Fréttablaðið - 20.12.2006, Síða 34
Söngkonan Hera Hjartardóttir
hefur búið á Nýja-Sjálandi í 13
ár og á þeim tíma hefur hún
haldið nokkur jól á Íslandi og
nokkur ytra. Nú verður hún
ytra.
Tölvutæknin kom að góðum
notum við gerð viðtalsins við
Heru. Hún fékk sendar til sín
nokkrar spurningar yfir hnöttinn
og svaraði þeim skilmerkilega.
Fyrsta spurning var einfaldlega:
-Hvernig er jólahaldið þarna á
Nýja-Sjálandi?
„Hér hefst hátíðin að morgni
25. desember í hásumarhita. Við
borðum yfirleitt úti í garði og
byrjum morguninn á köldu
kampavíni með jarðarberjum í.“
-Það er aldeilis. Eru ávextir á
trjánum í kringum þig?
„Já alls konar. Hér í garðinum
erum við með kirsuberjatré sem
er akkúrat með fullþroskuð kirsu-
ber á jólunum. Einnig eru hér
limetré, kaffir-limetré, sítrónu-
tré, plómutré og eplatré. Svo
erum við nýbúin að setja niður
stóran grænmetisgarð og erum
með bláber, trönuber, jarðarber,
tómata, gúrkur, chilli, spínat, rad-
ísur, salat, brokkolí, gult cour-
gette, rauðkál, rauðrófur, gulræt-
ur og kartöflur. Annars staðar í
garðinum settum við svo niður
kryddjurtagarð.“
-En eruð þið með grenitré inni
sem jólatré?
„Já, eitt lítið í potti. Við setjum
það síðan út í garð þangað til um
næstu jól.“
-Haldið þið í íslenska jólasiði?
„Já, við sjóðum rauðkál eins
og við gerðum heima. Við förum í
skötupartí á Þorláksmessu og
jólaboð á aðfangadag. Þar hittum
við nokkra aðra Íslendinga sem
búa hér. Svo koma íslensku jóla-
sveinarnir stundum í heimsókn.“
-Fáið þið einhvern íslenskan
mat að heiman?
„Við vorum að fá laufabrauð í
póstinum! Það er í fyrsta skipti.
Annars höfum við fengið sent
nammi og harðfisk.“
-En ferðu á strönd á jólunum?
„Já, á „boxingday“ - sem er 26.
desember er hefðin sú að fara á
strönd sem heitir Tumbledown
bay. Þar hittumst við 50-60 manns
með jólamatarafganga og höldum
„pikknikk“. Síðan köfum við eftir
paua-skeljum og fiskum og grill-
um veiðina á ströndinni. Síðasta
„boxingday“ var ég á Íslandi en þá
rakst mamma mín á hóp af höfr-
ungum þegar hún var ein að
synda.“
Hvað er að gerast hjá þér í
söngnum á næstunni?
„Ég er með tónleika í kvöld,
(17. desember) og útitónleika þann
23. í bænum. Svo eru margar sum-
arhátíðir í janúar og febrúar og
mikið að gera. Hinn 18. janúar
byrjar hér World Buskers festival
en þá koma götulistamenn alls
staðar að úr heiminum og eru hér
í tíu daga með ótrúlegustu atriði
úti um allan bæ. Auk þess er ég á
leiðinni til Austin í Texas í mars að
spila á SXSW (South by South-
west) music festival. Það er ein
stærsta tónlistarhátíð í heimin-
um.“
-Til hamingju með það. En hve-
nær er von á þér hingað heim?
„Það er aldrei að vita, en ég
held ég verði tvenn jól í röð hérna
megin.“
Vorum að fá laufabrauð
í pósti að heiman
Færeyingar eru þekktir fyrir
skerpukjötið sitt sem þykir
mjög sérstakt þar sem það er
vindþurrkað. Skerpukjöt er þó
auðveldlega hægt að gera í ofni
og verður það þá mjög gott og
alveg tilvalið á jólahlaðborðið
eða sem snakk á áramótum.
Best er að láta lærið þiðna í
ísskáp í þrjá til fjóra sólarhringa
ef tími er til. Eftir að lærið er
orðið þítt er það nuddað með salti
og sykurblöndu og látið standa í
sólarhring í viðbót í ísskáp. Þegar
því er lokið er lærið skolað og lagt
í pækil í tvo til þrjá sólarhringa í
ísskáp. Lærið er síðan sett í hundr-
að gráðu heitan ofn og látið vera
þar í tíu til fjórtán tíma eftir stærð
þess. Að lokum er lærið látið kólna
og borið fram kalt.
Að færeyskum sið
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI