Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 72

Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 72
40 4. desember 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Það er algengt í landsliðsferðum að einhver aðili í hópnum eigi afmæli og að þessu sinni var það Gróttustúlkan Eva Margrét Kristinsdóttir, landsliðskona í handbolta, sem hélt uppá 21 árs afmæli sitt í Rúmeníu þar sem kvennaliðið er við keppni. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég á afmæli í svona ferð. Það er líka svolítið sjaldgæft að við séum að keppa svona seint á árinu,“ sagði Eva Margrét. „Það er frekar fyndið að það er nánast alltaf einhver afmæli í þessum ferðum. Í síðustu ferð átti Sólveig afmæli og þar á undan Rakel,“ sagði Eva Margrét en þetta er eingöngu í annað sinn sem hún er ekki á Íslandi á afmælisdeginum sínum en hún spilaði í Noregi síðasta vetur og var því þar á tvítugsafmælinu sínu. Í tilefni dagsins var liðinu gefin afmæliskaka sem féll misvel í mannskapinn. Helst var það að stelp- urnar kvörtuðu yfir of miklu áfengisbragði og Eva Margrét var alveg sammála því. „Hún var of áfeng fyrir minn smekk.“ Þrátt fyrir að Eva Margrét væri að heiman á afmæl- inu þá stoppaði það ekki foreldra hennar í að koma gjöf til stelpunn- ar sinnar. „Mamma laumaði pakka til Írisar og hún lét mig fá hann á afmælisdeginum. Ég fékk i-pod nano, rosalega flottan“ sagði Eva Margrét yfir sig ánægð en það var ekki það eina sem hún fékk. „Ég fékk örugglega hátt í 30 sms þannig að það verður dýrt þegar ég kem heim,“ sagði Eva Margrét og hló. Evu gefst ekki mikill tími til að halda upp á afmælið sitt þegar heim er komið því við tekur stífur próflestur en Eva Margrét er á fyrsta ári í lögfræði í Háskóla Íslands. Eva Margrét var ekki á leikskýrslu tvo fyrstu leiki íslenska liðsins í Rúmeníu en sagði þó að hún hafi ekkert verið orðin áhyggjufull að fá ekki að spila. „Maður þarf bara að vera tilbúin þegar kallið kemur,“ sagði Eva Margrét og bætti við að það hafi verið grautfúlt að sitja á áhorfendapöllunum og horfa á liðið spila. „Það var sérstaklega fúlt á afmælisdaginn,“ bætti Eva við en íslenska liðið laut í gras gegn Portúgal á afmælisdeginum hennar, sem er líklega ekki sú afmælisgjöf sem Eva hafði óskað sér. Eva MaRGRÉt KRiStiNSdóttiR: átti afMæli 1. dESEMbER oG StElPuRNaR fENGu ÞvÍ afMæliSKöKu Mamma laumaði afmælisgjöf út til mín foRKEPPNi HM dagur sveinn dagbjartsson skrifar frá Rúmeníu dagur@frettabladid.is ÍSlaNd-ÍtalÍa 30-25 Mörk Íslands (skot): Rakel dögg bragadóttir 8/4 (9/4), Guðbjörg Guðmannsdóttir 8 (10), Sólveig lára Kjærnested 6 (11), ágústa Edda björnsdóttir 3 (5), Hrafnhildur Skúladóttir 2 (2), Jóna Margrét Kristinsdóttir 2 (4), Harpa Melsted 1 (3). Varin skot: berglind Íris Hansdóttir 12/1, Íris björk Símonardóttir 1/1. Hraðaupphlaup: 9 (Guðbjörg 4, Sólveig 4, Harpa). Fiskuð víti: 4 (Ragnhildur, Sólveig, Guðbjörg, Eva). Utan vallar: 6 mínútur. ísland - ítalía HANDbolti Íslenska kvennalands- liðið í handbolta bar í gær sigur- orð á Ítölum, 30-25. Leikur íslenska liðsins var langt undir meðallagi í fyrri hálfleik og Ítalir höfði yfir í leikhléi, 12-14. Það kom þó ekki að sök og leikur liðsins í síðari hálf- leik var góður og þegar upp var staðið var sigurinn öruggur. Íslenska liðið var lengi í gang í gær og engu líkara en að liðið liti á það sem hálfgert skylduverkefni að mæta í íþróttahúsið í Valcea. Það var ótrúlegt andleysi yfir leik liðsins í byrjun og ítalska liðið gekk á lagið. Þegar átta mínútur voru liðnar af leiknum og í stöðunni 2-6 sá Júlíus Jónasson þjálfari þann kost vænstan að taka leikhlé enda ekk- ert vit í leik íslenska liðsins og hugarfar leikmanna augljóslega ekki rétt. Það virtist hafa góð áhrif á stelpurnar okkar því hægt og bítandi minnkaði forskot þeirra ítölsku. Eitthvað gekk þó illa að jafna metin, þrátt fyrir góð tæki- færi, því ítalska liðið hélt yfir- hendinni út fyrri hálfleikinn og leiddi þegar flautað var til leik- hlés, 12-14. Greinilegt var að Júlíus, þjálf- ari íslenska liðsins, var allt annað en sáttur við spilamennsku liðsins enda fáar stelpur að spila af eðli- legri getu í fyrri hálfleik og margt sem þurfti að laga, bæði í sóknar- og varnarleik íslenska liðsins, ef ekki ætti illa að fara í þeim síðari. Ef hægt er að segja að fyrri hálfleikur hafi verið eins og svart þá var síðari hálfleikurinn eins og hvítt. Það var engu líkara en að allt annað íslenskt lið væri inni á vellinum í síðari hálfleik en í þeim fyrri. Loksins sást barátta í íslenska liðinu og liðið var að spila skínandi góðan varnarleik. Íslensku stelpurnar