Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 70

Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 70
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 76þúsund gestir MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI I besta mynd besti leikar besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin 5 edduverðlaun MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á BLAÐIÐ M.M.J. kvikmyndir.com V.J.V. TOPP5.IS Þ.Þ. FBL STÓRKOSTLEGASTA SAGA ALLRA TÍMA LIFNAR HÉR VIÐ Í STÓRBROTINNI MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF. UPPLIFIÐ HINA SÖNNU MERKINGU JÓLANNA Jólamyndin 2006 HÁTÍÐ Í BÆ kl. 5.50, 8, 10.10 THE NATIVITY STORY kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA PULSE kl. 10.15 B.I. 16 ÁRA CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA MÝRIN kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA HÁTÍÐ Í BÆ kl. 3.40, 5.50 og 8 PULSE kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5 og 8 SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 4 OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 3.50 BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 5.40 og 8 B.I. 12 ÁRA HÁTÍÐ Í BÆ kl. 6 og 8 SAW III kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA CASINO ROYALE kl. 10 B.I. 14 ÁRA MÝRIN kl. 6 B.I. 12 ÁRA Ofurtala Útgáfutónleikar vegna plötunnar „Lög til að skjóta sig við“ með Sviðinni jörð verða haldnir á Grandrokki á þriðjudagskvöld. Platan hefur verið nefnd sorg- legasta kántríplata Íslandssög- unnar. Í hana fór hellingur af tárum ofan í bjórinn, þrír hjóna- skilnaðir, tvær meðferðir, eitt gjaldþrot og sitthvað fleira sem enginn man. Sviðna jörð skipa Magnús R. Einarsson og Freyr Eyjólfsson. Þrettán ný, frumsamin lög með textum eftir Davíð Þór Jónsson um eymdina, sorgina og þjáninguna og það að vera fullur á þriðjudegi eru á plötunni. Sviðin jörð á Grandrokki sviðin jörð Þeir Magnús R. Einarsson og Freyr Eyjólfsson skipa sveitina Sviðna jörð. Larry Hagman, sem lék illmennið JR í sápuóperunni Dallas, er á batavegi eftir að hafa hnigið niður. Hafði hann kvartað undan höfuð- verkjum og missti loks meðvit- und. Var hann fluttur á sjúkrahús en er nú kominn á heimili sitt í Malibu. Hagman, sem er 75 ára, hefur átt við veikindi að stríða undan- farin ár eftir að hann gekkst undir nýrnaígræðslu árið 1995. Hneig niður jr Larry Hagman fór með hlutverk JR í sápuóperunni Dallas. Hljómsveitinni Mammút hefur verið boðið að koma fram á hinni virtu tónlistarhátíð South By South West í Austin, Texas, í Bandaríkjunum sem fer fram í mars 2007. Kom boðið í kjölfar vel heppn- aðra tónleika í Manchester á Eng- landi á Intecity-tónlistarhátíðinni þar sem Mammút kom fram á sérstöku tónleikakvöldi fyrir íslenskar hljómsveitir sem var haldið í fyrsta sinn í ár. Mammút er um þessar mundir að semja ný lög fyrir aðra plötu sína og fara upptökur líklega fram snemma á næsta ári. Spila í Texas mammút Hljómsveitin Mammút spilar á South By South West í Texas á næsta ári. Velgengni Mýrarinnar hefur aukið áhuga kvik- myndagerðarmanna á íslenskum krimmum. Ævar Örn er eftirsóttur. „Full mikið sagt að ég sé búinn að selja kvikmyndarétt. En, það, sko, eru þreifingar í gangi. Menn hafa lýst áhuga sínum á að gera eitthvað við þessar bækur mínar,“ segir Ævar Örn Jósepsson rit- höfundur. Svo virðist sem velgengni Mýrarinnar í kvikmyndahúsum landsins, en þegar hafa rúm 80 þúsund séð myndina, hafi vakið upp mikinn áhuga kvikmynda- gerðarmanna á íslenskum krimm- um. Og er nú keppst um kvik- myndarétt bóka sem hafa litið dagsins ljós í glæpasagnavorinu mikla sem enn stendur. Þannig hefur verið sagt frá því að kvikmyndagerðin Zik Zak hafi tryggt sér kvikmyndarétt að nýrri bók Stefáns