Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 22

Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 22
Þeir sem strengja þess heit að hætta að reykja á nýja árinu geta fengið aðstoð sérfróðra. Einn þeirra er Valgeir Skag- fjörð sem bæði heldur nám- skeið og hefur skrifað bók um málið. Valgeir kemur hálf hóstandi í sím- ann. Spurður hvort það sé reyk- ingahósti svarar hann því til að um aðkenningu að lungnabólgu sé að ræða sem hafi komið upp úr flensu. „Ástæðan kann að vera sú að eftir 25 ára reykingar sé ég næmari fyrir því að fá lungna- bólgu en aðrir. Það veit maður ekki. En það eru ellefu ár síðan ég hætti.“ Var erfitt að hætta? „Nei, loksins þegar ég var búinn að fatta hvernig ég átti að fara að því þá var það ekki erfitt,“ segir hann og kveðst sannfærður um að allir geti hætt, enda heiti bókin hans um þetta efni Fyrst ég gat hætt getur þú það líka. „Gald- urinn er að gera sér grein fyrir því að vandamálið býr í höfðinu á manni og hvergi annars staðar,“ segir Valgeir „Reykingamaðurinn er að taka inn hraðvirkt eiturlyf sem heitir nikótín og það er engin lausn að fá sér plástur eða annað form af lyfjum í apótekunum því nikótínið hættir ekki að vera fíkni- efni þó að það sé komið í plástra. Þegar ég hjálpa fólki að hætta að reykja legg ég áherslu á að það losni við nikótínfíknina.“ Þegar Valgeiri er bent á að plásturinn frelsi að minnsta kosti lungun frá reyknum svarar hann að bragði: „Reykingar snúast minnst um lungun. Flestir reykingamenn eru með góð lungu, annars gætu þeir ekki reykt. Þeir sem eru með við- kvæm lungu en halda áfram að pína reykinn ofan í sig verða mjög fljótt veikir og fá einkenni lungna- þembu snemma. En eitrið hefur áhrif á allan líkamann, meðal ann- ars á æðakerfið.“ Valgeir segir lykilinn við að hætta vera þann að losa sig við venjurnar sem reykingunum fylgi. „Reykingamaðurinn veður í þeirri villu að tóbakið geri eitthvað fyrir hann. Það er sú blekking sem ég legg ofuráherslu á að uppræta og þegar menn eru lausir við hana þá fatta þeir að þetta er ekkert mál.“ Hann þvertekur fyrir að það kosti vítiskvalir að hætta. „Óttinn við vítiskvalirnar verður líka til í höfðinu á fólki og hann viðheldur reykingunum. Sá ótti er líka það sem tóbaksfyrirtækin og lyfja- fyrirtækin lifa á.“ Í huga Valgeirs er aðferðin ein- föld. „Menn taka ákvörðun um að hætta og trúa því og treysta að það verði allt í lagi. Þá er allt hægt. Ég kannast við mann sem vaknaði á þriggja tíma fresti alla nóttina til að reykja og hann gat hætt. Hann þurfti bara að losna við þá blekk- ingu að sígaretturnar væru honum lífsnauðsynlegar og þeim tækjum búa allir yfir.“ Að uppræta blekkinguna Það er ekki óalgengt að þreytan segi til sín eftir frítímann yfir jól og áramót. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga vilji maður hafa næga orku allan daginn. Fáðu þér göngutúr í hádegishléinu. Hreyfingin er hressandi og þótt þú gangir ekki nema í fimmtán mínútur finnur þú strax muninn. Drekktu vel. Vökvatap getur lýst sér í þreytu og slappleika. Notaðu skynsemina þegar þú velur þér hádegismat. Feitur og kol- vetnaríkur matur getur haft sljóvgandi áhrif og valdið syfju. Fáðu þér nasl í eftirmiðdaginn. Lágur blóðsykur getur verið ástæða orkuleys- is. Veldu nasl sem er hollt og gott og inniheldur lítinn sykur. Fáðu þér blund. Slökun í fimmt- án til tuttugu mínútur er góð leið til að endurheimta orku. Farðu út. Ferska loftið getur gert kraftaverk þegar þreytan segir til sín. Fáðu einhvern til að nudda þig meðan þú situr. Tíu til fimmtán mínútna nudd kemur blóðinu á hreyfingu og losar um spennu. Aukin orka Sextíu og sjö ára gömul kona fæðir tvíbura á Spáni. Konan sem eignaðist tvíburana á Sant Pau-spítala fyrir skemmstu varð elsta móðir í heimi þegar tví- burarnir fæddust. Hún sló þar með fyrra met hinnar sextíu og sex ára gömlu Adriönu Iliescu frá Rúmeníu, sem fæddi stúlku í janúar árið 2005. Sú varð einnig barnshafandi af tví- burum en missti annan þeirra á meðgöngu. Að sögn starfsmanna spítalans var þetta fyrsta fæðing móður, sem varð ófrísk eftir tæknifrjóvg- un. Voru börnin tekin með keis- araskurði og komið fyrir í hita- kassa. Á máli sérfræðings í áhættu- sömum fæðingum mátti skilja að bæði móður og börnum heilsist vel, en þau munu verja nokkrum dögum á spítalanum. Nafn hennar hefur ekki verið gefið upp að svo stöddu. Frá þessu er greint á fréttavef BBC, www.bbc.co.uk. Elsta móðir í heimi STAFGANGA Í LAUGARDAL – áhrifarík lei› til líkamsræktarwww.stafganga.is 5 vikna námskeið fyrir byrjendur (10 tímar) hefst þriðjudaginn 9. janúar kl. 17:30 Tímar fyrir lengra komna á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 Skráning og nánari upplýsingar á www.stafganga.is eða í símum 616 8595 / Guðný Aradóttir - stafgönguþjálfari 694 3571 / Jóna Hildur Bjarnadóttir - stafgönguþjálfari Kennari: Sigríður Guðjohnsen www.sigga.is ROPE YOGA Rope Yoga Rope Yoga Rope Yoga Rope Yoga Fagralundi við Furugrund í Kópavogi 8 vikna námskeið hefjast 8. janúar Skráning í síma 891-7190 YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi og kraftyoga Allir yoga unnendur velkomnir www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.