Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 27
Bílafyrirtækið Lotus var
stofnað árið 1952. Fyrsta
verksmiðja fyrirtækisins var
í gömlu hesthúsi í Hornsey í
Bretlandi.
Stofnandi Lotus var Anthony Colin
Bruce Chapman, en upphafsstafi
hans má enn sjá í merki fyrirtæk-
isins. Velgengni Lotus byrjaði
snemma og árið 1958 hófu bílar
frá Lotus að keppa í Formúlu 1
keppninni. Á 36 ára ferli Lotus í
keppninni vannst heimsmeistara-
titill sjö sinnum. Lotus var fyrst til
að smíða bíl með vél í miðjunni, og
einnig fyrst til að smíða bíl með
vindskeið og vængi sem bættu
aksturseiginleikana mikið.
Þrátt fyrir velgengni sína í For-
múlu 1 og öðrum keppnum er
Lotus mun þekktara í dag fyrir
götubíla sína. Allt frá byrjun
hvatti fyrirtækið viðskiptavini
sína til að keppa á bílunum, enda
sérhæfði það sig í gerð léttra og
kraftmikilla sportbíla. Þekktastur
þeirra er án efa Lotus Esprit en
þegar hönnun hans leit dagsins
ljós árið 1976 þótti hún væg-
ast sagt framúrstefnu-
leg.
Bíllinn varð fljót-
lega vinsæll og gerði Lotus að einu
stærsta nafninu á ofurbílasen-
unni. Ekki skemmdi að Esprit var
Bond-bíll Rogers Moore í The spy
who loved me árið 1977. Tíundi
áratugurinn var einnig notadrjúg-
ur og aftur greip Hollywood tæki-
færið og setti Ritchard Gere
undir stýri á Esprit í Pretty
Woman. Framleiðslu Lotus
Esprit var loks hætt árið
2004. Þetta markar þó ekki
endalok Esprit því nú er
verið að endurhanna hann
og er áætlað að hefja fram-
leiðslu á nýrri gerð á næsta
ári.
Þær týpur sem nú eru fram-
leiddar af Lotus eru Elise, Exige,
Exige S, og Europa S. Flestir þess-
ara bíla eru ekki mjög kraftmiklir,
fæstir ná 200 hestöflum óbreyttir.
Þeir eru hins vegar mjög liprir og
hraðskreiðir vegna þess hversu
léttir þeir eru og skilar það sér í
gríðarlega hagkvæmu hlutfalli á
krafti og þyngd. Þetta hefur alltaf
verið aðalsmerki Lotus, hraði og
frábærir aksturseiginleikar fyrir
tilstuðlan léttleika og hátækni, í
bland við framúrskarandi hönnun.
Fyrstir með vængi í F1
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS
Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun
NÚ FÆRÐU GRAS.IS
FÉTTIR Í SÍMANN!