Fréttablaðið - 20.12.2006, Síða 46
MARKAÐURINN 20. DESEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Straumur-Burðarás var fjárfestingarfé-
lag en er nú fjárfestingabanki. Að slíkri
umbreytingu er ekki hlaupið, en meðal
annars þarf Straumur að fjölga tekjustofn-
um sínum. Í lok síðasta mánaðar tók bank-
inn meðal annars stórt skref í þá átt með
útgáfu 200 milljóna evra (yfir 18 milljarða
króna) skuldabréfs í gegnum svokallað-
an CLO lánaramma (collateralized loan
obligations) á alþjóðlegum lánamarkaði.
Útgáfan er með stækkunarmöguleika upp
í 1,6 milljarða evra (eða yfir 144 milljarða
íslenskra króna). Skuldabréfið er til fimm
ára og er ætlað að styrkja þátttöku bank-
ans á alþjóðlegum sambankalánamarkaði
um leið því er ætlað að auka enn frekar á
hlutdeild vaxtaberandi eigna bankans.
TEKJUSAMSETNINGU GJÖRBREYTT
„Straumur er auðvitað mjög ungur banki
og það sem fyrst og fremst greinir okkur
frá hinum er hversu litla sögu við eigum,“
segir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir,
framkvæmdastjóri fjárstýringar
Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka.
Hún segir ungan aldur bankans bæði vera
kost og ókost þegar kemur að fjármögnun
hans, því lánveitendur horfi vitanlega
fyrst og fremst til gengis og sögu fjár-
málastofnana áður en tekin er ákvörðun
um hvort eigi að lána þeim.
„Hjá okkur skiptir mestu að við erum
að færa félagið frá því að vera fjár-
festingafélag yfir í það að vera banki.“
Svanhildur bendir á að árið 2005 hafi
Straumur varla verið með nokkrar vaxta-
tekjur og mjög litlar þóknunartekjur, en
þessir þættir vega mun þyngra í innkomu
hinna bankanna. „Tekjurnar voru meira
og minna hagnaður af hlutabréfaeign,
sem við sem starfsmenn komum lítið að.
Við þurfum hins vegar að sannfæra menn
um þá framtíðarsýn okkar að ætla árið
2008 að vera komin í þá tekjusamsetn-
ingu að við verðum með helming tekna
okkar af gengishagnaði af hlutabréfum
og fjórðung og fjórðung af hinum stólpun-
um, vaxtatekjum og þjónustugjöldum. Nú
þegar erum við komin fram úr áætlunum
okkar hvað varðar tekjur úr öðrum ein-
ingum. Á þetta horfa menn þegar kemur
að fjármögnun og er þegar farið að telja,
því þeir sjá mjög hraðan viðsnúning í
viðskiptamódeli okkar og eru því mun
áhugasamari um að koma inn.“
Óvíða finnast á Norðurlöndum bankar
sem verið er að byggja upp frá grunni líkt
og Straum-Burðarás, hvað þá að þeir séu
á jafnskömmum tíma orðnir jafnþekkt
nafn í viðskiptaheiminum. „Fólk er farið
að taka eftir bankanum og þekkir hann,
til dæmis í Danmörku og á alþjóðleg-
um fjármögnunarmörkuðum og hann er
þriggja ára gamall,“ segir Svanhildur og
bætir við að miklu skipti hversu hratt
umskiptin frá fjárfestingarfélagi yfir í
banka geti átt sér stað. „Þegar tekið er
