Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 29

Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 29
Varaði við | Seðlabanki Íslands varaði Straum-Burðarás við því að nýta sér heimild ársreikninga- skrár til að færa bókhald og semja ársreikning sinn í evrum. Viðskiptahallinn eykst | Vöru- skiptahallinn jókst til muna á fyrstu ellefu mánuðum ársins miðað við árið í fyrra. Vöruskiptin voru neikvæð um 13,5 milljarða króna í nóvember. Úr landi | FL Group, stærsti hlut- hafinn í Glitni, hefur fært stærstan hluta af eign sinni í bankanum til tveggja dótturfélaga í Hollandi. Selja Sterling | FL Group hefur selt allan hlut sinn í Sterling til Northern Travel Holding, nýs félags í ferðaþjónustu, fyrir tut- tugu milljarða króna. Nýr risi | Sterling, Iceland Express, Astraeus og Ticket renna inn í Northern Travel Holding sem FL Group, Sund og Fons hafa stofnað. Renna saman | Um áramótin urðu að fullu frágengin kaup Hjálms ehf. á meirihluta í útgáfu- félaginu Birtíngi sem gefur út fjölda tímarita. Nýr sæstrengur | Undirbúningur að lagningu nýs sæstrengs hefst á næstu dögum og er áætlað að hann verði tekinn í notkun seint á árinu 2008. Stofnkostnaður verður á bilinu þrír til fjórir milljarðar. Verða Stafir | Lífiðn og Samvinnu- lífeyrissjóðurinn hafa sameinast undir nafninu Stafir lífeyrissjóð- ur. Við það aukast aldurstengd lífeyrisréttindi sjóðsfélaga um 16 til 20 prósent. Samkeppni hafin | Tíðnisviðum þriðju kynslóðar farsímakerfa verður úthlutað í vor. Að minnsta kosti þrír stefna á uppbyggingu þriðju kynslóðar nets. Friðrik Jóhannsson Spennandi ár fram undan 10 Kauphöllin skiptir um nafn Fyrsta skrefið í samþættingarátt 4 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 3. janúar 2007 – 1. tölublað – 3. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 F R É T T I R V I K U N N A R Erlendur viðskiptaannáll 2006 Samrunar og yfirtökur einkenndu árið 6 Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Velta á hlutabréfamarkaði nam 2.192 milljörðum króna á árinu sem var að enda. Þetta var algjört metár í sögu innlends hlutabréfamarkaðar. Veltan hefur ellefufaldast frá aldamótaárinu þegar hún nam tæpum tvö hundruð milljörðum króna og var 82 prósentum meiri en árið 2005. Mestur þunginn lá í viðskiptum með bréf í bönkum og fjármála- tengdum fyrirtækjum, eða alls fyrir 1.580 milljarða króna. Velta í hlutabréfum í desember var um 357 milljarðar króna sem er metmánuður í sögu Kauphallarinnar. Áður höfðu mest viðskipti átt sér stað í janúar 2006 eða 334 milljarðar króna. Úrvalsvísitalan hækkaði fimmta árið í röð, eða um 15,8 prósent, sem er svipuð hækkun og árið 2002. Var lokagildi hennar 6.410 stig í árslok en fór hæst í tæp sjö þúsund stig á mjög sveiflukenndu ári. Árið 2006 hófst með miklum látum sem komu í framhaldi af miklum hækkunum í árslok 2005. Eftir að Fitch breytti horfum á íslenska hagkerf- inu úr stöðugum í neikvæðar tóku hlutabréf og krónan að falla og hélst sú lækkun fram á sumar. Hlutabréfamarkaðurinn tók svo að rétta úr kútnum í ágúst og hækkaði hratt á þriðja ársfjórðungi. Hækkun Úrvalsvísitölunnar á síðasta ári er þó ekkert í líkingu við hækkunarárin 2003-2005 þegar Úrvalsvísitalan rauk upp um meira en 56 prósent á hverju ári, þar af um rúm 64 prósent metárið 2005. Frá ársbyrjun 2002 hefur Úrvalsvísitalan því hækkað um 460 prósent. Í fyrsta skipti á síðustu árum hækkaði ekkert félag um eitt hundrað prósent innan ársins. TM hækkaði mest allra félaga á nýliðnu ári, eða um 39,6 prósent. HB Grandi, Glitnir og FL Group sýndu einnig yfir þrjátíu prósenta ávöxtun. Til saman- burðar tvöfaldaðist gengi þriggja Kauphallarfélaga á árinu 2005 en þetta voru Landsbankinn, Bakkavör og FL Group. Árið 2002 hækkuðu mest bréf í Flugleiðum um 174 prósent og Pharmaco var hástökkvarinn árið 2003 með 182 prósenta ávöxtun. Atorka var svo sigurvegarinn árið 2004 með yfir 238 prósenta ávöxtun. Flaga Group var það fyrirtæki sem lækkaði mest á síðasta ári, eða um 43,2 prósent. Hlutabréfavelta ellefu- faldast frá árinu 2000 Yfir 80 prósenta veltuaukning var á hlutabréfum á milli áranna 2005 og 2006. Úrvalsvísitalan hefur stigið upp um 460 prósent frá ársbyrjun 2002. 