Fréttablaðið - 20.12.2006, Side 40

Fréttablaðið - 20.12.2006, Side 40
MARKAÐURINN 20. DESEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá áramótum 365 9% -18% Actavis -2% 31% Alfesca 0% 25% Atlantic Petroleum -1% 26% Atorka Group 1% 3% Bakkavör -2% 21% FL Group 2% 28% Glitnir -1% 35% Hf. Eimskipafélagið -1% -32% KB banki 0% 13% Landsbankinn 1% 7% Marel 1% 19% Mosaic Fashions -1% -14% Straumur 1% 11% Össur 1% 0% Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn Gengi hlutabréfa í sænsku ferðaskrif- stofukeðjunni Ticket, sem er að þrjátíu pró- sent hluta í eigu Fons, hækkaði um fimmtung í verði á föstudaginn án sýnilegra ástæðna. Á vefsíðu Dagens Industri kemur fram að Kauphöllin í Stokkhólmi muni kanna hvort upplýsingar hafi lekið út frá fyr- irtækinu sem skýri gengishækk- anir föstudagins. Stjórnendur Ticket brugðust við hækkunum með því að upp- lýsa markaðinn um að félagið væri að ganga frá kaupum á Kilroy Travels, ferðaskrifstofu- keðju sem er með starfsemi í fimm löndum. Ef af kaupunum verður er um aðra yfirtöku Ticket að ræða á skömmum tíma, en fyrirtækið keypti samkeppnisað- ilann MZ Travel í nóv- ember. Forsvarsmenn Ticket höfðu lýst því yfir að fleiri ónafn- greind fyrirtæki væru í sigtinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðins er ekki talið ólík- legt að hækkanir föstudagsins skýrist af því að þeir starfsmenn MZ Travel, sem áttu hlutabréf í félaginu, fengu greitt fyrir hluti sína á föstudaginn. Munu margir þeirra hafa nýtt þá fjármuni til að fjárfesta í Ticket. - eþa Svíarnir skoða hækkanir í Ticket Starfsmenn í MZ Travel keyptu í Ticket Hinn 3. janúar næstkomandi mun isec, hliðarmarkaður Kauphallarinnar á Íslandi, sam- einast First North, sem er hlið- armarkaður OMX. Markaðurinn veitir smáum fyrirtækjum í vexti aðgang að norrænum og alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Eftir inngöngu íslenskra félaga í First North mun markaðurinn bjóða upp á skráningu og viðskipti með hlutabréf í íslenskum, sænskum, og dönskum krónum og evrum. Félögin verða svo hluti af heild- arvísitölu First North sem einnig verður birt í íslenskum krónum. Haft er eftir Þórði Frið- jónssyni, forstjóra Kauphallar Íslands, í tilkynningu að First North muni veita smáum íslensk- um fyrirtækjum í vexti aðgang að stærsta veltusjóði Evrópu sem og aukinn sýnileika meðal fjárfesta. „First Norht er næst- stærsti hliðarmarkaður Evrópu ef gengið er út frá fjölda fyrir- tækja. Við teljum að First North veiti fyrirtækjum sem íhuga að fara á markað mikla mögu- leika.“ Fleiri breytinga er að vænta á íslenskum hlutabréfamarkaði sem koma í kjölfar þess að OMX- kauphallirnar tóku Kauphöll Íslands yfir í október á þessu ári. Frá og með 2. apríl 2007 verða þannig fyrirtækin 25, sem skráð eru í Nordic Exchange á Íslandi, hluti af samnorrænni kynningu sænskra, finnskra og danskra fyrirtækja á skrá og norrænum vísitölum OMX. Að auki munu þau lúta samræmdum norræn- um skráningarskilyrðum. - hhs isec breytist í First North Markaðsaðstæður í smásölu halda áfram að vera erfiðar í Bretlandi. Mitt í jólaösinni dróst verslun saman um tvö prósent um síðustu helgi samanborið við sömu helgi árið áður. Smásalar í fatnaði, skóm og afþreyingarvörum á borð við tón- list og kvikmyndir hafa orðið illa fyrir barðinu á aðstæðum en sölu- aukning hefur aftur á móti orðið á matvörum og skart- gripum. „Neytendur vita að þeir geta beðið af því að smásalar verða að eiga við- skipti. Þar af leiðandi bíða þeir ró- legir þar til smásalar lækka verðið niður í það sem er neytendum að skapi,“ segir Tim Denilson, hjá rannsóknarfyrirtækinu SPSL, í samtali við Independent. Sumar verslanakeðjur við bresku verslunargöturnar hafa orðið að veita allt að helmingsafslátt af vörum fyrir jólin. Að sögn sérfræðinga er klárt mál að annaðhvort muni verslanir standa uppi sem sigurvegarar eða tapa miklu á jólasölunni. Marks & Spencer er dæmi um fyr- irtæki sem hefur tekist að halda framlegð hárri við þær aðstæður er nú ríkja. Kvenfatakeðjan Whistles, sem er eitt af merkjum Mosaic Fashions, hefur hins vegar orðið að bjóða upp á allt að helmingsafslátt af upp- settu verði. Mosaic hefur öfluga skórvörulínu eftir kaupin á Rubicon Retail og ættu núverandi aðstæður að koma sér illa fyrir félagið. Könnun ráðgjafafyrirtækisins Ernst og Young leiddi það í ljós að meðalafsláttur á verslunargötunum er fimm prósentum meiri í ár en í fyrra. - eþa