fjárfestingarfélag þar sem hlutfall hluta-
bréfaeignar er mun hærra en í bönkunum
og sett á það bankaleyfi er spurningin
hversu hratt er hægt að ná þeirri gírun
sem hinir bankarnir eru með, það er að
segja að nota eigið fé bankans og það
tekst ekki nema með því að draga að fjár-
magn. Ég held ég fari rétt með að gírun
okkar sé þreföld meðan hún er svona tólf-
föld hjá Kaupþingi banka. Og við náum
ekki að gíra tólffalt nema að einhver
sé tilbúinn að lána okkur. Til þess að fá
hærri lánshæfiseinkunn þarf að byggja
upp eignir sem gefa hærri vaxtatekjur
og til að búa til vaxtatekjur þarf fjár-
mögnun.“ CLO skuldabréfaútgáfan er svo
aftur tæki sem hjálpar bankanum að auka
hlutdeild vaxtatekna hjá sér þar sem hún
er að segja má frístandandi fjármögnun-
artæki á ákveðnar eignir meðan áhætta
bankans hefur ekki áhrif á fjármögnunar-
kostnaðinn. „Í þeirri einingu náum við að
lækka mjög fjármögnunarkostnaðinn og
getum á móti fjárfest í lánum sem gefa
okkur góðar vaxtatekjur. Segja má að
með þessu sé rofinn þessi vítahringur því
áhættuprófíllinn sem er á Straumi hefur
ekki áhrif á fjármögnunina, en tekjur og
annað af henni kemur inn á rekstrar- og
efnahagsreikning bankans.“
EINKUNNIN SKIPTIR HÖFUÐMÁLI
Fyrir um það bil ári, þegar Svanhildur
kom til starfa hjá Straumi-Burðarási, var
bankinn að mestu fjármagnaður á íslensk-
um markaði. „Það var þá fjármögnun frá
hinum bönkunum og svo almenn skulda-
bréfaútgáfa til lífeyrissjóða og annarra
sjóða. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra nam
innlend fjármögnun 84 prósentum, en
stendur núna í um 40 prósentum,“ segir
Svanhildur og kveður Straum-Burðarás
orðinn óháðan íslensku bönkunum. „Við
viljum halda áfram á þeirri braut að auka
þátttöku erlendra aðila í fjármögnun
okkar.“
Stærsta skref bankans inn á erlenda
markaðinn segir Svanhildur hafa verið
200 milljóna evra lán sem gengið var
frá í desember í fyrra, en að auki hafi
bankinn verið með skuldabréfaútgáfu í
Bandaríkjunum fyrir utan minni samninga
sem saman kunni þó að vega þyngra í fjár-
mögnuninni en þeir stærri. „Svo komum
við að þessari CLO útgáfu í síðasta mán-
uði,“ segir hún og þakkar árangur bankans
við að auka tekjusköpun í öðrum þáttum
en af hlutabréfum ekki síst því að í nýju
mati matsfyrirtækisins Fitch Ratings er
því gefið undir fótinn að brátt gæti komið
að því að uppfæra lánshæfismat bankans
og gefa honum hærri einkunn. Einkunnin
skiptir fjármálafyrirtæki miklu máli því
hún ræður miklu um á hvaða kjörum þau
ná að fjármagna sig. „Uppfærsla í einkunn
og svona hratt myndi skipta okkur alveg
gífurlegu máli í fjármögnunni,“ segir
Svanhildur og bætir við að þarna megi
merkja afraksturinn af þeirri áherslu sem
bankinn hafi lagt á fjármögnunarhliðina í
starfseminni.
