Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 39
Minni hagvöxtur | Á þriðja árs- fjórðungi mældist hagvöxtur 0,8 prósent og hefur ekki verið minni síðan í árslok. Á þriðja ársfjórð- ungi í fyrra var hagvöxturinn 10,0 prósent. CCP útskrifað | CCP verður útskrifað úr samtökum sprota- fyrirtækja eftir að velta félags- ins fór yfir einn milljarð króna á þessu ári. Sprotafyrirtæki eru skilgreind svo ef velta þeirra er undir einum milljarði króna. Icelandair skráð | Icelandair Group Holding hf. var skráð í Kauphöll Íslands á fimmtudag, fyrst íslenskra félaga eftir að hún varð hluti af OMX-kauphöllun- um. Heildarhlutafé félagsins er 1.000.000.000. Úr Straumi | Straumur-Burðarás, Samvinnutryggingar og aðrir fjárfestar kaupa 22,6 prósenta hlut í Straumi-Burðarási af FL Group fyrir 42 milljarða króna. FL Group fær í staðinn peninga og hlutabréf í Finnair. Stefnunni haldið | Björgólfur Thor Björgólfsson telur að kaup Straums og fleiri fjárfesta á bréf- um FL Group í Straumi breyti ekki miklu í því sem snýr að starf- semi Straums. Nýr banki | Fjárfestingarbankinn Askar Capital hefur starfsemi um næstu áramót. Milestone er kjölfestufjárfestir í bankanum og Tryggvi Þór Herbertsson verður forstjóri. Minni velta | Kreditkortavelta í nóvember var tæplega 21 millj- arður króna og jókst hún um 3,5 prósent milli mánaða. Það gefur vísbendingu um að enn hægi á vexti einkaneyslu. Askar Capital Finna sér markaðssyllur 18 CCP Slær félögum í Kauphöllinni við 3 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Stýrivextir Seðlabankans Sér fyrir endann á hækkunarferlinu 10-11 Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Viðbúið er að Þorláksmessa verði langstærsti dagur í íslenskri smásölu frá því að land byggðist. Kemur það fyrst og fremst til af tvennu. Í fyrsta lagi því að umsvifin í þjóðfélaginu hafa aukist. Í öðru lagi vegna þess að Þorláksmessu ber upp á laugardag. Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, segir að gera megi ráð fyrir að þann dag muni neyt- endur eyða allt frá þremur til fjórum milljörðum króna á landsvísu. Til samanburðar mun sala síðast- liðinn laugardag á landinu öllu hafa numið um 1,5 til tveimur milljörðum króna. Þunginn í jólaversluninni virðist hafa farið nokk- uð seinna af stað en í fyrra. Meðal annars vegna þess að bæði Kringlan og Smáralind fóru viku seinna af stað með að hafa opið til tíu á kvöldin í ár heldur en í fyrra. Síðasta laugardag nam söluaukning í Smáralind um 30 til 35 prósentum miðað við í fyrra. Þann daginn lögðu rúmlega þrjátíu þúsund gestir leið sína í verslunarmiðstöðina. Þar á bæ er gert ráð fyrir að velta jólasölunnar verði um fimmtán pró- sentum meiri í ár en í fyrra, án þess að tillit sé tekið til fjölgunar verslana. Nýbirtar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu á þriðja ársfjórðungi sýndu að einkaneysla jókst um tvö prósent að raunvirði frá sama fjórðungi í fyrra sem er minnsti vöxtur í fjögur ár. Ýmsar aðrar vís- bendingar hafa jafnframt komið fram sem benda til þess að einkaneysla sé að dragast saman, svo sem minni aukning smásölu á fjórða ársfjórðungi og minni kortavelta í nóvember. Pálmi segir að sé sam- dráttar farið að gæta í einkaneyslunni verði þess alls ekki vart í jólasölunni ár. „Fjölmargar verslanir hjá okkur hafa slegið met, jafnvel dag eftir dag. Stærri verslanirnar ná aldrei jafnmikilli aukningu og þær smærri, sem dregur niður heildaraukninguna, en þorri verslana hjá okkur er að ná 20 til 30 prósenta aukningu. Ég hef jafnvel heyrt í mörgum kaupmönn- um sem eru með 40 til 60 prósenta söluaukningu það sem af er desember.