Sölutregða á skóm í Bretlandi Singer & Friedlander, sem er í eigu Kaupþings, og Barclays hafa fjármagnað 6,5 milljarðs skuldsetta yfirtöku á verkfræði- fyrirtækinu WFEL sem framleið- ir brýr til að nota í hernaði. Kaupendur eru fjárfestingasjóð- urinn Dunedin Capital Partners, sem tekur meirihluta, og stjórn- endur WFEL. Meðal viðskiptavina félagsins eru breski og bandaríski her- inn. WFEL framleiðir álbrýr sem eru notaðar í stað þeirra brúa sem hörfandi andstæðingar hafa sprengt í loft upp. - eþa Singer lánar í herframleiðslu Óli Kristján Ármannsson skrifar Ekki virðast í bráð uppi ráðagerðir hjá stóru við- skiptabönkunum að færa bókhald sitt yfir í evrur líkt og Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur upplýst um að hann ætli að gera um áramót. Málið hefur þó verið rætt og er til stöðugrar end- urskoðunar bæði í Landsbankanum og Glitni. Kaupþing kýs hins vegar að tjá sig ekki um málið. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis banka, gerir ráð fyrir að Straumur- Burðarás meti stöðuna svo að breyting- in auðveldi bankanum aðgang að fjár- festum eða þetta styðji við þeirra framtíð- aráform. „Hjá Glitni höfum við farið þá leið til að minnka áhættuna af sveiflum í krónunni að gefa út bæði eiginfjárígildi og víkjandi lán í erlendum myntum, aðallega evrum og dollar,“ segir hann og bendir á að meirihluti rekstrarkostnaðar Glitnis sé hér á landi og ekki tímabært að færa uppgjörið í aðra mynt. „En samhliða aukinn alþjóðavæðingu hljóta svona mál alltaf að vera til skoðunar.“ Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, segir gott eitt að segja um ákvörðun Straums-Burðaráss. „Eins og fram kom hjá þeim stefnir félagið fyrst og fremst að þátttöku í erlend- um verkefnum og erlendar eignir eru sterkur þáttur í starfsemi þeirra,“ segir hann og bætir við að ávallt verði áleitið eftir því sem tiltekin erlend mynt vegi þyngst í starfsemi fyrirtækis að gera félagið upp í henni. Hann bendir á að samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilareglum sé við tiltekin skilyrði ekki bara heimilt heldur rétt að taka upp reikningsskil í þeirri mynt sem telst vera starf- semismynt viðkomandi fyrirtækis. Þar sé fyrst og fremst horft til samsetningar tekna og gjalda. „Þá hygg ég að þetta hafi verið nú verið rætt í stjórn- um flestra fyrirtækja,“ segir Halldór, en kveður enga nýja umræðu um málið í Landsbankanum. Þá segist hann ekki geta tjáð sig um það hvort uppgjör í evrum sé vænleg leið fyrir Landsbankann, enda bankinn bundinn tilkynningaskyldu varðandi slíkar ákvarðanir. Sömuleiðis segir Sigurður Einarsson, stjórnar- formaður Kaupþings banka, að þar á bæ kjósi menn að tjá sig ekki um vænleika þess að færa upp- gjör fyrirtækisins yfir í evrur. „Stærstu fjármálafyrirtæki landsins hafa meirihluta sinna tekna í erlendri mynt og þess vegna mjög eðlilegt að þau skoði þessa möguleika,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka banka og verðbréfafyr- irtækja. „Kannski má segja að tímaspurs- mál hafi verið hver yrði fyrstur til að stíga þetta skref.“ Guðjón segir ákvörðunina hins vegar liggja hjá bönkunum og vandi um að spá hvort fleiri fylgi í kjölfarið. Hann segir mestu skipta að starfsumhverfi fjármálafyrirtækja hér sé með þeim hætti að fyrirtækin kjósi að hafa höfuðstöðv- ar sínar hér og greiði hér skatta og skyldur, minna máli skipti í hvaða mynt þau geri upp. „Þetta er bara þróun sem er að eiga sér stað.“ Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir Straum-Burðarás fara leið sem honum er heimil og allmörg stór og meðalstór fyrirtæki í milliríkjaviðskiptum hafi þegar gert. Hann varar hins vegar við því að of víðtækjar séu dregnar af ákvörðun bankans enda „Hér er um fjárfestinga- banka að ræða og áhrif þessarar ákvörðunar ráðast af því hver verði viðbrögð helstu viðskiptaaðila bankans. Ef það eru fyrirtæki sem sjálf gera upp í evru breytir þetta augljóslega litlu eða engu. Ástæðulaust er að gera of mikið úr áhrifum þessa því þetta er fjárfestingabanki sem gegnir sértæku hlutverki á markaði og þar af leiðandi ekki sam- bærilegur við önnur fyrirtæki sem gegna almenn- ara og víðtækara hlutverki.“ Tímaspursmál hvaða banki yrði fyrstur Glitnir segir ekki tímabært að færa bókhald bankans í evrur. Hinir bankarnir gefa ekki upp næstu skref. Ráðherra segir ástæðulaust að gera of mikið úr ákvörðun Straums-Burðaráss.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.