Fréttablaðið - 03.01.2007, Side 8
Tveir háttsettir íraskir
embættismenn, sem voru við-
staddir aftöku Saddams Hussein á
laugardagsmorgun, voru með
GSM-myndavélarsíma og tóku
upp aftökuna þrátt fyrir að það
hafi verið bannað.
Frá þessu skýrði Munkith al-
Faroon saksóknari, sem einnig var
viðstaddur aftökuna. Hann segist
næstum því hafa ákveðið að fresta
aftökunni þegar böðlar Saddams
tóku að hrópa að honum hæðnis-
orðum.
Nouri al-Maliki, forsætisráð-
herra Íraks, hefur fyrirskipað
rannsókn á framkvæmd aftökunn-
ar og vill komast að því hver tók
upp myndskeiðið sem birtist í
sjónvarpi og á netinu strax á laug-
ardaginn.
Viðbrögð íraskra súnnía við
aftöku Saddams Hussein hafa
verið mjög hörð. Þúsundir þeirra
hafa mótmælt af krafti bæði aftök-
unni sjálfri, hvernig að henni var
staðið, tímasetningu hennar við
upphaf fórnarhátíðar múslima og
myndskeiði sem tekið var með
leynd með GSM-síma og hefur
verið birt á netinu.
Súnníum svíður mjög að sjíar
hafi séð um framkvæmd aftök-
unnar. Á myndskeiðinu úr farsím-
anum má sjá hóp sjía gera hróp
að Saddam rétt áður en hann er
tekinn af lífi. Þeir hrópa ýmis víg-
orð og meðal annars kalla þeir
ítrekað nafn herskáa klerksins
Muqtada al-Sadr, sem hefur yfir
eigin her að ráða og er áhrifamik-
ill í stjórn landsins.
Eftir innrás Bandaríkjanna
árið 2003 hafa sjíar náð tökum á
flestum valdstofnunum landsins
en súnníar, sem réðu flestu
meðan Saddam var við völd, hafa
að sama skapi tapað stöðu sinni.
Í norðanverðri höfuðborginni,
Bagdad, komu hundruð súnnía
saman á mánudag til að syrgja
Saddam. Sumir þeirra sögðust
styðja Baath-flokkinn, hinn gamla
flokk Saddams sem nú hefur
verið bannaður. „Baathflokkur-
inn og Baathflokksmenn eru enn
til í Írak og enginn getur ýtt
honum til hliðar,“ sagði einn
mannanna.
Hópur súnnía ögraði sjíum
meðal annars með því að fara
inn í rústirnar af gullnu mosk-
unni í Samarra með platlíkkistu
og myndir af Saddam. Gullna
moskan, sem er einn helgasti
staður sjía, var sprengd í febrú-
ar síðastliðnum, sjíum til mikill-
ar hrellingar. Sú sprengjuárás
markaði upphafið að sífellt
harðnandi átökum milli sjía og
súnnía í landinu.
Hörð mótmæli gegn
aftöku Saddams
Mótmælaaðgerðir súnnía í Írak hafa enn sem komið er flestar farið friðsam-
lega fram. Hópur súnnía ögraði sjíum með því að mótmæla í gullnu moskunni
í Samarra, einum helsta helgidómi sjía.
Vonir standa til að lokið
verði við að gera við CANTAT-3
sæstrenginn sem bilaði um miðj-
an desember fyrir lok þessa mán-
aðar.
Áætlað er að viðgerðarskip sigli
frá Bermúda fimmtudaginn 5. jan-
úar til lokaviðgerðar á sæstrengn-
um, en hann bilaði um 1.500 km
vestur af Íslandi 16. desember. Í
tilkynningu frá Farice kemur fram
að þótt áætlanir geri ráð fyrir að
viðgerð verði lokið fyrir 31. janúar
kunni það að breytast verði veður-
skilyrði óhagstæð.
16. desember kom upp bilun á
tveimur stöðum á strengnum
austurleggnum til Færeyja og
Evrópu og svo vesturleggnum til
Kanada. Viðgerð á austurleggn-
um var lokið strax daginn eftir,
en viðgerð á tengingunni vestur
um haf hélt ekki.
CANTAT-3 strengurinn er kom-
inn til ára sinna og fyrirséð að
koma þurfi á nýrri tengingu við
útlönd héðan. Ríkisstjórn Íslands
samþykkti enda rétt fyrir áramót-
in að hefja undirbúning að lagn-
ingu nýs sæstrengs, til viðbótar við
Farice-1 strenginn sem tekinn var í
notkun í ársbyrjun 2004. Örugg
gagnatenging við útlönd hefur
verið sögð ein af forsendum þess
að hér verði hægt að byggja upp
alþjóðlega fjármálamiðstöð.
Viðgerðarskip sent á vettvang
Hafnarstjórn Akraness
ákvað á síðasta fundi sínun áður en
Faxaflóahafnir sf. tóku formlega til
starfa um áramótin að veita veglega
styrki til menningarmála í bænum.
Þannig voru veittar 500 þúsund krónur
til reksturs Listasetursins Kirkjuhvols
og 250 þúsund krónur til endurnýjunar
á klukkuturni að Görðum. „Turninn
hefur á liðnum áratugum verið
kennileiti fyrir sjómenn á Akranesi,“
segir hafnarstjórnin.
Styrkti listasetur og klukkuturn á síðasta fundi