“ Íslandsmet í smásölu slegið á Þorláksmessu Þrátt fyrir að einkaneysla fari minnkandi gætir ekki sam- dráttar í jólagjafainnkaupum. Kaupmenn Smáralindar hafa slegið hvert sölumetið á fætur öðru undanfarna daga. Flestir bankar og sparisjóðir veita mótframlag eða gefa gjafir við stofnun framtíðarreikninga fyrir börn og ungmenni nú fyrir jólin. Framlag í peningum liggur á bil- inu 2.000 til 2.500 krónur. Framtíðarreikningar eru verð- tryggðir innlánsreikningar sem eru almennt bundnir til átján ára aldurs reikningseiganda. SPRON veitir tvö þúsund króna framlag við stofnun nýs framtíð- arreiknings sem er óháð fram- lagi þess sem stofnar reikninginn. Þannig getur nýr eigandi fengið tvö þúsund krónur inn á bók án þess að nokkurt mótframlag komi til. Kaupþing veitir 2.500 króna mótframlag við stofnun nýs fram- tíðarreiknings gegn því skilyrði að lagðar séu inn fimm þúsund krónur. Eigandi reikningsins fær því fimmtíu prósenta ávöxtun í einu vetfangi miðað við lágmarks- innlögn. Sparisjóðirnir leggja fram tvö þúsund krónur á móti fimm þúsund krónum þess sem leggur. Þetta er óháð því hvort um nýjan eða eldri reikningseiganda sé að ræða. Reikningseigandinn fær því fjörutíu prósenta ávöxtun. Hjá Glitni fengust þær upp- lýsingar að við stofnun framtíð- arreiknings fengi reikningseig- andi Latabæjardót. Fimm þúsund króna mótframlag fæst ef lagðar eru inn eitt þúsund krónur á mán- uði í hálft ár. Landsbankinn er eini viðskipta- bankinn sem býður ekki mótfram- lag eða gjöf við stofnun framtíðar- reiknings um þessi jólin. - eþa Börnin græða á bönkum fyrir jólin Nýleg skuldabréfaútgáfa Straums-Burðaráss Fjárfestinga- banka upp á 200 milljónir evra er með stækkunarmöguleika upp í 1,6 milljarða evra, eða sem nemur 144 milljörðum íslenskra króna. Gengið var frá útgáfunni, sem er til fimm ára, í lok síðasta mánaðar, en hún er í gegn um svokallaðan CLO lánaramma (collateralized loan obligations) og eyrnamerkt ákveðnum fjárfestingum sem auka munu vaxtatekjur bankans. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar Straums-Burðaráss, segir útgáfu af þessum toga hjálpa til á þeirri leið félagsins að breytast úr fjárfestingarfélagi yfir í fjárfestingabanka sem byggi á annars konar tekjustoðum. Sjá síðu 8 / - óká Geta áttfaldað CLO-útgáfuna Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan desember, er 356,3 stig og hækk- ar um 0,31 prósent frá því í nóv- ember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 12,5 prósent. Árið 2006 var vísitala byggingarkostnaðar að meðaltali um 8,6 prósentum hærri en árið 2005. Byggingarvísitalan mælir breytingar á kostnaði við bygg- ingu húss skilgreint á mjög nákvæman hátt, allt frá kostnaði á skrúfum og boltum til vinnunn- ar sem fer í húsið. Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, sérfræðingur á vísitöludeild Hagstofu Íslands, segir mikla hækkun vísitölunnar á árinu koma til vegna þess að bæði laun og efniskostnaður hafi hækkað mikið. Hækkunin í desember kemur fyrst og fremst til vegna efnisliða sem hafa hækkað um 0,7 prósent milli mánaða. Munar þar mest um hækkun á pípulagn- ingaefni upp á 2,7 prósent. - hhs Sífellt dýrara að byggja
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.