Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 68

Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 68
 4. desember 2006 MÁNUDAGUR36 Tómas R. Einarsson hafði dreymt um að koma til Kúbu frá því hann var í menntaskóla og las mál- gagn byltingarmanna frá eyjunni spjaldanna á milli. Fyrir sex árum lét Tómas drauminn rætast og hefur varla vaknað af þeim væra blundi. Hann er nýkominn frá Kúbu. Nýlega kom út geisladiskurinn Romm Tomm Tomm þar sem Tómas blandar saman íslenskum og kúbverskum tónlistarmönnum, svo vel að margir eiga erfitt með að greina þeirra á milli. „Þeir á Kúbu eru mjög hrifnir af geisla- diskinum þó ég segi sjálfur frá og hafa boðið mér á djasshátíð í Hav- ana,“ segir Tómas sem enn er að bræða það með sér hvort hann eigi að láta slag standa. „Þetta yrði heljarinnar verkefni en óneitan- lega mjög spennandi,“ útskýrir kontrabassaleikarinn. Vildi víkka út sjóndeildarhringinn Tómas fékk snemma áhuga á Suður-Ameríku og þá aðallega á hinu pólitíska landslagi. Þegar tónlistarmaðurinn skreið yfir tví- tugt ákvað hann að ferðast um álf- una en komst ekki til Kúbu, ferða- lagið þangað hefði verið of dýrt og lítið var um að erlendir ferðamenn færu þangað yfir. Hann viður- kennir hins vegar að eyjan í Karíbahafinu hafa alltaf togað í sig en það var ekki fyrr en rúmum tveimur áratugum seinna sem tón- listin teymdi hann þangað. „Ég hafði verið að spila djasstónlist í einn og hálfan áratug og var far- inn að kunna hana ágætlega. Ég var því farinn að leita að einhverju til að víkka út sjóndeildarhringinn og kolféll fyrir latin-tónlist, ekki síst vegna þess hvernig þeir spil- uðu á bassa,“ útskýrir Tómas. Árið 2000 komst tónlistarmaður- inn loks til Havana og segir Tómas að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. „Ég hlustaði á kúbverska tónlist í átta daga samfleytt, frá morgni til kvölds,“ segir Tómas og þar hafi hann loks fengið þá inn- spýtingu sem hann hafi vantað fyrir Kúbanska, fyrstu latin-djass- plötuna með íslenskum tónlistar- mönnum. „Áhuginn á pólitík vék því fyrir músík og dansi sem eru eitt orð á Kúbu en ekki tvö eins og hér,“ segir Tómas. Hann gaf ári síðar út Havana en ákvað að láta á það reyna að taka upp plötu á Kúbu. Hann fékk Samúel J. Samúelsson til liðs við sig og þeir héldu til Havana í mars þar sem félagarnir æfðu nánast samfleytt í sextán daga í heimahúsum hér og þar í höfuðborginni. „Við tókum upp eina og hálfa plötu og héldum því næst heim, fengum nokkra íslenska hljóðfæraleikara til að spila yfir en fannst vanta kúb- versku áhrifin,“ útskýrir Tómas. Ferðinni var því aftur heitið til Havana þar sem tónlistarmaður- inn fékk nokkra valinkunna kúb- verska listamenn til að leika með sér. Loks var haldið heim, platan fínpússuð með íslenskum tónlistarmönnum og útkoman varð þannig að erfitt er að átta sig á því hverjir gera hvað. Kúbversku mínúturnar Tómas talar hlýlega um Kúbu og þykir augljóslega vænt um land og þjóð. Hann hefur farið þangað sjö sinnum en eingöngu til Havana sem Tómas segir að nægi í fyrstu fimmtán skiptin. „Borgin er ákaf- lega sérstök, tónlistin og dansinn slær mann fyrst og hefur dregið mig þangað aftur og aftur,“ segir Tómas. „En svo eru það þessir sterku karabísku litir, gamli nýlenduarkitektúrinn og bíla- menningin,“ bætir hann við en segir jafnframt að fullt af hlutum pirri hinn stundvísa og fram- kvæmdaglaða Íslending. „Orða- tiltækið „mañana“ eða „á morgun“ þýðir eiginlega eftir mánuð,“ segir Tómas og hlær. „Kúbversku mín- úturnar eru líka mun lengri en hinar íslensku og það er mikil skriffinnska hjá hinu opinbera,“ segir Tómas, en tekur fram að þegar kemur að tónlistarmönnum standist allar tímasetningar og gott betur en það. Á laugardaginn var haldið upp á afmæli byltingarleiðtogans Kast- rós sem Tómas segir að gangi skrautlegar sögur um. Ein hafi verið sú að Kastró yrði tekinn úr sambandi á þessum degi og þótt margir hafi áhyggjur af því hvað verði um Kúbu þegar Kastró fari yfir móðuna miklu