Mána, Skipið. Í frétt- um síðustu viku kom fram að sjónvarpsréttur á bókum Stellu Blómkvist hefur verið seldur til Þýskalands. Ævar Örn vill ekki tjá sig meira en orðið er varðandi hugsanlega sölu á kvikmyndarétti á bókum sínum. En blaðið hefur heimildir fyrir því að þar sé um að ræða nokkra aðila. Þeirra á meðal Kisa með þá Ingvar Þórðarson og Júlíus Agnarsson í broddi fylkingar. En þeir eru nú að framleiða Astrópíu. Þá er Ævar Örn að skrifa handrit glæpaþátta ásamt Yrsu Sigurðar- dóttur, Árna Þórarinssyni og Páli Kr. Pálssyni í samstarfi við þá Sigurjón Kjartansson og Óskar Jónasson. Þeir hafa sést með trýnið ofan í nýrri bók Ævars Arnar, Sá yðar sem syndlaus er, en hún hefur fengið afbragðs dóma. Þá er Frétta- blaðinu kunnugt um fleiri kvikmyndagerðarmenn sem sýnt hafa því áhuga að kvikmynda bækur Ævars. Sjálfur vill Ævar Örn ekki gera mikið úr kapphlaupi kvikmynda- gerðarmanna um krimmana. Segir reyndar að hann sjái einhverra hluta vegna þessa íslensku, bresku og skandinavísku krimma fyrir sér sem sjónvarpsefni fremur en bíó. „En því fleiri krimmar sem komast á hvíta tjaldið, því betra. Bara gaman að því.“ Baltasar Kormákur segir þá Arn- ald Indriðason rithöfund hafa ákveð- ið fyrir löngu að hefja engar við- ræður um hugsanlegt áframhald kvikmyndunar Baltasars á bókum hans. Baltasar vildi að öðru leyti ekki tjá sig um áform sín á þessu sviði. Ekkert leyndarmál þó er að menn sjá jafnvel fyrir sér einhvers konar framhaldskvikmyndagerð Baltas- ars á bókum Arnaldar, þá á borð við þá sem til að mynda Svíar hafa stundað í tengslum við bækur Henn- ing Mannkells. En ekkert hefur verið ákveðið enn í þeim efnum. Kvikmyndagerðarmenn í kapphlaupi um krimma Eftirsóttur Nokkrir kvikmyndagerðar- menn hafa sýnt því áhuga að kaupa kvikmyndarétt á bókum Ævars Arnar Jósepssonar. FRéTTABLAðið/HEiðA JJ Cale hefur haft mikil áhrif á tón- list Erics Clapton. Hann samdi lögin Cocaine og After Midnight sem bæði náðu miklum vinsældum þegar Eric Clapton gerði sínar útgáfur af þeim. Þær vinsældir urðu svo til þess að vekja athygli á JJ Cale. Þannig eiga þessir tveir tónlistarmenn hvor öðrum mikið að þakka. Það var þess vegna mikið fagnaðarefni fyrir marga að þeir skyldu í fyrsta sinn gera plötu saman. The Road to Escondido hefur að geyma fjórtán lög. Ellefu þeirra eru eftir Jean Jacques Cale, eitt er eftir Eric Clapton, eitt eftir Clapton og John Mayer og eitt er gamall slagari eftir Brownie McGhee, Sporting Life Blues. Fjölmargir þekktir hljóðfæra- leikarar koma fram á plötunni, þ.á.m. Billy Preston og John Mayer. Lögin eru flest í þessum afslapp- aða stíl sem einkennir tónlist JJ Cale. Djass og kántrískotið blús- rokk í stíl við síðustu sólóplötu JJ Cale, To Tulsa and Back, sem kom út fyrir tveimur árum og vakti óþarflega litla athygli. Á þessu eru þó nokkrar undantekningar, t.d. lagið Dead End Road sem er hressileg blúgrasskeyrsla. Það er ekki hægt að setja mikið út á þessa plötu. Þessi lög standa öll fyrir sínu, flutningurinn er full- kominn og hljómurinn er góður. Platan sýnir að lagasmíðar JJ Cale ná fram því besta í Eric Clapton. Hér eru tveir gamlir meistarar að gera það sem þeir kunna best. Það er fátt sem kemur á óvart, en aðdáendur þessara tónlistarmanna láta sig það senni- lega litlu máli skipta. trausti júlíusson Kóngar hvíta blúsins sameinaðir tónlist the road to Escondido JJ Cale & Eric Clapton HHH Fín blúsplata í þessum afslappaða stíl sem einkennir tónsmíðar JJ Cale. Tveir gamlir meistarar að gera það sem þeir kunna best. Baltasar KormáKur Viðræður um hugsanlegt framhald á kvikmyndun bóka Arnaldar indriðasonar hafa ekki farið fram enn sem komið er. FRéTTABLAðið/HöRðuR LOTTÓ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.