Fréttablaðið - 20.12.2006, Side 2
Guðjón St. Marteinsson
héraðsdómari átti rétt á að fá
greidd laun samkvæmt ákvörðun
kjaradóms frá 19. desember á
síðasta ári, samkvæmt dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur. Niður-
staða dómsins er sú að löggjafinn
hafi brotið gegn sjálfstæði dóm-
stóla, og þar með tilgreindum
ákvæðum stjórnarskrárinnar,
með lagasetningu 20. janúar á
þessu ári, sem felldi úr gildi
ákvörðun Kjaradóms um launa-
hækkun til þjóðkjörinna fulltrúa,
svo og dómara og héraðsdómara.
Niðurstaða Héraðsdóms nær ein-
ungis til dómara vegna sérstakr-
ar stöðu þeirra samkvæmt stjórn-
arskránni.
Umrædd ákvörðun kjaradóms
19. desember 2005 vakti mikil
viðbrögð. Halldór Ásgrímsson,
þáverandi forsætisráðherra, rit-
aði Kjaradómi bréf þar sem bent
var á að ákvarðaðar launahækk-
anir stofnuðu nýgerðu samkomu-
lagi um kjaramál í hættu. Kjara-
dómur svaraði að ákvörðunin
skyldi standa. Hún var þá felld úr
gildi með sérstakri lagasetningu.
Í niðurstöðu Héraðsdóms segir
að ákvarðanir löggjafans hafi
þurft að taka mið af því að með
úrskurðinum hafði Kjaradómur
ákveðið hækkun launa til handa
sjálfstæðum handhöfum ríkis-
valds, hæstaréttardómurum og
héraðsdómurum, sem tók gildi 1.
janúar 2006. Með því að fella úr
gildi löglega og bindandi ákvörð-
un þar til bærs úrskurðaraðila um
launahækkanir til dómara verði
að telja að löggjafinn hafi gripið
með sérgreindum hætti inn í lög-
bundið ferli til ákvörðunar um
launakjör dómara.
„Verði á það fallist að löggjaf-
inn hafi almenna heimild til
sérgreindrar íhlutunar í löglega
ákvörðun þar til bærs aðila um
launakjör dómara verður vart
talið að staða dómara sé nægilega
trygg þannig að þeir teljist hlut-
lægt séð „óháðir“ löggjafarvald-
inu í merkingu 2. og 70. gr. stjórn-
arskrárinnar,“ segir í dómnum.
„Í athugasemdum greinargerðar
með frumvarpi er varð að stjórn-
arskipunarlögum er rakið að
áskilnaður 1. mgr. 70. gr. stjórn-
arskrárinnar um óháða dómstóla
feli í sér að dómstólar eigi að
vera sjálfstæðir og „ekki háðir
öðrum þáttum ríkisvaldsins“. Er
skírskotað til þess að „kjör sem
dómendum eru tryggð“ séu einn
af efnisþáttum í mati á hvort
dómstólarnir teljist sjálfstæðir
þannig að fullnægt sé kröfum
stjórnarskrárinnar,“ segir enn
fremur.
Guðjóni St. Marteinssyni voru
því dæmdar 35.144 krónur auk
dráttarvaxta en það var sú launa-
hækkun, sem hann átti rétt á 1.
febrúar samkvæmt úrskurði
Kjaradóms.
Dómurinn var skipaður þrem-
ur setudómurum, þeim Þórði S.
Gunnarssyni, Ragnhildi Helga-
dóttur og Róbert R. Spanó.
Löggjafinn braut
gegn stjórnarskrá
Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari átti, samkvæmt ákvörðun kjaradóms,
að fá greidd laun samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómurinn telur
löggjafann hafa brotið gegn sjálfstæði dómstóla og þar með stjórnarskránni.
Tæplega sextugur
karlmaður var í gær dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavikur fyrir
vörslu barnakláms. Maðurinn var
dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi, en refsingin skilorðs-
bundin til þriggja ára.