segir Tómas að menn þurfi litlar áhyggjur að hafa af tónlistinni, hún lifði af bylting- una og muni lifa Kastró. Tónlistin lifir Kastró af í góðri sveiflu Tómas nýtur sín vel á Kúbu og hefur komið þangað sjö sinnum á síðustu sex árum. glaðir Þeir Ómar Guðjónsson og Samúel J. Samúelsson voru ánægðir með tónleikana sem hljómsveit Tómasar hélt og eru hér með hinum kúbverska Daniel Ramos sem spilar á plötunni Daniel Ramos. Tekið á því Þeir Daniel Ramos, Kjartan Hákonarson, og Ómar Guðjónsson blása í lúðra sína af öllum mætti. kúbversk sTemning Gítarleikarinn Cesar Hechevarría slær á létta strengi og í bakgrunni má sjá Kjartan Hákonarson undirbúa sig fyrir tónleikana. sTórhljómsveiT Tómasar Kúbverskir blaðamenn hafa tekið Tómasi opnum örmum og hefur honum verið boðið á kúbverska djasshátíð. Eva Longoria, sem leikur í þáttun- um Desperate Housewifes, hefur trúlofast franska körfuboltakapp- anum Tony Parker. Að sögn talsmanns Longoriu flaug Tony til Longoriu á heimili hennar í Los Angeles eftir leik með San Antonio og kom henni á óvart þegar hún kom heim úr vinn- unni. „Bónorðið var rómantískt og alveg fullkomið. Þau ætla að gift- ast í Frakklandi sumarið 2007 og verða fjölskyldur þeirra og vinir viðstaddir,“ sagði talsmaðurinn. Longoria, sem er 31 árs, skildi við leikarann Tyler Christopher árið 2004 eftir tveggja ára hjóna- band. Parker, sem er 24 ára, hitti Longoriu eftir leik San Antonio fyrir tveimur árum. Trúlofaðist Tony Parker eva og Tony Eva Longoria og Tony Parker ætla að gifta sig á næsta ári í Frakklandi. FRéTTabLaðið/aP Belgíska buffið, Jean Claude Van Damme, hefur borið til baka orðróm um að hann muni leika vonda kallinn í grín-hasarmynd- inni Rush Hour 3 á móti Jackie Chan og Chris Tucker. Van Damme segist hafa verið að grínast með þetta á sínum tíma og spurði þá hvort það væri ekki snið- ugt að hann yrði með í myndinni. „Ef ég myndi leika í grínmynd myndi ég ekki vilja leika í Rush Hour, heldur frekar mynd í líkingu við Lethal Weapon sem væri aðeins raunsærri,“ sagði Van Damme. Rush Hour 3 gerist í París og er hún væntanleg á hvíta tjaldið næsta sumar. Leikur ekki í Rush Hour van damme Söngkonan Nelly Furtado ætlar að syngja dúett með áströlsku söng- konunni Kylie Minogue. Furtado gaf í sumar út plötuna Loose sem hefur m.a. að geyma lagið Maneat- er. Einnig er þar lagið Promiscu- ous sem hún söng með upptöku- stjóranum snjalla Timbaland. Furtado hefur lengi ætlað að vinna með Kylie og nú eru við- ræður hafnar um að þær flytji saman dúett. „Við höfum talað um þetta í dálítinn tíma. Við erum svipaðar á þann hátt að hún er dugnaðarforkur eins og ég,“ sagði hin 27 ára Furtado. Hún er jafnframt ánægð með það hvernig Kylie hefur tekist á við brjóstakrabbameinið sem hún greindist með fyrir nokkru. „Það er frábært að hún skuli hafa snúið aftur og klárað tónleikaferð sína.“ Furtado sló fyrst í gegn árið 2000 með laginu I´m Like a Bird sem var á plötunni Woah Nelly! Nýjasta plata hennar er sú þriðja í röðinni. Kylie hefur lengi verið í sviðsljósinu. Hún vakti fyrst athygli í sjón- varpsþáttunum Nágrannar. Síðan þá hefur hún sungið mörg vinsæl lög á borð við The Loco-Motion, I Should Be So Lucky, Can´t Get You Out Of My Head, In Your Eyes og Slow, sem Emilíana Torrini samdi ásamt upptökustjóranum Mr. Dan. Var það tilnefnt til Grammy-verð- launanna. Kylie og Furtado syngja dúett Vin nin ga r v er ða af he nd ir h já BT Sm ár ali nd . K óp av og i. M eð þv í a ð t ak a þ át t e rtu ko m inn í S M S k lúb b. 14 9 k r/s ke yt ið. 9. HVERVINNUR! KEMUR Í VERSLAN IR 4. DES! OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK! SENDU SMS BTC MDF Á NÚMERIÐ 1900 Vinningar eru Met allica the best of v ideos • Aðrir DVD með Metallica Geislplötur með M etallica • Aðrar ge islaplötur • DVD m yndir og margt fle ira nelly furTado Furtado vill ólm syngja dúett með Kylie Mino- gue. kylie minogue Minogue er að ná sér á strik eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.