Fréttablaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 71
MARKAÐURINN 17MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
H E Ð A N O G Þ A Ð A N
Í Skútuvogi í Reykjavík hefur
verið opnuð stærsta Vodafone-
verslun í heimi, um 400 fermetrar
að stærð. Í tilkynningu Vodafone
á Íslandi kemur fram að vöru-
úrvalið í búðinni sé einstakt og
hún sé ein af fyrstu Vodafone-
verslununum í heimi sem byggja
á byltingarkenndri hönnun sem
færa á viðskiptavinum nýja sýn
á vöru- og þjónustuframboð fyr-
irtækisins.
Á heimsvísu er Vodafone
með 190 milljónir viðskiptavina
og starfsemi í 27 löndum, sam-
starfsfyrirtæki eru í rúmlega
30 löndum. Vodafone-fyrirtæki
reka um eitt þúsund verslanir um
heim allan.
Vodafone með
stærstu búð hér
Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM
Software, hefur ákveðið að láta
af störfum 1. janúar. Við starfi
hans tekur Ágúst Einarsson sem
hefur verið framkvæmdastjóri
TM Software-Infrastructure
Management frá árinu 2003.
Friðrik stofnaði TM Software
undir nafni TölvuMynda fyrir
tuttugu árum og hefur alla tíð
síðan verið forstjóri félagsins.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að ákvörðun Friðriks hafi
verið tekin að vel athuguðu máli
og honum hafi þótt tími til kom-
inn að snúa sér að öðrum störf-
um.
TM er í dag eitt af stærstu
fyrirtækjum landsins í upplýs-
ingatækni með starfsemi í ell-
efu löndum með rúmlega 1.800
viðskiptavini um heim allan.
Ársvelta félagsins nemur á
fimmta milljarð króna og kemur
um helmingur teknanna erlendis
frá. - hhs
Forstjóraskipti hjá TM
Hugbúnaðarfyrirtækið
TM Software hefur
ákveðið að styrkja
Ljósið, endurhæfing-
ar- og stuðningsmiðstöð
fyrir þá sem greinst
hafa með krabbamein
og aðstandendur þeirra.
Stuðningurinn felst í
að veita Ljósinu afnot
af sjúkraskrárkerfinu
Sögu, sem Ljósið fær
aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu.
Í tilkynningu frá TM Software segir að umsjónarmenn Ljóssins
geti skráð námskeið, fræðslutíma og sjúkrasögu allra sem sækja mið-
stöðina í sjúkraskrárkerfið Sögu. Með iCura-kerfisveitu fær Ljósið
aðgang að Sögu yfir Netið og þarf því ekki að setja upp aukavélbúnað
til að keyra sjúkrakerfið. iCura-kerfisveitan fylgir ströngustu örygg-
iskröfum og tryggir það öruggan rekstur, afritunartöku, eftirlit og
viðhald, að því er segir í tilkynningunni.
Erna Magnúsdóttir, yfirumsjónarmaður Ljóssins, segir þetta ómet-
anlegt og hafa mikla hagræðingu í för með sér. Kostur sé að geta
fengið kerfi eins og Sögu í gegnum kerfisveitu og þannig nýtt áfram
þann tölvukost sem fyrir var í miðstöðinni en kerfisveitan gerir not-
endum kleift að tengjast sjúkraskránni utan starfsstöðvar Ljóssins
og tryggir það sveigjanleika í skráningu og eftirliti, að því segir í
tilkynningunni. - jab
TM Software
styrkir Ljósið
Í stað þess að senda jólakort
tóku stjórnendur VÍS þá ákvörð-
un að styrkja Einstök börn um
andvirði þeirra fjárhæðar sem
varið hefur verið til slíks. Verður
styrknum varið í stuðning við
börn og barnafjölskyldur sem
vegna sérstakra aðstæðna þurfa
á stuðningi að halda.
Einstök börn er stuðningsfélag
barna með sjaldgæfa alvarlega
sjúkdóma. Félagið var stofnað
árið 1997 af foreldrum 13 barna
en í dag eru í félaginu 125 fjöl-
skyldur barna með sjaldgæfa
alvarlega sjúkdóma. Þeir sjúk-
dómar, sem börnin í félaginu
þjást af, eru allir langvinnir og
hafa varanleg áhrif á börnin og
fjölskyldur þeirra. Þar sem um
sjaldgæfa sjúkdóma er að ræða
hafa margir þeirra lítið verið
rannsakaðir og í fæstum tilfell-
um er til eiginleg meðferð við
þeim.
VÍS styrkir
Einstök börn