Fréttablaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 4
Reykjavíkurborg
keypti sérfræðiþjónustu af ýmsu
tagi fyrir rúmar 830 milljónir
króna á fyrstu tíu mánuðum árs-
ins án þess að tilboða í viðkomandi
verk væri leitað. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri segir
óhætt að reikna með að fjárhæðin
muni nema um milljarði króna
þegar árið allt verði liðið. Hann
telur að útboð og verðfyrirspurnir
geti sparað borginni um tíu pró-
sent kostnaðar, sem í þessu tilviki
væru um 100 milljónir króna.
Reglur borgarinnar kveða á um að
spyrjast skuli fyrir um verð ef
kostnaður þjónustuverks fari yfir
sjö milljónir og efna skuli til
útboðs ef fjárhæðin sé yfir fjórtán
milljónum. Verðfyrirspurn er
óformlegri leið en útboð en um
hana gilda formlegar reglur.
„Meginreglan er sú að það á að
bjóða allt út sem hægt er að bjóða
út,“ segir Vilhjálmur og telur ein-
sýnt að borgin geti sparað peninga
með því að virða þá reglu. „Það
vekur óneitanlega athygli að ekk-
ert af þessu hefur farið í gegnum
Innkaupaskrifstofu borgarinnar
og það er ljóst í mínum huga að
með útboði á stórum hluta þessara
verkefna hefði mátt ná fram minni
kostnaði og hagræðingu.“
Þorri umræddra verkefna snýr
að þjónustu við Eignasjóð borgar-
innar og verkkaupar eru fyrst og
fremst verkfræðistofur og aðrir
ráðgjafar á sviði framkvæmda. 25
fyrirtæki hafa veitt borginni þjón-
ustu fyrir meira en sjö milljónir
króna á þessum tíu mánuðum og
fyrirtækið sem mest hefur fengið
hefur gert samninga fyrir tæpar
70 milljónir króna. Ekki fást upp-
lýsingar um hversu mörg verk búi
að baki fjárhæðinni en Vilhjálmur
segir að farið verði ofan í saum-
ana á því.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar, kveðst sam-
mála því að útboð eigi að vera
meginreglan en stór verk, á borð
við ráðgjöf vegna Sundabrautar,
hafi tilhneigingu til að vaxa að
umfangi eftir því sem þeim vindi
fram. Kostnaður hafi því ekki allt-
af verið fyrirséður. „Til að ná utan
um þetta hafði ég frumkvæði að
því á síðasta kjörtímabili að
Reykjavíkurborg og Fram-
kvæmdasýsla ríkisins færu sam-
eiginlega í að setja skýrar reglur
því það má ekki vakna grunur um
að verið sé að draga taum eins
umfram annars.“ Spurður hvort
hann telji að farið hafi verið illa
með peninga kveðst Dagur ekki
treysta sér til að fullyrða um það á
grundvelli heildartölunnar. „En
það er fyllsta ástæða til að fara
yfir þetta og mikilvægt að ríki og
borg séu samferða því í mjög
mörgum tilvikum erum við í sam-
vinnu við Vegagerðina og ráðum
ekki ein för.“
830 milljóna kaup á
þjónustu án útboða
Á fyrstu tíu mánuðum ársins keypti Reykjavíkurborg þjónustu fyrir 830 milljónir án
þess að leita tilboða. Borgarstjóri gagnrýnir háttalagið og segir hægt að spara háar
fjárhæðir með útboðum. Dagur B. Eggertsson segir ástæðu til að fara yfir málin.
Robert Gates, sem
tók við á mánudag sem nýr
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, varaði í fyrstu ræðu sinni
við að ef Banda-
ríkjaher mistækist
ætlunarverk sitt í
Írak myndi það
ásækja bandarísku
þjóðina áratugum
saman.
„Eins og
forsetinn hefur
sagt höfum við einfaldlega ekki
efni á mistökum í Mið-Austur-
löndum. Ef okkur mistekst í Írak
nú verður það ógæfa sem mun
ásækja þjóð okkar, skaða trúverð-
ugleika okkar og stefna Banda-
ríkjamönnum í hættu áratugum
saman,“ sagði Gates, sem ætlar
sér að fara til Íraks við fyrsta
tækifæri til að ræða við banda-
ríska hermenn og meta stöðuna.