„Við erum örugglega með fjölmennasta
fjármögnunarliðið þótt við séum minnsti
bankinn, sem ræðst náttúrlega af því að
við erum með þá einingu sem erfiðast
er að fjármagna. Við erum með veikasta
lánshæfismatið og hvernig getum við þá
byggt upp það traust sem til þarf hjá
okkar fjárfestum? Við gerum það með
því að mæta til þeirra ársfjórðungslega,
í hvert sinn sem tölur hafa komið út og
setjum í forgang þá sem hafa sett peninga
í starfsemina. Um leið og eitthvað nýtt
gerist, tilkynning kemur í Kauphöllina,
hvort sem það er jákvætt eða neikvætt,
þá tölum við við fólk, útskýrum málin og
að hverju er verið að stefna.“ Þarna segist
Svana telja að Straumur-Burðarás sé kom-
inn skrefi á undan hinum bönkunum í að
byggja upp það sem kallast credit investor
relations eða lánardrottnatengsl á alþjóð-
legum mörkuðum. „Þetta er það sem dríf-
ur okkur áfram og gerir að verkum að í
okkar hóp er komin þessi fjölbreytni og
alþjóðlegu fjárfestar.“
ÁHERSLA Á FÓLK OG TRAUST
Svanhildur segir núna verða byggt á þeirri
miklu vinnu sem þegar hafi verið lagt í við
að byggja upp tengsl við fjárfesta. Hún
segir búið að vinna lista með yfir 300
fjárfestum sem margir hverjir séu komn-
ir til liðs við bankann í smærri og stærri
stíl. „Hugsanlega á svo um helmingurinn
eftir að koma inn. Þeir hafa sýnt því
áhuga og farið lengra með það, en eru að
bíða eftir heilsárstölunum frá okkur fyrir
2006. Því ef horft er raunhæft á þessa
mynd þá á sameinað félag Straums og
Burðaráss ekki einu sinni tölur fyrir heilt
ár. En í þessu skiptir það töluverðu máli.“
Svanhildur segir að hjá bankanum sjái þau
því fram á, að því gefnu að árangurinn
verði jafngóður áfram, að næsta ár verði
mjög gott. Hún telur að á næsta ári komi
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki til
með að sjá afrakstur erfiðis síns og taki að
uppskera eftir gott ár. „Núna vilja menn
bara fara að sjá tölurnar fyrir 2006 og við
erum búin að tryggja okkur stóra fjár-
mögnun í janúar sem við erum að vinna
í að bæta við. Svo ætlum við aftur inn á
Bandaríkjamarkað þar sem við höfum
unnið mikið undanfarið um leið og við
nýtum til fulls önnur tækifæri.“
Markmið Straums-Burðaráss hvað
varðar lánshæfiseinkunn er að hún fær-
ist úr því að vera BBB- í að vera BBB+.
„Það er þá tveimur punktum fyrir ofan
það sem nú er, en fer alveg eftir því
hvernig okkur gengur og hversu langan
tíma tekur að ná þessu marki. Ef þetta
heldur svona áfram ættum við alveg að
geta gert þetta á næstu fimm árum.“
Einhverjum kann að þykja þarna langur
tími, en hann er í raun örskammur þegar
kemur að þróun fjármálafyrirtækja. „Ég
held að íslensku bankarnir hafi örugglega
hækkað sitt lánshæfismat einna hraðast,
einfaldlega vegna þeirra miklu breytinga
sem hér hafa átt sér stað. En annars stað-
ar gerast hlutirnir ekki svona hratt. Ég
held að matið hafi varla breyst hjá öðrum
bönkum á Norðurlöndum.“ Mikið umrót
hér segir Svanhildur að hafi líka kallað
á aukna athygli á alþjóðamörkuðum og
það ekki alla jákvæða, líkt og sýndi sig
í byrjun þessa árs með afar neikvæðum
skrifum erlendra greiningardeilda um
íslenskt efnahagslíf og vangaveltum um
stöðu bankanna. „En þar höfum við bara
verk að vinna og okkar er að vinna vel
úr þeirri athygli sem við fáum. Í dag eru
menn alltaf tilbúnir að hitta okkur, hrein-
lega til að forvitnast um hvað sé að gerast
og það höfum við í raun getað nýtt okkur
á þessu ári. Bransinn snýst um fólk og
traust og það hefur okkur tekist að byggja
upp í slíkum heimsóknum.“
Minnsti bankinn er samt
með stærsta fjármögnunarliðið
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki er fyrirtæki í örum vexti. Ekki er hlaupið að því að breyta fjár-
festingarsjóði í banka, en eins og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar
bankans, útskýrði fyrir Óla Kristjáni Ármannssyni. Bankastarfsemi byggist á trausti, sem yngri fyrir-
tæki eiga náttúrlega eftir að vinna sér inn. Straumur-Burðarás lætur það þó ekki aftra sér.