Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 26

Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 26
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Það heyrir til undantekn- inga að stúlkur leggi fyrir sig bifvélavirkjun. Inger Birta S. Pétursdóttir lætur það ekki á sig fá. Hún starfar á verkstæði B&L á Krókhálsi. „Áhugi á bílum hefur blundað í mér ansi lengi. Pabbi minn, Pétur Ágústsson, var bílakarl og ég var oft hjá honum úti í skúr þegar ég var lítil. Hann var líka duglegur að taka mig með sér á torfæru- keppnir,“ segir Inger spurð um kveikjuna að því að hún fór að fást við bifvélavirkjun. Hún er langt komin með fagnámið sem fer fram í Borgarholtsskóla. „Þetta er fjög- urra ára nám með eins árs vinnu á verkstæði. Ég er að ljúka verk- stæðisþættinum og á eina önn eftir í skólanum,“ lýsir Inger og heldur áfram. „Ég lærði auðvitað ýmis grunnatriði í skólanum en hér á verkstæðinu opnaðist þetta allt fyrir mér og ég gat sett hlut- ina í samhengi.“ Hún segir bæði starfsmannastjórann og verk- stæðisstjórann hjá B&L hafa verið því fylgjandi að fá konu á verk- stæðið og hún hafi verið sú fyrsta sem var ráðin. Aðspurð segir hún þá báða karlkyns en hins vegar sé forstjóri fyrirtækisins kjarnakon- an Erna Gísladóttir. Inger telur bifvélavirkjun vera að breytast þannig að hún henti betur konum en áður. „Það eru komnar svo margar græjur sem létta störfin og það er minna um að menn þurfi að rembast eitt- hvað. Eiginlega er langmest um rafmagnsbilanir í bílum og tölvu- tæknin er mikið notuð við lagfær- ingarnar.“ Hún viðurkennir að stundum lendi hún í þungum hlutum en þá séu strákarnir boðnir og búnir að aðstoða hana. „Herramennirnir koma líklega upp í strákunum eða þeir halda að ég missi allt út úr höndunum. En ég er svo þrjósk að ég vil gera hlutina sjálf og hlífi mér ekkert við að taka á,“ segir hún. Í framhaldinu berst talið að handstærð. „Það er að mörgu leyti betra að hafa smáar hendur en stórar í svona starfi. Ég er að vinna við Hyundai-inn en strák- arnir í Renault-deildinni fá mig stundum til sín því í Renault-inum er allt mjög þröngt og erfitt að komast að. Þeim finnst fyndið hvernig ég get troðið mér undir mælaborðið og unnið þar,“ segir Inger hlæjandi. Spurð hvort hún hafi aldrei slasað sig á öllu þessu járni sem hún er að handfjatla svarar hún kankvís. „Ég hef stundum meitt mig fyrir klaufaskap en aldrei neitt alvarlega.“ Kveðst líka alltaf hafa verið drullug upp fyrir haus til að byrja með. „Eitt af því sem lærist með tímanum er að halda sér hreinni, meðal annars með því að nota hlífðarföt og hanska. Strákarnir eru sumir þannig að þeir gætu verið í jakkafötum við viðgerðirnar en ég er ekki komin á það stig að geta mætt í sparikjóln- um. Reyni nú samt að nota hanska bæði til að hlífa húðinni og til að sleppa við sorgarrendurnar.“ Betra að hafa smáar hendur en stórar 10.000 Toyota bílar seldir á árinu 2006. Árið 2006 reyndist vera metár í bílasölu hjá Toyota á Íslandi. Alls voru 5.285 nýir Toyota bílar og 159 Lexus bílar afhentir hér á landi á árinu sem leið. Sala Toyota – betri notaðra bíla var rúmlega 4.600 bílar og því fór heildarsala ársins yfir 10.000 bíla. Þessar sölutölur eru þær mestu í sögu Toyota á Íslandi og sömuleiðis algjört eins- dæmi hér á landi. Þessi árangur er athyglisverður í ljósi þess að nýskráning bifreiða dróst töluvert saman á milli ára. Metár hjá Toyota Útlit er fyrir að samdráttur í nýskráningum bifreiða verði um 10 prósent á milli ára. Þrátt fyrir vöxt í nýskráningu á fyrsta fjórðungi ársins 2006 lítur út fyrir að samdráttur í innflutn- ingi bíla verði um 10 prósent á milli ára. Árið 2005 voru alls tut- tuguogsex þúsund bílar nýskráðir hér á landi, samanborið við tut- tuguogþrjú þúsund nýskráningar á árinu sem leið. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2002 sem samdrátt- ur er í nýskráningu bifreiða. Þrátt fyrir þennan samdrátt var bílasal- an á árinu afar góð því salan var sú næstmesta frá upphafi eftir metárið 2005. Samdráttur í bílasölu • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.