Fréttablaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 10
 Shinzo Abe, forsætisráð- herra Japans, tilkynnti í gær að hann hygðist sækjast eftir því á næsta ári að lögum yrði breytt þannig að unnt yrði að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um að breyta stjórnar- skránni. Greidd yrðu atkvæði um endurskoðun ákvæðisins um bann við beitingu japansks hers utan Japans. Í ræðu við þinglok sagðist Abe stefna að því að fá stjórnar- skránni breytt á kjörtímabili sínu. Japanska lýðræðisstjórnarskráin hefur aldrei verið endurskoðuð frá því að hún var sett, fyrir tilstilli bandarísku sigurvegar- anna, árið 1947. Stjórnarskráin endurskoðuð Fyrst voru það Orðin tóm og nú Glamm!! Þetta er diskurinn sem allar hugsandi konur og allir hugsandi karlar vilja fá undir geislann. Á þessum nýja og glæsilega geisladiski les Jón Norland 24 ljóð eftir sjálfan sig sem sonur hans, Sverrir Norland, hefur samið skemmtilega og kröftuga tónlist við. Sverrir leikur auk þess á kassa- og rafgítara, bassagítar og slagverk. Geisladiskur handa öllum þeim sem unna íslenskri tungu og góðri tónlist. Hér ræður engin hálfvelgja ríkjum! Diskurinn fæst í öllum helstu bókaverslunum og plötubúðum. Forlag misskilinna skálda X S TR E A M D E S IG N S N 0 6 11 0 03 Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Porche II-hönnunin frá Siemens. Úr hágæða burstuðu áli. Hönnuður: F.A. Porsche. Kaffivél, brauðrist og hraðsuðukanna. A T A R N A / S T ÍN A M . / F ÍT Óskar Bergsson vara- borgarfulltrúi hefur óskað eftir því að samningi sínum við Faxa- flóahafnir verði rift. Óskar samdi nýverið við Faxa- flóahafnir um að annast ýmis verkefni er snúa að framkvæmd- um fyrirtækisins við Mýrargötu og fólst í því meðal annars að gæta hagsmuna Faxaflóahafna gagn- vart Reykjavíkurborg. Ásamt því að vera varaborgar- fulltrúi er Óskar formaður fram- kvæmdaráðs borgarinnar og vara- formaður skipulagsráðs. Úlfúð skapaðist um samning- inn og hélt Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, því fram að í honum fælust hags- munaárekstrar þar sem Óskar sæti beggja vegna borðsins. Í yfirlýsingu kveðst Óskar ósammála því mati enda fari hags- munir Reykjavíkurborgar og Faxaflóa saman. „Ég met það þannig að það séu meiri hagsmunir að skapa frið í kringum verkefnið og mér fannst ekki þess virði að taka þennan slag fyrir þetta starf,“ sagði Óskar í samtali við Fréttablaðið. Dagur B. Eggertsson segist ánægður með ákvörðun Óskars enda hættulegt fordæmi að kjörn- ir fulltrúar ráðist til að gæta hags- muna annarra gagnvart borginni. Málalyktir hvetji sig til að halda áfram uppbyggilegu aðhaldi. Meiri hagsmunir að skapa frið Háskóli Íslands braut jafnréttislög þegar hann réð karlmann í stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu Raunvísinda- stofnunar HÍ. Kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði um þetta í fyrradag. Dr. Freyja Hreinsdóttir, sem starfað hefur við stærðfræðistofu í fjögur ár, sótti einnig um. Bæði hún og karlinn voru metin hæf og var niðurstaða kærunefndarinnar sú að Háskólinn hefði ekki getað sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði lægju að baki ráðningu hans. Engin kona starfar við stærðfræðistofu, en Freyja er nú dósent við HR. Háskólinn braut jafnréttislög „Ég ríf allar svona stórar byggingar sem þessir litlu karlar ráða ekki við,“ segir Snorri Vignisson hjá SR- verktökum sem í gær lét til skarar skríða við nið- urrif Hampiðjuhússins. Öll húsin á Hampiðjureitnum víkja til að koma þar fyrir nýjum íbúðarblokkum. Snorri og félagar eru þegar búnir að rífa gamla Heyrnleysingjaskólann á baklóð- inni og hafa undanfarna tvo mán- uði unnið við að tæma Hampiðju- húsið og undirbúa það á annan hátt fyrir að hverfa af yfirborði jarðar. „Nú ætlum við bara að fara að ryðja þessu húsi um koll,“ segir Snorri og bendir á Hampiðjuhúsið og risastóra beltagröfu sem skrölt- ir á vettvang. „Þetta er náttúrlega merkilegt hús. Upp á síðkastið hefur verið hér fólk sem hvergi býr en sem betur fer koma nú nýjar íbúðir í staðinn.“ Snorri hefur mikla reynslu í niðurrifi húsa. SR-verktakar eigi meðal annars stærstu gröfu lands- ins sem sé nauðsynleg í slík verk. Hann segist meðal annars hafa rifið öll hús á Norðurbakkanum í Hafnarfirði, Lindargöturíkið svo- kallaða og hraðfrystihús Granda við hlið Ellingsen. Snorri er ánægður í starfi sínu. „Persónulega finnst mér ofsa- lega gaman að skemma og eyði- leggja. Það er meira gaman að brjóta hluti en að búa þá til,“ útskýrir Snorri áður en hann bætir við: „En ég hef líka gaman af upppbyggingarstarfsemi; að búa til fallega lóð. Það er auðvitað var- anlegri ánægja.“ Hampiðjuhúsið rifið Snorri Vignisson og félagar í SR-verktökum eru að rífa Hampiðjuhúsið á horni Þverholts og Brautarholts til að rýma fyrir nýjum blokkaríbúðum. Snorri er gamalreyndur niðurrifsmaður sem hefur komið víða við á þeim vettvangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.