Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 36

Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 36
MARKAÐURINN H A U S 3. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR8 E R L E N D U R A N N Á L L 2 0 0 6 Hæst bar um miðjan júní að samevrópski flugvélaframleiðandinn Airbus tilkynnti að vandræði í rafkerfi nýjustu þotu fyrir- tækisins, risaþotunnar A380, hefðu valdið því að afhending vélanna gæti dregist um allt að sjö mánuði. Reyndar stóð aðeins til að afhenda eina vél í fyrra til flugfélagsins Singapore Airlines. Þróun og smíði risa- þotunnar hafði staðið yfir frá aldamótum og nam kostnaður við risaþotuna heilum 1.100 milljörðum íslenskra króna. Noel Forgeard, yfirmaður EADS, móðurfélags Airbus, sagði allt stefna í að einungis níu risaþotur yrðu afhentar á þessu ári, 20 til 25 vélar á því næsta en allt að 14 á næstu tveimur árum eftir það. Forsvarsmenn fjölda flugfélaga víða um heim, þar á meðal Singapore Airlines sem hafði pant- að 10 risaþotur, lýstu yfir vonbrigðum með tafirnar og nokkrir þeirra hótuðu að krefj- ast skaðabóta vegna þessa. Tafirnar drógu mikinn dilk á eftir sér og urðu meðal ann- ars til þess að gengi bréfa í EADS, móður- félagi Airbus, féllu um þriðjung sama dag og tók að hrikta í stoðum samstæðunnar. Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett var hins vegar boðberi óvæntra gleðitíðinda undir lok mánaðar þegar hann greindi frá því að hann hygðist gefa 85 prósent af öllum auðæfum sínum til góð- gerðamála. Talið er að eignir hans nemi allt að 3.000 milljörðum íslenskra króna. Stærstur hluti gjafarinnar, 10 milljón hlut- ir, sem metnir eru á tæplega 2.100 milljarða íslenskra króna, í Berkshire Hathaway, fjárfestingasjóði Buffetts, rennur til góð- gerðastofnunar Bill Gates, stofnanda og stjórnarformanns bandaríska hugbún- aðarrisans, og eiginkonu hans. Stofnun þeirra Gateshjóna, sem ber nafn þeirra beggja, berst gegn sjúkdómum og vinnur að aukinni menntun í þróunarríkjunum. Á síðasta degi sumarmánaðarins bár- ust þær fréttir vestan Atlantsála, að í bígerð væru viðræður bílaframleið- endanna General Motors, Nissan og Renault um samstarf á sviði bílafram- leiðslu. Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian átti frumkvæðið að viðræðun- um en fjárfestingarfélag hans var einn af stærstu hluthöfum í GM, sem hefur átt við hallarekstur að stríða og sagt upp þúsund- um starfsmanna og lokað verksmiðjum til að snúa afkomunni við. Kerkorian var bjartsýnn á árangur viðræðna þrátt fyrir andstöðu æðstu stjórnenda GM og lýsti því yfir að hann myndi auka við hlut sinn í GM ef af samstarfinu yrði. Forsvarsmenn bílaframleiðendanna funduðu sumarið á enda en bjartsýni þessa aldraða auðkýf- ings snerist upp í helber vonbrigði þegar nær dró haustdögum. Hluthafar Arcelor gáfu sig loksins skömmu fyrir júnílok eftir að Mittal Steel hafði hækkað yfirtökutilboð sitt talsvert frá fyrsta boði. Fyrirtækin skelltu nöfn- unum saman og úr varð Arcelor-Mittal, langstærsti stálframleiðandi í heimi. Ekki er ljóst hvort hinn almenni neyt- andi var jafn ánægður í Bandaríkjunum en undir lok mánaðar tilkynnti Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, að ákveð- ið hefði verið að hækka stýrivexti bankans enn á ný um fjórðung úr prósenti og fóru þeir við það í 5,25 prósent. Þetta var 17. hækkun bankans á tveimur árum og gaf Bernanke í skyn að nú væri endi bundinn á hækkanaferlið. Sú varð raunin enda hreyfðust stýrivextirnir ekkert það sem eftir lifði árs. „Við teljum að Renault og Nissan séu opin fyrir því að starfa með General Motors.