Fréttablaðið - 03.01.2007, Qupperneq 6
Forsætisráðherra Sómalíu sagði í gær
að hann byggist ekki við neinum frekari stórátökum
við skæruliða herskárra múslima og talsmenn
Eþíópíuhers, sem kom sómölsku bráðabirgðastjórn-
inni til hjálpar, segja ógnina munu verða upprætta
innan fáeinna vikna.
Fulltrúi öryggismálayfirvalda í grannríkinu Kenía
sagði enn fremur í gær að tíu erlendir liðsmenn
skæruliðasveitanna hefðu verið handteknir í Kenía.
Sagði fulltrúinn hina handteknu hafa greint frá því
við yfirheyrslur að innbyrðis klofningur hefði lamað
getu íslömsku skæruliðanna að halda þeim landsvæð-
um sem þeir höfðu unnið á sitt vald. Þar til fyrir
hálfum mánuði réðu þeir megninu af suðurhluta
Sómalíu, þar á meðal höfuðborginni Mógadisjú.
Sómalskir stjórnarhermenn rekja nú með aðstoð
eþíópískra hermanna flótta þess sem eftir er af
sveitum skæruliðanna. Forsætisráðherrann, Ali
Mohamed Gedi, sagði í gær að sumir skæruliðanna
hefðu boðist til að gefast upp. Þeir hefðu hrakist út í
óbyggðir og lið þeirra tvístrast.
Svartolía verður
hreinsuð af tankveggjum og lest
flutningaskipsins Wilson Muuga í
Hvalnesfjöru næstu daga.
Gottskálk Friðgeirsson, vett-
vangsstjóri í Hvalsnesfjöru, segir
að öðruvísi búnað þarf til að
hreinsa restina. Allur búnaður
hefur verið tekinn úr skipinu.
Fjarlægja verður skipið af
strandstað innan hálfs árs og
verða eigendur þess að leggja
fram áætlun og fá samþykki
Umhverfisstofnunar. Guðmundur
Ásgeirsson, stjórnarformaður
Nesskipa, segir að ekki sé komið
að því að fjarlægja skipið í
bráðina.
Tankar hreins-
aðir á nýju ári
Þrír áhafnarmeðlimir
í vél Icelandair á leið til Parísar í
gærmorgun slösuðust lítillega
þegar veitingavagn tókst á loft er
þotan lenti í mikilli ókyrrð. 180
farþegar voru um borð í vélinni,
flestir Frakkar, en engan þeirra
sakaði.
Vélin, sem er af gerðinni Boe-
ing 757, var komin rúmlega hálfa
leið áleiðis til Parísar þegar hún
flaug inn í mikla ókyrrð.
„Þetta var fyrirséð með örstutt-
um fyrirvara, þannig að farþegar
voru rétt búnir að setja á sig beltin
þegar þetta gerðist,“ segir Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair. Áhafnarmeðlimirnir
sem slösuðust voru ekki spenntir í
sínum sætum og segir Guðjón að
þeir hafi slasast þegar veitinga-
vagn tókst á loft og lenti á þeim.
Alda Lóa Leifsdóttir, einn far-
þeganna um borð í vélinni, segir
að mikið högg hafi komið á vélina
um það bil fimm mínútum eftir að
flugstjórinn varaði við ókyrrð og
bað farþega að spenna beltin.
„Við vorum að borða þegar kom
rosalegur dynkur. Ég geri mér
ekki grein fyrir því hvort vélin
datt niður eða hvort hún hrökk
upp, en maturinn og kaffið fór út
um alla vél,“ segir Alda.
„Það kom viðvörun áður en
þetta gerðist, en það kemur við-
vörun í næstum hverju einasta
flugi, svo þetta kom öllum á óvart,“
segir Alda Lóa.
Hún segir að flestir farþeganna
hafi tekið atvikinu með ró. „Þetta
var full vél af Frökkum, þeir voru
ótrúlega jákvæðir og létu á litlu
bera,“ segir Alda Lóa. Hún ber
áhöfninni einnig vel söguna,
brugðist hafi verið við af fag-
mennsku og ró.
Eftir að farþegum var leyft að
losa beltin hófust þeir handa ásamt
áhafnarmeðlimum við að tína upp
matarleifarnar af gólfinu. Farþeg-
arnir slösuðust ekki, en var samt
boðið upp á áfallahjálp við kom-
una til Parísar um hádegi í gær að
íslenskum tíma.
Guðjón segir það afar sjald-
gæft að flugvélar lendi í svona
mikilli ókyrrð.
Vélin þurfti að undirgangast
öryggisskoðun á Charles De
Gaulle flugvellinum í París, eins
og reglur kveða á um eftir svo
alvarlegt flugatvik. Önnur þota
Icelandair með annarri áhöfn var
send til Parísar, áætlun Icelandair
raskaðist um þrjár klukkustundir
vegna þessa.
