Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 10
Nýtt samheitalyf við hjarta-
sjúkdómum er komið á markað.
Lyfið heitir Amlódípin Port-
farma en það víkkar kransæðar
og slagæðar, lækkar blóðþrýsing
og eykur blóðflæði til hjarta-
vöðva.
Skráð smásöluverð á 5 mg af
lyfinu er á 5.715 krónur sem er
656 krónum ódýrara en frumlyf-
ið sem kostar 6.371 krónu.
Nokkur lyf frá lyfjafyrirtæk-
inu Portfarma eru nú í skráning-
arferli hjá Lyfjastofnun og enn
fleiri eru tilbúin til skráningar
en það tekur að jafnaði 7-12
mánuði að fá markaðsleyfi fyrir
nýtt samheitalyf.
Ódýrara hjarta-
lyf á markað
Sjö sækja um starf
framkvæmdastjóra Barnaverndar
Reykjavíkur.
Upphaflega bárust tíu umsókn-
ir um starfið en þrjár hafa verið
dregnar til baka.
Umsækjendur eru: Auður G.
Sigurðardóttir kennari, Bára
Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, Guðbjörg Erlendsdóttir
viðskiptafræðingur, sem jafn-
framt hefur próf í sálfræði, Máni
Radmanesh viðskiptafræðingur,
sem jafnframt hefur próf í
efnafræði, Steinunn Bergmann
félagsráðgjafi, sem hefur próf í
uppeldis- og menntunarfræði,
Sveinn Þór Elínbergsson skóla-
stjóri og Vigdís Erlendsdóttir
sálfræðingur.
Sjö sóttu um
starf fram-
kvæmdastjóra Hæstiréttur felldi á föstudag úr gildi úrskurð Héraðs-
dóms Suðurlands um að Símanum
og OG fjarskiptum yrði gert skylt
að upplýsa um öll símanúmer sem
notuðust við GSM-sendi í Vest-
mannaeyjum á tíu klukkustunda
tímabili þann 16. desember síð-
astliðinn.
Sýslumaðurinn í Vestmanna-
eyjum hafði óskað eftir upplýs-
ingunum vegna rannsóknar lög-
reglu á bruna í
fiskimjölsverksmiðju Ísfélags
Vestmannaeyja, en talið er full-
víst að um íkveikju hafi verið að
ræða.
Símafyrirtækin vildu ekki una
úrskurði Héraðsdóms og skutu
málinu til Hæstaréttar. Þau héldu
því fram að ekki væri rökstuddur
grunur um að tiltekinn sími eða
fjarskiptatæki hefði verið notað í
tengslum við refsivert brot. Þá
væri krafan einnig of víðtæk með
tilliti til sjónarmiða um friðhelgi
einkalífsins.
Hæstiréttur féllst á röksemdir
símafyrirtækjanna og sagði að
þeim væri ekki skylt að láta upp-
lýsingarnar af hendi. Engin gögn
hefðu verið lögð fram sem hafi
sýnt að viðskiptavinir fyrirtækj-
anna hefðu tengst brunanum í
Ísfélaginu heldur hafi krafan
snúið að upplýsingum úr öllum
símum sem notað hefðu GSM-
sendinn á tíu klukkustunda tíma-
bili. Með því væri gengið mun
lengra en heimilt væri og því var
kröfunni hafnað.
Hæstiréttur hafnaði kröfu lögreglunnar
Stjórnvöld í Indón-
esíu báru síðdegis í gær til baka
fréttir um að flak farþegaþotu,
sem saknað er síðan á mánudag,
hefði fundist. Um borð í vélinni
voru 96 farþegar og sex manna
áhöfn og bentu fyrstu fréttir til
þess að tólf manns hefðu hugsan-
lega lifað af flugslysið.
„Við biðjumst afsökunar á
fréttunum sem við sendum frá
okkur fyrr í dag,“ sagði einn emb-
ættismannanna sem höfðu sagt
flakið fundið og níutíu lík sömu-
leiðis. „Það var ekki rétt.“
Flugvélin týndist í slæmu veðri
á mánudaginn og hafði þá sent frá
sér tvær neyðartilkynningar.
Grunur leikur á að hún hafi farist
fjallahéraði á Sulawesi, einni af
stærstu eyjum Indónesíu.
Björgunarsveitir gengu klukku-
tímum saman í gær í úrhellisrign-
ingu eftir torfærum og hálum
skógarstígum í leit að flugvélinni.
Leitinni var hætt þegar myrkur
féll yfir en halda átti af stað á ný í
dögun í dag.
Slæmt veður undanfarnar tvær
vikur, með roki og miklum rign-
ingum, hefur valdið margvíslegu
tjóni á Indónesíu, meðal annars
vatnsflóðum, aurskriðum og sjó-
slysum. Á föstudaginn í síðustu
viku fórst meðal annars ferja með
um 400 manns innanborðs.
Ekki rétt að vélin hafi fundist