“ Úr bréfi frá Kirks Kerkorian til stjórnenda General Motors í júní. Nokkuð hafði hitnað undir æðstu stjórn- endum EADS og dótturfélagi þess, Airbus, vegna tafa á afhendingu A380 risaþotn- anna. Úr varð að Noel Forgeard, aðstoð- arframkvæmdastjóri EADS og Gustav Humbert, forstjóri Airbus, sögðu upp störfum sínum á öðrum degi júlímánaðar. Þá var sala á hlutabréfum þeirra í flug- vélasmiðjunum rannsökuð en þeir voru taldir hafa komið bréfunum í verð áður en greint var frá töfum á afhendingunni. Og enn af Enron því Kenneth Lay, fyrr- um forstjóri og stjórnarformaður fyrir- tækisins, lést af völdum hjartaáfalls í sum- arhúsi sínu í Colorado í Bandaríkjunum að morgni dags 5. júlí. Hann var 64 ára að aldri. Fregnin kom flatt upp á marga enda hafði dómur fallið í Enronmálinu rúmum mánuði áður og átti Lay yfir höfði sér áratuga fangelsisdóm fyrir stórfelld fjársvik og fyrir að falsa afkomutölur fyrirtækisins. Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk í hæstu hæðir um miðjan mánuðinn þegar Ísraelsher gerði innrás gegn liðsmönn- um Hizbollah-samtakanna í suðurhluta Líbanon. Vart var á bætandi stöðu mála í Mið-Austurlöndum. Hráolíuverðið tók stórt stökk upp á við í 78 dali á tunnu og hafði það aldrei verið hærra. Hækkanirnar höfðu mikil áhrif víða um heim, ekki síst á afkomu bílaframleiðenda í Bandaríkjunum, sem höfðu átt við rekstrarvanda að stríða um langt bil. Olíuverðshækkanirnar bættu ekki úr skák enda sneri margur bíleigand- inn baki við bensínfrekum risajeppanum og festi kaup á sparneytnum og umhverf- isvænum bílum frá Japan. Japanski seðlabankinn spilaði fram nokkuð óvæntu trompi á sama tíma með 25 punkta hækkun stýrivaxta. Greiningaraðilar voru á einu máli um að þetta hefði verið söguleg stund því stýrivextir bankans höfðu staðið í núll prósentum frá því í ágúst árið 2000 en þá voru þeir núllstilltir til að bregðast við efnahagslægð sem reið yfir Asíu þremur árum fyrr. Undir lok mánaðar birtu svo bandarísku bílaframleiðendurnir afkomutölur sínar fyrir annan ársfjórðung. Niðurstöðurnar voru síður en svo jákvæðar og urðu til þess að fyrirtækin urðu að herða sultar- ólina enn frekar og segja fleirum upp auk þess sem gripið var til ýmissa leiða til að hagræða í rekstrinum. „Með ákvörðuninni í dag er horft til þess að við- halda stöðugleika og hag- vexti til langs tíma.“ Tilkynning frá Seðlabanka Japans þegar stjórn hans hækkaði stýrivexti um 25 punkta 14. júlí 2006. Ágústmánuður var nokkuð tíðindalít- ill. Í annarri viku mánaðar ákvað stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna að halda stýri- vöxtum óbreyttum í 5,25 prósent. Þetta var nokkuð sögulegur áfangi, því þar með var endi bundinn á samfelldar hækkanir á stýrivöxtum bankans síðastliðin tvö ár á undan. Aðrir seðlabankar fylgdu í kjölfarið en undir lok mánaðarins ákvað evrópski seðlabankastjórinn