Slasaðir eftir ókyrrð
um borð í flugvél
Veitingavagn um borð í þotu Icelandair á leið til Parísar tókst á loft í mikilli
ókyrrð. Farþega sakaði ekki en þrír áhafnarmeðlimir slösuðust. Matur og
drykkir dreifðust um alla vélina og farþegar hjálpuðu til við að þrífa.
Margs konar verð- og
gjaldskrárhækkun bætist við þá
hækkun sem varð á gjaldskrám
hjá mörgum sveitarfélögum um
áramótin. Fyrir utan leikskóla-
gjöld sem hækka um 8,8 prósent í
Reykjavík hækkaði til dæmis
barnameðlag um sex prósent, eða
í rúmlega 18 þúsund krónur, auk
þess sem hækkun varð á komu-
gjöldum á spítala og heilsugæslu-
stöðvar fyrir ósjúkratryggða.
„Fréttir hafa verið að berast úr
matvörugeiranum, sérstaklega
frá heildsölunum, og frá opinber-
um aðilum um hækkanir. Það er
engin launung á því að auðvitað
höfum við talsverðar áhyggjur af
því að það séu miklar hækkanir,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ.
„Menn virðast reikna sér mjög
rúmt hækkanasvigrúm. Auðvitað
er þetta mjög slæmt fordæmi sem
opinberir aðilar eru að gefa gagn-
vart atvinnulífinu. Það er ástæða
til þess að það sé áfram aðhald og
það þurfa allir að halda aftur af
sér til þess að verðbólga hér náist
niður,“ segir hann.
Launataxtar hækkuðu á vinnu-
markaði um 2,9 til 3,15 prósent um
áramótin eftir því hvaða kjara-
samninga er um að ræða. Tekju-
skattur lækkar um eitt prósent en
persónuafsláttur einstaklinga
hækkar úr 29.029 krónum í
32.150.
Segir fordæmi hins
opinbera slæmt
Fagmönnum hefur
verið gert að leggja mat á
aðstæður þeirra sem dvelja á
meðferðarheimilinu Byrginu
þannig að hagsmunir þeirra séu
sem best tryggðir á hverjum tíma
og til frambúðar.
Ríkisendurskoðun hefur
fjármál Byrgisins til skoðunar að
beiðni Magnúsar Stefánssonar
félagsmálaráðherra en ákveðið
hefur verið að hætta greiðslum til
Byrgisins. Ráðuneytið sendi
stjórn sjálfseignarstofnunar
Byrgisins ábyrgðarbréf þar um
29. desember síðastliðinn.
Ráðuneytið óskaði eftir því að
Ríkisendurskoðun skoðaði
fjármál Byrgisins en bréf þess
efnis var sent úr ráðuneytinu 16.
nóvember á síðasta ári.
Lögreglan í Reykjavík og á
Selfossi hefur til rannsóknar
meint kynferðisbrot Guðmundar
Jónsson, forstöðumanns Byrgis-
ins, en 24 ára kona hefur kært
hann fyrir kynferðisbrot.
Fagmenn taka
út aðstæður
Flestir íslensku
starfsmannanna hjá SLMM,
Norrænu eftirlitssveitinni á Srí
Lanka, eru farnir aftur til Srí
Lanka eftir jóla- og áramótaleyfi
hér heima, eða níu af ellefu.
Anna Jóhannsdóttir hjá íslensku
friðargæslunni segir að ekki
verið tekin ákvörðun um að
breyta neinu um framlag
Íslendinga til friðargæslu þar
ytra. Eftirlitsmennirnir verða þó
ekki á eftirlitsstöðvum sínum
fyrst um sinn, heldur staðsettir
rétt utan höfuðborgarinnar. „Það
má kannski segja að það hafi
verið versnandi ástand á síðasta
ári og það er verið að skoða
stöðuna í framhaldi af því.“
Flestir farnir út
Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í
nýársávarpi sínu að Bretar yrðu
að standa sína pligt bæði í Írak og
Afganistan á árinu. Hann boðaði
jafnframt að hann hygðist gera
allt sem í sínu valdi stæði til að
endurlífga friðarferlið í Miðaust-
urlöndum.
Þetta var tíunda og væntan-
lega síðasta nýársávarpið sem
Blair flytur, en hann hefur boðað
að hann muni víkja úr embætti
fyrir næsta haust.
Mestum hluta ávarpsins varði
Blair í innanríkismál. Hvatti hann
flokksmenn sína til að halda
tryggð við stefnumið sín sem
kennd hafa verið við „Nýja
Verkamannaflokkinn“.
Brýnir Breta að
standa sig í Írak
Varstu ánægð(ur) með Ára-
mótaskaupið?
Strengdir þú áramótaheit?