Gates varar við
ósigri í Írak
Meginreglan er sú að
það á að bjóða allt út
sem hægt er að bjóða út.
Karlmaður á fertugs-
aldri hefur í Héraðsdómi
Reykjavíkur verið dæmdur í níu
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir þjófnað. Maðurinn braust
inn í verslunina Rafmætti í
Fjarðargötu í Hafnarfirði í júní í
sumar og stal flatskjá, símum og
gjaldeyri.
Við ákvörðun refsingarinnar
var litið til þess að maðurinn rauf
skilorð auk þess sem hann hefur
áður gerst sekur um auðgunar-
brot.
Manninum var auk þess gert
að greiða málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns að upphæð tæplega
100 þúsund krónur.
Níu mánuðir
fyrir þjófnað
Lausn á húsnæðisvanda
Náttúrufræðistofnunar liggur
ekki fyrir en ólíklegt er að nátt-
úrusafn verði reist úti á landi, að
sögn Jónínu Bjartmarz umhverf-
isráðherra, sem fór yfir stöðu
stofnunarinnar á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun.
„Það var fyrst og fremst verið
að fjalla um á hvern hátt aðbúnaði
í þessum geymslum væri ábóta-
vant og hverjar þarfirnar væru og
út frá hvaða forsendum,“ sagði
Jónína, sem vildi ekkert tjá sig
nánar um staðsetningu náttúru-
safns að öðru leyti en að óæskilegt
væri að safnið og Náttúrufræði-
stofnun væru aðskilin.
Árið 1991 komust ríkið, Reykja-
víkurborg og Háskóli Íslands að
samkomulagi um að reisa náttúru-
safn í Vatnsmýrinni en ekkert
varð af þeim framkvæmdum, eins
og Fréttablaðið greindi frá í gær.
Spurð um ástæður þess sagðist
Jónína ekki þekkja þá sögu. „En
það er mjög langur tími sem þetta
hefur verið í bráðabirgðahúsnæði
og brýnt að við bætum úr aðstöðu
þessara safna vegna þess að þarna
eru munir sem liggja undir
skemmdum.“
Jón Gunnar Ottósson, forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar,
sagði að gripið hefði verið til ráð-
stafana til að koma í veg fyrir
fleiri slys. „Við erum að setja upp
rakaskynjara á Hlemmi vegna
þess að við erum hrædd um að
lenda í þriðja vatnsslysinu. Við
vonumst til að það komi varanleg
og farsæl lausn úr þessari vinnu
sem er núna í gangi.“
Náttúrusafn ekki úti á land
Fimm nítján ára
einstaklingar voru handteknir í
síðustu viku, grunaðir um fölsun
á nokkrum fimm þúsund króna
seðlum. Lögreglunni í Reykjavík
höfðu borist tilkynningar um
örfáa falsaða seðla sem voru í
umferð og við húsleit hjá fólkinu
fundust um 200 þúsund krónur í
fölsuðum seðlum auk búnaðar til
fölsunarinnar.
Bensínafgreiðslumaður sem
fékk falsaðan seðil í hendur
gerði lögreglu viðvart og
handtók hún tvo menn á staðn-
um. Þrír til viðbótar voru
handteknir við húsleitina. Þung
refsing getur legið við broti sem
þessu.
Fölsuðu um 200
þúsund krónur
Sýslumaðurinn á
Akranesi hefur lokið við rann-
sókn á ætluðum hlerunum á síma
þáverandi
utanríkisráð-
herra, Jóns
Baldvins
Hannibalsson-
ar, og Árna Páls
Árnasonar
starfsmanns í
ráðuneyti hans.
Málið var
sent ríkissak-
sóknara þann 11.
desember síðastliðinn og og í
tilkynningu segir að afskiptum
sýslumannsins á Akranesi að
málinu sé þar með lokið. Rann-
sóknin hófst 16. október og unnu
tveir lögreglumenn að henni
ásamt sýslumanninum. Einnig
voru skýrslur teknar af vitnum í
rannsóknardeild lögreglunnar í
Kópavogi. Þær skýrslur voru
teknar upp á myndbönd og send
til sýslumannsembættisins á
Akranesi.
Rannsókn á
hlerunum lokið