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 199 137 321 554 721 1.202 2.192 HLUTABRÉFAVELTA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS Í MILLJÖRÐUM KRÓNA Nafni bankans Fischer Partners í Svíþjóð hefur verið breytt í nafnið Glitnir. Nýtt vörumerki og yfirbragð var tekið í notkun frá og með fyrsta viðskiptadegi nýja ársins. Bankinn segir að Glitnir hafi á níu mánuðum orðið vel þekkt vörumerki á norrænu mark- aðssvæði sem og á heimsvísu. Stefnan er að nota vörumerki Glitnis til að auðkenna öll dótt- urfélög og skrifstofur. Á föstu- daginn næsta breytist svo auð- kenni Fischer Partners sem nú heitir Glitnir í kauphöllum og verður eftirleiðis GLI. Í Kauphöll Íslands verður auðkenni Glitnis samt áfram GLB. Glitnir er með starfsemi í Osló, Álasundi og Þrándheimi í Noregi, í Stokkhólmi í Svíþjóð, Kaupmannahöfn í Danmörku, Lundúnum í Bretlandi, Halifax í Kanada, Sjanghaí í Kína og í Lúxemborg, auk starfsemi hér á landi. - óká Glitnir í stað Fischer Partners NÝR STJÓRI Anders Holmgren, nýr yfir- maður Glitnis í Svíþjóð, segir styrk felast í að starfa undir merkjum Glitnis. Heildarafli íslenska fiskiskipa- flotans nam 1,3 milljónum lesta á síðasta ári en hann hefur ekki verið minni síðan árið 1991 þegar hann var rétt rúm milljón lest- ir, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Botnfiskaflinn jókst um 9.000 lestir frá síðasta ári en uppsjáv- artegundir minnkuðu samtals um 345.000 lestir. Þá nam rækjuaflinn í fyrra einungis 3.000 lestum og hefur hann ekki verið minni í tæp 40 ár. Þá nam humaraflinn 2 þús- undum lesta og er hann óbreyttur síðastliðin þrjú ár. Engar hörpu- diskveiðar voru á árinu, að sögn Fiskistofu. - jab Lítill afli Heimild: Kauphöll Íslands Kaupþing í Færeyjum sér fram á að tvöfalda hjá sér starfsmannafjölda með auknum umsvifum. Færeyska útvarpið greindi frá því að bankinn hafi fengið leyfi til að reka þar bankastarfsemi, en hingað til hefur Kaupþing rekið þar verðbréfamiðlun. Bankinn ætlar að þjóna atvinnulífinu en með lánum sem móðurfélagið hefur þegar veitt færeyskum fyr- irtækjum nemur markaðs- hlutdeild hans þegar 20 til 25 prósentum. Peter Holm, forstjóri Kaupþings í Færeyjum, svaraði því til þegar færeyska útvarpið spurði hann hvernig náðst hefði jafnstór hlutdeild af markaðnum, að bankinn hafi lagt sig eftir því að ná til stærri viðskiptavina. Samningur milli Íslands og Færeyja sem gengið var frá í vetur greiðir leið margvíslegum viðskipt- um og fólksflutningum milli landanna og því geta íslenskir bankar hafið starfsemi í Færeyjum og öfugt, ef því er að skipta. Líklegt er að fyrirætl- anir Kaupþings, sem er meðal 100 stærstu banka í Evrópu og mun stærri en færeysku bankarnir, valdi nokkrum titringi á banka- markaði þar og fyrirsjáanleg er hörð samkeppni. - óká AUGLÝSING KAUPÞINGS Í FÆREYJUM Kaupþing hefur lengi stundað verðbréfamiðlun í Færeyjum, en með nýfengnu bankaleyfi verður öll starfsemin sameinuð í höfuðstöðvum bankans við Bókbindaragötu í Þórshöfn. Kaupþing má reka banka í Færeyjum Bankinn sér fram á að tvöfölda fjölda starfsmanna sinna í Þórshöfn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.