Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 21
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Kristján Þór Björnsson,
15 ára, og Hjalti Andrés
Sigurbjörnsson, 18 ára,
náðu langt á Norður-
landamóti unglinga í
veggjaklifri, nánar tiltek-
ið í leiðsluklifri.
Bæði Kristján og Hjalti
komust á verðlaunapall á
mótinu sem haldið var í
Noregi. Kristján deildi þar
fyrsta sæti í flokki drengja
fæddum á árunum 1991-´93
með dönskum keppanda og
Hjalti náði þriðja sæti í
flokki drengja fæddum á
árunum 1987–´88.
„Það var óneitanlega góð
tilfinning sem fylgdi við-
töku verðlaunanna,“ viður-
kennir Hjalti, sem átti ekki
von á að ná svona langt. Pilt-
arnir eru annars yfirvegað-
ir vegna útkomunnar, enda
báðir æft frá tólf ára aldri
og gengið vel hérlendis.
Kristján hefur meðal ann-
ars náð því að verða einu
sinni Íslandsmeistari grjót-
glímu, sem er að sögn
drengjanna styttra en
leiðsluklifur auk þess sem
dýna er höfð undir því.
Norðurlandamótið er fyrsta
erlenda mótið sem þeir taka
þátt í.
Að sögn drengjanna er
aðstöðunni nokkuð ábóta-
vant á Íslandi, sem þeir telja
stafa af því hversu ung
íþrótt veggjaklifur er hér-
lendis. „Það er góður grjót-
glímuveggur í Klifurhúsinu
en enn vantar leiðsluklifur-
vegg,“ segir Kristján og
Hjalti samsinnir því.
Þrátt fyrir að aðstöðu sé
ábótavant horfa félagarnir
björtum augum til framtíð-
ar og nóg er á döfinni. „Ég
tek þátt í móti í Þýskalandi
um næstu páska,“ segir
Kristján og Hjalti mun að
eigin sögn hafa nóg fyrir
stafni. „Ég er ekki búinn að
skipuleggja þátttöku í
mótum en held áfram að
æfa í Klifurhúsinu.“
Tróndu á
toppnum
Yfir 100 nýjar bílategundir verða settar á Evrópu-
markað á árinu.
104 nýir bílar frá öllum stærstu bílaframleiðendum heims
eru væntanlegir á Evrópumarkað á árinu 2007. Þessi
fjöldi nýrra bíla á markað er tæplega þriðjungsaukning
frá því í fyrra. Samkvæmt spám þýska bílasérfræðings-
ins Ferdinands Dudenhoffer munu bílaframleiðendur ein-
blína mest á hefðbundna fjölskyldubíla og smábíla á
kostnað stærri og bensínfrekari bíla. Meðal nýrra bíla
sem væntanlegir eru á þessu ári er nýr Audi A4, nýr Ren-
ault Laguna og þriðja kynslóðin af Ford Mondeo. Nokkrir
arftakar hafa sömuleiðis verið boðaðir á árinu, til dæmis
mun Toyota setja á markað nýjan Auris sem mun leysa
Corolla línuna af hólmi. Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð
á olíu hafi aðeins lækkað upp á síðkastið munu áherslur
bílaframleiðanda áfram vera á sparneytna og umhverfis-
væna bíla á borð við Toyota Prius.
Aldrei fleiri á markað