Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 12
Dómstóll í Trípólí í Líbíu sakfelldi í gær fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og palestínskan lækni fyrir að hafa vísvitandi sýkt 400 börn af HIV-veirunni á líbísku sjúkrahúsi fyrir sjö árum, og kvað síðan upp dauðadóma yfir hinum sakfelldu. Aðstandendur hinna alnæmissýktu barna fögnuðu með hrópum í dómsal, en yfirvöld í Búlgaríu fordæmdu dóminn og sögðu líbísk yfirvöld vera að gera hjúkrunarfólkið að blóraböggli fyrir skort á hreinlæti á umræddu sjúkrahúsi. „Guð er mikill!“ hrópaði Moham- med al-Aurabi, faðir eins hinna sýktu barna, um leið og dómarinn hafði lesið upp dómsorðið. „Lengi lifi líbískt réttlæti!“ Yfirvöld í Búlgaríu og talsmenn Evrópusambandsins fordæmdu dóminn umsvifalaust. „Að dæma saklaust fólk til dauða er tilraun til að hylma yfir með hinum raunveru- lega sökudólgum og orsök alnæm- issmitsins [á sjúkrahúsinu] í Beng- azi,“ sagði Georgi Pirinski, forseti Búlgaríuþings. „[Jose Manuel] Barroso, forseti [framkvæmdastjórnar ESB], og framkvæmdastjórnin öll eru hneyksluð á þessum dómi,“ sagði Johannes Laitenberger, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar í Brus- sel. Hann bætti við að ekki hefði að svo komnu máli verið ákveðið hvað sambandið hygðist taka til ráða, en hann „útilokaði ekkert“. Búlgaría fær fulla aðild að ESB nú um ára- mótin. Aðalverjandi sakborninganna, Trayan Markovski frá Búlgaríu, tjáði búlgarska útvarpinu að sak- borningarnir myndu áfrýja dómn- um til hæstaréttar Líbýu. Abdel- Rahman Shalqam, utanríkisráðherra Líbýu, tjáði fréttamönnum að mál- inu yrði sjálfkrafa skotið til hæsta- réttar. Hin langvinnu réttarhöld yfir hjúkrunarfólkinu hafa sett strik í reikning Múammars Gaddafí Líb- íuleiðtoga, sem hefur verið að reyna að bæta tengsl landsins við Evrópu- og Vesturlönd. Stjórnvöld í Evrópulöndum og Bandaríkjun- um hafa skorað á líbísk yfirvöld að sleppa sakborningunum og gefið til kynna að dauðadómurinn muni hafa neikvæð áhrif á tengsl við landið. Shalqam sagði að þegar hæsti- réttur hefði fjallað um málið myndi svonefnt dómsmálaráð fara yfir það, en það hefur vald til að hnekkja dómnum. Sakborningarnir hafa verið í haldi í nærri sjö ár og höfðu þegar verið dæmdir einu sinni til dauða. Fallist var á að rétta í málinu upp á nýtt í kjölfar alþjóðlegra efa- semda um að réttarhaldið hefði verið sanngjarnt. Verjendur sak- borninganna sögðu í gær að í þetta sinn hefði heldur ekki verið hlust- að á vísindalegan vitnisburð um að börnin hefðu smitast áður en hjúkrunarfólkið hóf störf á sjúkra- húsinu. Dauðadómar fordæmdir Líbískur dómstóll dæmdi í gær búlgarskar hjúkrunar- konur og palestínskan lækni til dauða fyrir að hafa smitað 400 börn af HIV-veirunni. Ráðamenn í Evrópu fordæma yfirvöld og segja hin sakfelldu blóraböggla. Fjögur umferðar- óhöpp urðu á hættulegum gatnamótum Akranesvegar og Akrafjallsvegar á Akranesi í gærmorgun. Að sögn lögreglu höfðu verið gerð mistök við viðgerð á veginum sem ollu því að dekk sprungu á fjórum bílum og felgur eyðilögðust þegar þeim var ekið á misfellurnar. Enginn meiddist þó í óhöppunum. Lögreglan lokaði hluta vegarins og hafði samband við Vegagerð. Varðstjóri lögreglunnar á Akranesi sagði ástandið hafa verið stórhættulegt en Vegagerð- in hefði ætlað að gera neyðarúr- bætur á veginum. Dekk og felgur eyðilögðust Tveir menn voru í gær dæmdir til refsingar í Héraðs- dómi Suðurlands fyrir að hafa haft samræði við þrettán ára stúlkubarn. Jafnframt voru þeir dæmdir fyrir brot á fíkniefnalög- gjöfinni. Fyrra kynferðisbrotið átti sér stað á heimili annars mannsins, en þangað fór stúlkan sjálfviljug með honum og þau höfðu sam- ræði. Lögreglan var að rannsaka meint fíkniefnabrot mannsins og hleraði því síma hans. Þar skipt- ust hann og félagi hans á upplýs- ingum um að báðir hefðu haft samræði við stúlkuna með nokk- urra daga millibili. Einnig ræddu þeir umsvif með fíkniefni. Fyrri maðurinn bar að hann hefði ekki vitað að hún væri aðeins þrettán ára. Hann var dæmdur í fjögurra mánaða fang- elsi, skilorðsbundið. Hinn maður- inn var dæmdur í átján mánaða fangelsi og til að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur, auk málsvarnarlauna. Sá síðar- nefndi á umtalsverðan brotaferi að baki, auk þess sem hann var á síðasta ári dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Það skil- orð braut hann nú og var sá dómur tekinn upp og refsing mannsins ákveðin í einu lagi. „Að dæma saklaust fólk til dauða er tilraun til að hylma yfir með hinum raun- verulega sökudólgum og orsök alnæmismitsins í Bengazi“ SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 35 20 0 12 /0 6 McMurdo dúnúlpa frá The North Face Jólatilboð 34.990 kr. til í svörtu, grænu og brúnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.