. með því má slá margar flugur í einu höggi, þ.e. svara mörgum fyrirspurnum með einni grein. Það gengur fyrir að fjalla um mikilvæg efni sem snerta margra og hafa almennt gildi eða almenna þýðingu. reynt er að fjalla um efni sem fyrir- spurnir lúta að í tímaröð þegar því verður viðkomið, t.d. þegar upp koma brýnni og almennt áhugaverðari mál. sumar fyrir- spurnir eru svo þröngar, sértækar að þær verða að mæta afgangi. Trassatollur – Greiðsluskylda húseigendaFélagið var stoFnað 1923 og er starFsemi Þess tvÍÞætt: 1) almenn hagsmunagæsla fyrir fasteignaeigend- ur, t.d árangursrík barátta fyrir réttarbótum (lög um fjöleignarhús, húsaleigu, fasteignakaup og fasteigna- sölu). 2) lögfræðiþjónusta fyrir félagsmenn (sérfróðir lögfræðingar). Félagsmenn eru einstaklingar, fyrirtæki og húsfé- lög, sem njóta sérkjara við inngöngu. Félagið er sjálfstætt og óháð og nýtur engra styrkja. Það býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á þeim lagasviðum sem snerta fasteignir og eigendur þeirra. Félagsgjaldi er í hóf stillt og sömuleiðis endurgjaldi fyrir lögfræðiþjónustuna. skrifstofa félagsins er að síðumúla 29, reykjavík, sími 588 9567, netfang postur@huseigendafelagid.is heimasíða félagsins: www.huseigendafelagid.is FASTEIGNASALAN 570 4800 Fr u m Grensásvegi 13, 2. hæð - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 Árni Stefánsson, lögg. fasteignasali RAÐ- OG PARHÚS UNUFELL - Raðh. m/ bílskúr. Mjög gott og vel staðsett 126 fm raðhús á einni hæð, ásamt 22 fm sérstæðum bíl- skúr, samtals 148 fm. Húsið skiptist í for- stofu, fjögur herbergi, eldhús, þvotta- herb., gott baðherbergi, stofu og borð- stofu. Útg, úr stofu á timburverönd. Gólf- efni er parket, dúkur og flísar. Stutt er í alla þjónustu. Verð 29,9 millj. 5 HERB. OG STÆRRI FÍFUSEL MEÐ AUKAHERB OG BÍLSKÝLI Vorum að fá í sölu fallega og mikið end- urnýjaða 142 fm (íbúð 116 og bílskýlið 26) á 1. hæð í fallegu fjölbýli. Nýl. innrétting- ar og gólfefni. Þrjú stór herb. (geta verið 4) og stór og björt stofa og borðstofa með útg. á suðursvalir. Sameign falleg. 26 fm stæði í bílskýli. LAUS FYRIR JÓL. Verð 22,2 millj. 4RA HERBERGJA UNUFELL - FALLEG Vorum að fá í sölu fallega 97 fm 4ra herb. íbúð á 4. hæð auk yfirbyggðra svala. Þrjú svefnherbergi og stór og björt stofa með útg. á stórar yfirb. vest- ursvalir. Nýl. innréttingar í eldhúsi. Park- et og flísar á gólfum. Falleg sameign. Hús nýl. klætt að utan. Verð 16,9 millj. 3JA HERB. AUSTURBERG - BÍLSKÚR Vorum að fá 3ja herbergja 80 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli ásamt 18 fm bílskúr. Stutt er í alla þjónustu s.s. Fjölbrautarskólann, skóla, sundlaug og verslanir. Íbúðin getur verið laus strax. Verð 16,5 millj. 2JA HERB. FÍFUSEL - Tvær íbúðir Vorum að fá í sölu 87 fm ósamþykkar íbúðir í kjallara/jarðhæð sem hefur verið skipt í 2 íbúðir þ.e. eina einstaklingsíbúð og aðra 2ja herbergja íbúð. Góðir útleig- umöguleikar. Nánari uppl. á skrifstofu Gimli. Verð 13,8 millj. ÍRABAKKI MEÐ AUKAHER- BERGI Falleg 87 fm 4 herb. íbúð á 2. hæð i auk 13,6 fm aukaherbergis í kjallara (með aðgengi að wc.) í góðu fjölbýl. 4 rúmgóð herbergi og stór og björt stofa með útg. á vestursvalir. Baðherb. nýl. endurnýjað, fallegar innréttingar. Góð sameign. Verð 17,9 millj. MARÍUBAKKI - LAUS STRAX Mjög góð 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð (efstu) í fjölbýlishúsi. Ný innrétt- ing í eldhúsi, 3 svefnherbergi. Húsið var allt tekið í gegn sumarið 2005. ÁHV. 12,5 M. M/ 4,2 % VÖXTUM, GR.BYRÐI UM 53 ÞÚS . PR MÁN. Verð 18,7 m. ENGJASEL - Bílskýli Vorum að fá í sölu fallega 109 fm endaí- búð á þriðju hæð ásamt stæði í bíla- geymslu á góðum stað í Seljahverfi. Þrjú góð herbergi, rúmgott eldhús, baðher- bergi með innréttingu og t. fyrir þvotta- vél og stór og björt stofa með útg. út á suður svalir með frábæru útsýni. Sér merkt stæði í bílageymslu fylgir. Góð eign á vinsælum stað. Verð 20.8 millj. SUÐURHÓLAR MEÐ SÉR VERÖND Vorum að fá í sölu fallega 105 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð (Jarðhæð) með sér suðurverönd. Þrjú rúmgóð herbergi. Fallegar innréttingar. Stór og björt stofa með útgengt á stóra hellulagða suður- verönd. Parket og flísar á gólfum. Laus fljótlega. Verð 18,5 millj.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.