Jean-Claude Trichet að grípa til sömu aðgerða og kollegi hans vestanhafs og halda vöxtunum óbreyttum. Hátt eldsneytisverð jók enn á vandræði og hallarekstur bandarískra bílaframleið- enda. Neytendur virtust alfarið hafa snúið baki við stórum bensínhákum og sátu framleiðendur á borð við General Motors, Ford og Chrysler uppi með talsvert meira af óseldum sportjeppum en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Fyrirtækin gripu til frekari aðgerða til að draga saman í rekstrinum, seldu frá sér dótturfélög og skáru niður í mannahaldi. Þá skipti Ford um mann í brúnni en Bill Ford, forstjóri og afkom- andi stofnanda fyrirtækisins, fór út fyrir Alan Mulally, fyrrum forstjóra Boeing. Og meira af aðhaldi því samstarfsviðræð- ur bílaframleiðendanna GM, Nissan og Renault sigldu í strand í upphafi mánaðar og var þeim slitið í kjölfarið eftir fjög- urra mánaða fundahöld. Þrátt fyrir bága fjárhagsstöðu GM taldi félagið sig leggja meira af mörkum til samstarfs og náðust ekki sættir um málið. Kirk Kerkorian lýsti yfir sárum vonbrigðum með niðurstöðuna og losaði hann sig við um helming bréfa sinna í bandaríska bílaframleiðandanum í mótmælaskyni. Fjárfestar víða um heim brostu hins vegar út í eitt um miðjan mánuðinn enda ruku hlutabréfavísitölur víðs vegar í áður óþekktar methæðir. Indverska hlutabréfa- vísitalan Sensex náði sömu hæðum undir lok september í kjölfar birtingar hagtalna, sem bentu til ágæts hagvaxtar í land- inu. Fjárfestar þar í landi kættust enda stefndi allt í að hlutabréfavísitalan væri BARIST UM BRETLAND Yfirtökutilraunir og samrunar kauphalla í Evrópu settu mark sitt á viðskiptafréttir liðins árs. Árið hófst með áframhaldandi tilraunum kauphalla til að sameinast Kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi (LSE). Í janúar end- urtók ástralski fjárfestingabankinn Macquire leikinn frá því í desember árið áður og gerði ríflega 166 milljarða króna yfirtökutilboð í öll hlutabréf LSE. Tilraunin tókst ekki enda stóð Carla Furse, forstjóri LSE, fast á sínu að tilboðið væri of lágt og endurspeglaði ekki raunverulegt virði markaðarins, sem hún taldi víst að myndi stækka á næstu árum. Furse sat við sama keip þegar bandaríski hlutabréfa- markaðurinn Nasdaq lagði fram 336 milljarða króna yfirtökutilboð í markaðinn í marsmánuði. Lítið lá hins vegar fyrir um framtíðarhorfur LSE, einnar elstu kaup- hallar Evrópu. Ákvörðun Furse að skella skollaeyrum við gylliboðum annarra kauphalla gladdi hins vegar hluthafa bresku kauphallarinnar því þráfaldleg tilboð í hana hefur keyrt gengi hennar upp á við. Stjórn Nasdaq ákvað að draga tilboðið til baka undir lok mars. Um hálfum mánuði síðar lagði bandaríski sjóð- urinn svo fram trompið er hann greindi frá því að hann hefði gert samkomulag við einn stærsta hluthafa LSE og tryggt sér rétt rúma 38 milljón hluti í markaðnum sem jafngildir 15 prósent hlutabréfaeignar. Hlutafjáreignin í LSE jókst hægum skrefum og undir lok nóvember hafði Nasdaq nælt sér í 28,75 prósent hlutafjár í LSE. Markmiðið með kaupunum var af tvennum toga. Í fyrsta Síðasta ár einkenndist af tilraunum hlutabréfamarkaða til að renna saman í eina sæng.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.