Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 18
fréttir og fróðleikur
Jöklar landsins minnka hratt
Sýnileg lög-
gæsla aukin
Alcan, sem rekur álverið
í Straumsvík, hefur verið
í fréttum upp á síðkastið
vegna fríðinda og gjafa
sem fyrirtækið veitti
Hafnfirðingum á síðasta
ári. Sumir Hafnfirðingar
hafa gengið svo langt að
segja að fyrirtækið reyni
að múta bæjarbúum til að
samþykkja fyrirhugaða
stækkun álversins, sem þeir
munu kjósa um á næstu
mánuðum.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi vinstri grænna í
Hafnarfirði, segir að frekar lítið
hafi borið á fyrirtækinu Alcan,
sem rekur verksmiðjuna, í bæjar-
lífinu, en að þetta hafi breyst
mikið á síðastliðnu ári. „Alcan
hefur aldrei verið eins áberandi
og núna, þeir hafa aldrei áður
boðið Hafnfirðingum á íþrótta-
leiki, tónleika eða sent þeim gjaf-
ir,“ segir Guðrún og bætir því við
að sér virðist sem fyrirtækið sé í
ímyndarstríði um þessar mundir
til að reyna að keyra það í gegn að
íbúar Hafnarfjarðar samþykki
fyrirhugaða stækkun álversins,
en þeir munu líklega kjósa um
hana á næstu mánuðum. Með
stækkuninni mun árleg fram-
leiðslugeta álversins aukast úr 180
þúsund tonnum upp í 460 þúsund
tonn.
Alcan hefur styrkt íþróttastarf
barna og unglinga í Hafnarfirði
frá árinu 2002. Styrkurinn hljóðar
upp á 5 milljónir á ári og gildir út
árið 2007. Í honum kemur fram að
íþróttafélög sem njóta styrkjanna
skuli birta merki Alcan á vefsíðu
sinni, bréfsefni og öllu kynningar-
efni, sem og setningu sem segir að
fyrirtækið styðji barna- og ungl-
ingastarf félagsins. Einnig er
kveðið á um það í sumum tilfellum
að keppnisbúningar félagsins
skuli merktir með fyrirtækis-
merki Alcan, þegar það er heimilt,
auk þess sem skilti og fánar með
merkinu skuli settir í og við
íþróttamiðstöðvar.
„Þetta er ekki styrktarsamn-
ingur, heldur auglýsingasamning-
ur. Ástæðan fyrir því að Alcan
ákveður að styrkja barna- og ungl-
ingastarf er að með því vill fyrir-
tækið reyna að höfða til kvenna,
sem hafa haft hvað mesta andúð á
álverinu í gegnum tíðina,“ segir
Pétur Óskarsson hjá Sól í Straumi,
þverpólitískum hópi áhugafólks
um stækkun álversins í Straums-
vík.
„Samningurinn er kynntur sem
styrktarsamningur en er í raun-
inni íþyngjandi auglýsingasamn-
ingur,“ segir Sigurður P. Sig-
mundsson, sem situr í stjórn
frjálsíþróttadeildar FH, og bætir
því við að samningurinn hafi ekki
verið gerður á réttum forsendum.
Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan, segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um
hvort haldið verður áfram að
styrkja íþróttastarf í Hafnarfirði
með nákvæmlega þessum hætti
þegar samningstíminn er liðinn.
„Alcan ætlar sér að halda áfram
að starfa í þessum anda og koma
að samfélagslegum verkefnum,“
segir Hrannar.
Alcan byrjaði að veita fé úr svo-
kölluðum samfélagssjóði fyrirtæk-
isins árið 2005. Síðan þá hefur verið
veitt þrisvar sinnum úr sjóðnum til
aðila og félaga, nú síðast á föstu-
daginn þegar rúmum níu milljón-
um var veitt úr honum. Hæstu
styrkina, að upphæð eina milljón
króna, hlutu Vímulaus æska og
verkefnið Þjóð gegn þunglyndi.
Að sögn Hrannars er hlutverk
sjóðsins að leggja góðum málefn-
um í samfélaginu lið og að setja
ákveðinn ramma utan um styrk-
veitingar frá Alcan.
Alcan hefur auk styrkveitinga
gefið Hafnfirðingum ýmsar gjafir
og veitt þeim fríðindi á síðustu
mánuðum. Í september bauð fyrir-
tækið Hafnfirðingum á tónleika
með Björgvini Halldórssyni og Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og í desem-
ber bauð það þeim á bikarleik
Hauka og FH í Hafnarfirði. Í lok
ársins sendi fyrirtækið svo mynd-
og geisladisk með upptöku frá tón-
leikum Björgvins inn á hvert heim-
ili í Hafnarfirði, alls 7.200 eintök.
Að sögn Hrannars Péturssonar,
upplýsingafulltrúa Alcans, ætlar
fyrirtækið á næstunni að senda
almanak með myndum af verkum
eftir hafnfirska listamenn inn á
hvert heimili í Hafnarfirði.
Aðspurður segir Hrannar að
ástæðan fyrir því að fyrirtækið
veiti Hafnfirðingum þessar gjafir
og fríðindi sé sú að fyrirtækið hafi
átt 40 ára afmæli á liðnu ári og fyr-
irtækið vilji minna á sig því stækk-
un álversins sé mikið hagsmuna-
mál fyrir fyrirtækið. Hann vill
ekki tjá sig um hversu mikið þess-
ar gjafir og fríðindi kostuðu Alcan,
né hversu mikið sjónvarpsauglýs-
ing frá fyrirtækinu sem sýnd var
yfir hátíðarnar kostaði í fram-
leiðslu.
„Það hefur orðið mikil breyting á
liðnum árum á því hvernig fyrir-
tæki koma að samfélagsmálum
og það á líka við um aðkomu
Alcan. Fyrirtæki taka meiri þátt í
samfélagslegum verkefnum núna
en fyrir tíu árum,“ segir Hrannar
og bætir því við að álverið hafi
byrjað að veita meiri styrki eftir
að það varð hluti af Alcan-sam-
steypunni árið 2000, en á árunum
þegar svissneska fyrirtækið
Alusuisse rak álverið.
Spurningin er sú hvort og
hvernig Alcan muni halda áfram
að gera eins vel við Hafnfirðinga
og Íslendinga með gjöfum og
styrkveitingum ef Hafnfirðingar
kjósa gegn stækkuninni, og eins
ef þeir samþykkja hana. Þá mun
hugurinn sem hvílir á bak við
aðgerðir fyrirtækisins líklega
koma í ljós: hvort fyrirtækið telji
sig bera samfélagslega ábyrgð
sem það sýnir í verki, eins og
Hrannar Pétursson segir, eða
hvort fyrirtækið hafi verið að
reyna að kaupa sér atkvæði Hafn-
firðinga svo álverið verði stækk-
að eins og sumir Hafnfirðingar
vilja meina.
Samfélagsleg ábyrgð eða mútur?
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006