Fréttablaðið - 03.01.2007, Qupperneq 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Ekki fengið neina reiðilestra
Verðlaunað
fyrir vinnuna
Ár stríðs, hörmunga
og haturs
Stress og gleði
Inntaka kókosolíu til grenn-
ingar nýtur sífellt meiri
vinsælda vestanhafs. Hún
er talin auka brennslu í
líkamanum og gefa aukna
orku í amstri dagsins.
Kristín Kristjánsdóttir,
hómópati segir undarlegt að
Íslendingar hafi ekki upp-
götvað kosti hennar fyrr.
„Sem betur fer er fólk alltaf að
uppgötva betur hversu marga
kosti kókosolían hefur,“ segir
Kristín Kristjánsdóttir hómópati
en hún hefur veitt fólki ráðgjöf
um mataræði, bætiefni og leiðir í
baráttu við aukakíló um árabil í
versluninni Maður lifandi.
Kristín segir kókosolíuna vera
nýjasta ráð þeirra sem leita að
aukinni vellíðan og ekki spilli það
fyrir vinsældum olíunnar að hún
hafi grennandi áhrif.
„Kókosolí-
an inni-
heldur
efni sem vinnur gegn fitu og það
er ef til vill sá kostur sem flestir
líta til núna eftir jól,“ segir Kristín
en ítrekar að það sé langt frá því
eini kostur þessarar olíu. „Hún er
mjög heilnæm og það átta sig ekki
allir á því að hún hentar mjög vel
til steikingar vegna þess hvað hún
þolir hátt hitastig,“ segir hún og
bætir við að hún voni að margir
hafi áttað sig á því fyrir jól hve vel
olían hentar í konfektgerð.
Þó segja megi að Vesturlanda-
búar séu nú að uppgötva kosti
þessara olíu hefur hún verið hluti
af næringu og fegrunarráðum
fólks við Kyrrahaf í langan tíma.
Til að mynda hafa konur þar löng-
um borið hana á húð og í hár til að
fá aukna mýkt og glans.
Kristín segir ef nota eigi olíuna
til megrunar sé best að taka inn
tvær til fjórar matskeiðar af henni
á dag. Gæði olíunnar sem hér fáist
séu misjöfn, til steikingar sé best
að nota harða olíu í ódýrari kantin-
um en ef eigi að taka hana beint
inn eða bera hana á húð gefist
betur að festa kaup á mýkri olíu
sem kosti yfirleitt ögn meira en sú
harða.
Hún viðurkennir að frásagnir
hennar af kostum þessarar afurð-
ar hljómi eins og um undraefni sé
að ræða en þó sé margt óupptalið.
„Lyfjaheimurinn er að kanna
kosti hennar í tengslum við sýk-
ingar eins og sveppasýkingar,
herpes, lifrarbólgu og alnæmi.
Það er samt þegar vitað að hún
virkar mjög vel á sveppasýkingar
þá bæði sem áburður og til inn-
töku. Í raun má segja að þetta sé
óplægður akur en kostir kókos-
hnetunnar eru mjög margir,“ segir
Kristín, fullviss um að nýjasta
ráðið í heimi heilsu og megranna
eigi fullan rétt á sér.
Megrun með kókosolíu
Katrín Edda Svansdóttir
- sölumaður í þjónustuveri RV
Skrifstofuvörur
á janúartilboði
Á tilboði
í janúar 2007
Bréfabindi, ljósritunar-pappír, merkipennar,
töflutússar og
veggklukka
Merkipennar,
bláir, svartir, rauðir
og grænir, 12 stk í pk.
898kr.
pk.
R
V
62
22
A
Mopak ljósritunar-
pappír, 5x500 blöð í ks.
1.240kr. ks.
Bréfabindi A4,
5cm og 8cm kjölur.
148kr.
Nemendur og kennarar hafa
almennt séð jákvæð viðhorf til
enskukennslu í grunnskólum
landsins. Nemendunum finnst
enskan skemmtileg grein. Þeir
gera sér grein fyrir mikilvægi
þess að kunna ensku og geta rætt
um það hvernig enskan nýtist
þeim, bæði utan skóla og í framtíð-
inni.
Nemendurnir telja sig geta
notað enskuna á margvíslegan
hátt, meðal annars í samskiptum
erlendis, til að skilja kvikmyndir
og sjónvarpsþætti og til að lesa
blöð og tímarit á ensku. Strákarnir
sögðu miklu oftar en stelpurnar að
þeir gætu notað hana í tölvuleikj-
um og á netinu. Stelpurnar sögðust
hins vegar frekar geta notað hana
til að lesa blöð og bækur. „Þegar ég
vil vera svalur þá tala ég ensku“ er
svar sem einn nemandinn gaf.
Þetta kemur fram í rannsókn
sem Samúel Lefever, lektor í ensku
við Kennaraháskóla Íslands, hefur
gert á enskukennslu í grunnskól-
um landsins. Samúel lagði spurn-
ingalista fyrir nemendur og kenn-
ara í fimmta, níunda og tíunda
bekk í átta grunnskólum, tók viðtöl
við enskukennara og fylgdist með
kennslu.
Samúel segir að sér þyki óneit-
anlega alvarlegt hve lágt hlutfall
af kennurum á grunnskólastigi
hafa sérmenntun í faginu en í rann-
sókninni kom fram að það er aðeins
þriðjungur.
Notuð í tölvuleikjum til lesturs