Fréttablaðið - 20.12.2006, Page 18

Fréttablaðið - 20.12.2006, Page 18
Danski skipverj- inn sem fórst í björgunaraðgerð- unum hét Jan Nordskow Larsen. Hann var 25 ára. Björgunarvesti hans rifnaði og vegna þess hve hann þyngdist þegar flotbún- ingur hans fylltist af vatni gátu félagar hans ekki bjargað lífi hans. Sjö félögum hans af varð- skipinu Triton var bjargað úr sjónum eftir að gúmbát þeirra hvolfdi. Einn var á tímabili í lífshættu vegna ofkælingar hann náði sér fljótt að sögn Sigurjóns Kristinssonar, yfirlæknis á Heilsugæslustöð- inni í Keflavík. . 25 ára skipverji týndi lífi Skipverjar á danska varðskipinu Triton tilkynntu skipstjóranum, Ulf Michael Bettelsen, að utan- borðsmótarar á gúmmíbát þeirra hefðu gefið sig og þeir þyrftu á hjálp að halda hið fyrsta. Skömmu síðar missti Triton talstöðvarsam- band við skipverjana á gúmmí- bátnum. Þetta staðfesti Klaus Randrup, yfirmaður upplýsingamála hjá danska sjóhernum, í samtali við Fréttablaðið í gær en einn skip- verjanna átta, Jan Nordskov Lar- sen, lést eftir að gúmmíbátnum hvolfdi í miklum sjó skammt frá strandstað flutningaskipsins Wil- son Muuga. Skipverjar á Triton verða yfir- heyrðir í dag af starfsmönnum deildar innan danska sjóhersins sem sér um að rannsaka dauðaslys sem verða í aðgerðum sjóhersins. „Tildrög slyssins og málsatvik öll verða rannsökuð af sérstakri deild innan sjóhersins. Menn frá sjóher- num eru væntanlegir til Íslands á morgun [í dag] og þeir munu yfir- heyra skipverja á Triton um atburðarásina sem leiddi til þessa hörmulega slyss. Skipstjórinn [Ulf Michael Bettelsen] mat það svo að áhöfnin á Wilson Muuga væri í hættu vegna leka og tók ákvörðun um að senda skipverja á gúmmí- báti til hjálpar,“ sagði Klaus Randrup. Ulf Michael, skipstjóri á Triton, gaf skipverjunum átta skipun um að halda í áttina að flutningaskip- inu og reyna að bjarga áhöfn skipsins þar sem töluverður leki var farinn að gera vart við sig í vélarrúmi þess. Skipverjunum tókst ekki að komast um borð í flutningaskipið sökum erfiðra aðstæðna. Á leið sinni frá skipinu gáfu utanborðsmótorar bátsins sig og höfðu skipverjarnir þegar sam- band við stjórnhús Triton til þess að kalla eftir hjálp en skömmu síðar rofnaði talstöðvarsambandið milli Triton og bátsins. Eftir að sambandið við gúmmí- bátinn rofnaði standsettu skip- verjar á Triton annan gúmmíbát en ekki tókst að finna hinn bátinn sökum slæms skyggnis og erfiðra aðstæðna. Var í kjölfarið beðið um aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Henni tókst að bjarga sjö af átta skipverjum en Jan Nordskov var eftir í sjónum meðvitundar- laus. Skömmu síðar tókst að ná honum úr sjónum en hann var þá látinn. Utanborðsmótorar á bátnum gáfu sig Átta skipverjar af varðskipinu Triton fengu skipun frá skipstjóra sínum um að fara á gúmmíbáti í átt að Wilson Muuga til hjálpar. Ut- anborðsmótarar gáfu sig í vondu veðri og skyggni. Danski sjóherinn rannsakar hvað olli dauðaslysinu. Íslenskir aðalverktakar hófu vegagerð á slysstað seinnipartinn í gær og var búist við að sú vinna myndi standa í nótt. Stefnt er að því að koma búnaði til að dæla olíunni úr skipinu í fjöruna í dag og hefja dælingu upp úr skipinu. Svartolían er þykk og erfið að dæla og eru um 125 tonn af henni, mun meira magn en af hráolí- unni, sem er aðeins 25 tonn. Olían er neðst í skipinu. Þunnar slöng- ur þarf að nota við dælinguna því að olíunni verður dælt um langa leið beint úr skipinu í land ef allt fer að óskum. Stefán Einarsson, fagstjóri hjá Umhverfisstofnun, og Gest- ur Guðjónsson, sérfræðingur hjá Olíudreifingu, komu á strandstað í gærmorgun til að fylgjast með björgunaraðgerðum frá sjónar- miði umhverfismála. „Við ætlum að bíða og sjá hvort skipið verð- ur kyrrt á strandstað,“ sögðu þeir. „Ef skipið leggst á hliðina getur hætta verið á ferð,“ sagði Gestur. „Það er ekkert hægt að gera nema undirbúa dælingu. Ef skipið hangir kyrrt í nótt verður hægt að reyna að dæla. Við erum að koma með slöngur, dælur, raf- stöðvar og önnur tæki til að koma olíunni í land.“ Stefnt að því að dæla upp úr skipinu Reynir Sveinsson, slökkviliðsstjóri í Sand- gerði, segir að ekki verði hægt að hreinsa olí- una ef hún fer í sjóinn á slysstað, eins og allt benti til að myndi gerast í gærkvöldi, þar sem svo mikið brim sé á þessum stað. Hann taldi að eins og hálfs metra gat hefði komið á skipið. „Hráolía gufar fljótlega upp en það er verra með svartolíuna. Allar fjörur hér eru friðaðar og hér er merkilegt fuglalíf. Hér aðeins norðar er æðarvarp, stærsta æðarvarpið á suðvestur- horni landsins,“ sagði hann. Reynir kom á strandstað í gær til að fylgj- ast með umhverfismálunum. Hann sagði strandið slæmt en nauðsynlegt væri að safna búnaði til að dæla olíunni frá borði. „Við verð- um að vera tilbúnir ef eitthvað kemur upp á. Ef olía fer í sjóinn er það vandamál Sandgerð- isbæjar,“ sagði hann. Reynir taldi aðstæður afar slæmar til meng- unarvarna, bæði var veður slæmt og spáin ekki góð í gærkvöld. Þá er „alltaf brim á þessum stað, það yrði að vera logn ef við ættum að koma girðingu kringum mengunarblett,“ sagði hann og taldi ekki líklegt að það myndi takast. Reynir benti á að Wilson Muuga hefði „straujað yfir“ sker á stað þar sem er bæði grjót og grynningar og brimar langt út fyrir strandstaðinn. „Þetta lofar ekki góðu en auð- vitað á maður aldrei að segja aldrei.“ Guðmundur Ásgeirsson, stjórnar- formaður Nesskipa, var á strand- stað flutningaskipsins Wilson Muuga í allan gærdag, fylgdist með björgunaraðgerðum og tók á móti skipverjum þegar þeir komu úr þyrlunni eftir hádegið. Mátti meðal annars sjá hann faðma yfirvélstjórann skömmu áður en hann steig upp í bíl björgunarsveitarinnar Sigurvonar. Guðmundur var fáorður um strandið en hafði eftir skipstjóra að sjálfstýring skipsins hefði bilað, handstýring hefði ekki geng- ið nógu vel og skipið hefði steytt á skeri upp úr fjögur í gærmorgun. Wilson Muuga hefur verið í eigu Nesskipa frá 1979. Það hét áður Selnes.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.