Maðurinn hafði í tölvu sinni
259 ljósmyndir, sem sýna börn á
ýmsum aldri á kynferðislegan og
klámfenginn hátt og eru margar
myndanna mjög grófar. Telst brot
hans því stórfellt. Þegar til þess
er litið að ákærði hefur ekki áður
gerst sekur um refsiverða
háttsemi þykir refsing hans
hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá
mánuði.
Dæmdur fyrir
barnaklám
Maðurinn sem lést í bílslysi á
Álftanesvegi aðfaranótt
laugardags-
ins 16.
desember
hét Guð-
mundur
Eiður
Guðmunds-
son. Hann
var til
heimilis að
Skólatúni 4
á Álftanesi.
Guðmundur Eiður var fæddur
20. ágúst 1982. Hann var
ókvæntur og barnlaus.
Lést í bílslysi
Saddam Hussein og
aðrir í réttarsal í Bagdad, þar
sem réttarhöld standa yfir vegna
ákæra um þjóðarmorð, sáu í gær
myndband sem tekið var þegar
eiturgasi var dreift í þorpum í
kúrdahéröðum Íraks á árunum
1987 og 1988.
Á myndbandinu sjást dáin
börn liggjandi á akri og fólk í
þorpunum sést flýja undan
hvítum eiturskýjum.
„Þessi börn eru skemmdar-
verkamennirnir sem sakborning-
arnir tala um,“ sagði Munqith al-
Faroon saksóknari og vísaði þar
til raka verjenda í málinu um að
Íraksstjórn hefði á þessum árum
átt í baráttu við uppreisnarsveitir
Kúrda.
Gaseitrun sýnd
á myndbandi
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
RENAULT MEGANE CLASSIC
Nýskr. 06.02 - Sjálfskiptur - Ekinn 76 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.180
.000.
-
Ef að líkum lætur verður
Þorláksmessan komandi lang-
stærsti dagur íslenskrar smásölu
frá upphafi. Að hana skuli bera
upp á laugardag spilar þar stórt
hlutverk. Pálmi Kristinsson,
framkvæmdastjóri Smáralindar,
segir að gera megi ráð fyrir að á
Þorláksmessu muni neytendur
eyða allt frá þremur til fjórum
milljörðum króna á landsvísu. Til
samanburðar mun sala síðastlið-
inn laugardag á landinu öllu hafa
numið um 1,5 til 2 milljörðum
króna.
Þótt ýmislegt bendi til þess að
tekið sé að draga saman í einka-
neyslu landsmanna virðist það ekki
ná til jólagjafainnkaupa. Segir
Pálmi allmargar verslanir í Smára-
lind nú þegar hafa aukið sölu sína
um 40 til 60 prósent miðað við
desember í fyrra.
Íslandsmet á
Þorláksmessu
Jón Sigurðsson, formað-
ur Framsóknarflokksins og iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, leiðir lista
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
norður í alþingiskosningum næsta
vor.
Jónína Bjartmarz umhverfis-
ráðherra verður í efsta sæti lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi suður.
Næst á listunum tveimur eru
tveir alþingismenn sem tóku sæti á
þingi á yfirstandandi kjörtímabili
eftir að tveir ráðherrar flokksins
létu af þingmennsku. Sæunn Stef-
ánsdóttir verður í 2. sæti listans í
suðurkjördæminu og Guðjón Ólaf-
ur Jónsson verður næstur á eftir
Jóni, formanni flokksins, í norður-
kjördæminu.
Í síðustu kosningum til Alþingis,
vorið 2003, fengu framsóknarmenn
samtals þrjá þingmenn í Reykja-
víkurkjördæmunum. Ásamt Jónínu
Bjartmarz, sem náði kjöri sem leið-
togi lista flokksins í suðurkjör-
dæminu, hlutu þingsæti þeir Hall-
dór Ásgrímsson, þáverandi
formaður flokksins, og Árni Magn-
ússon. Halldór skipar heiðurssæti
listans í norðurkjördæmi.
Listar framsóknarmanna í
Reykjavík voru valdir á aukakjör-
dæmisþingum í gær.
Hilmar, var skálað í Skálholti?