voru ekki lengi að jafna metin í 14-14 og þær komust svo yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar um sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, 17- 16. Á þessum kafla náði íslenska liðið vel að trufla sóknarleik ítalska liðsins og í kjölfarið fengu okkar stelpur mörg hraðaupp- hlaup þar sem þær Sólveig Lára Kjærnested og Guðbjörg Guð- mannsdóttir voru í aðalhlutverk- um. Eftir að íslenska liðið komst yfir var aldrei spurning hvorum megin sigurinn endaði en lokatöl- ur urðu 30-25. Íslenska liðið sýndi það og sannaði í síðari hálfleikn- um að það er mun betra en það ítalska og ef stelpurnar okkar hefðu spilað af sama krafti í fyrri hálfleik og þær gerðu í þeim síðari þá hefði munurinn í lokin eflaust orðið stærri en raunin varð. Öruggur sigur Íslands á Ítalíu Ísland vann öruggan fimm marka sigur, 30-25, á Ítölum í lokaleik riðilsins í undankeppni HM í handbolta kvennalandsliða. Ísland endaði í þriðja sæti riðilsins og komst ekki áfram á lokakeppni HM. takk fyrir stuðninginn Stelpurnar klappa hér fyrir áhorfendum. varnarmúr Íslenska vörnin stóð vaktina vel lengstum í leiknum í gær og það var enginn hægðarleikur fyrir þær ítölsku að koma boltanum fram hjá þessum múr. fRÉttablaðið/tiHi JovaNovic komin í gegn Stjörnustúlkan Rakel dögg bragadóttir er hér búin að prjóna sig í gegnum ítölsku vörnina í gær og skorar eitt af átta mörkum sínum í leiknum. fRÉttablaðið/tiHi JovaNovicHANDbolti Guðbjörg Guðmanns- dóttir var valinn maður leiksins og hún sagði að það hafi ekki komið til greina að tapa þessum leik. „Við byrjum leikinn mjög illa og mér fannst vanta alla einbeitingu. Við vorum hálfsof- andi og það var eins og við værum ekki tilbúnar í verkefnið. Svo fórum við inn í hálfleik og það kom ekki annað til greina en að sigra þennan leik og fara með tvo sigra frá þessu móti.“ Guðbjörg sagði að það væri erfitt að benda á eitthvað eitt sem orsakaði andleysi íslenska liðsins í byrjun leiksins. „Við ætluðum okkur að sjálfsögðu allar að gera okkar besta og vinna en við vorum bara ekki tilbúnar frá byrjun. Þær voru ekki búnar að vinna leik og ætluðu sér eflaust að ná í stig í dag en það kom aldrei til greina að tapa þessu,“ sagði Guðbjörg. - dsd Guðbjörg Guðmannsdóttir: Kom aldrei til greina að tapa hvert ert þú að fara? Harpa Melsted og Hrafnhildur Skúla- dóttir snúa hér eina ítölsku stelpuna niður í gær. fRÉttablaðið/tiHi JovaNovic best í gær Eyjastelpan Guðbjörg Guð- mannsdóttir var valin maður leiksins í gær. fRÉttablaðið/tiHi JovaNovic HANDbolti Þrátt fyrir sigurinn var Júlíus Jónasson, þjálfari íslenska liðsins, ekkert alltof sáttur í leiks- lok. „Ég fór yfir það fyrir leikinn að það er oft erfitt þegar komið er í síðasta leikinn að slaka ekki á og fara að hugsa um eitthvað annað en þetta verkefni, sérstaklega þegar mótherjinn er lakari en við á pappírunum. Þær voru hins vegar ekkert lakari en við, þær voru betri en við í fyrri hálfleik. Þetta er bara atriði um viljann og hugarfarið. Allt sem við gerð- um í fyrri hálfleik var illa gert. Þetta var svo allt annað í síðari hálfleik. Við stóðum hins vegar í vörn mikinn hluta af síðari hálf- leiknum og ítalska liðið fékk að spila mjög mikið, sem er oft þegar svona er. Við stóðum hins vegar vörnina mjög vel í síðari hálfleik. Við vorum að prófa ýmsar útfærslur af vörn í fyrri hálfleik og það gekk ekkert, það er spurning um hugar- farið,“ sagði Júlíus og bætti við að hann væri ekkert yfir sig ánægð- ur með síðari hálfleikinn. „Ég er svona þokkalega ánægð- ur með hann. Ég er samt ekkert 100% ánægður en ég held að það liggi bara í því að skoðun mín núna er svolítið lituð frá fyrri hálfleikn- um.“ Íslenska liðið endaði í þriðja sæti riðilsins og Júlíus sagði að það væri ekki ásættanlegt því liðið hefði farið til Rúmeníu með það að markmiði að vinna alla leikina. - dsd Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari var ekki fyllilega sáttur þrátt fyrir sigur síns liðs gegn Ítalíu: Fyrri hálfleikur slakur en síðari mun betri hrafnhildur skúladóttir Gefur hér línusendingu í leiknum. júlíus jónasson Þokkalega sáttur við leikinn í gær. > góður sigur hjá Ciudad ólafur Stefánsson og félagar í Evrópumeistaraliði ciudad Real eru komnir með annan fótinn í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir góðan útisigur á danska liðinu GoG, 33-28, en þetta var fyrri rimma liðanna í sextán liða úrslitunum. ólafur átti ágætan leik fyrir spænska liðið og skoraði þrjú mörk. Montpellier kom á óvart og lagði barcelona með þrem mörkum, 28-25.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.