Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 45
Heilsuefling verður stór liður í starfsemi nýs hótels sem opnað verður á morgun 4. janúar að Efri-Vík í Landbroti. Það heitir Hótel Laki. „Það er erfitt að ná mér í rúminu því nóg er að gera og nú flýgur tíminn,“ segir Eva Björk Harðar- dóttir í Efri- Vík glaðlega þegar slegið er á þráðinn til hennar á tíunda tímanum einn morguninn og spurt hvort verið sé að vekja. „Við erum á lokasprettinum með fyrsta áfanga hótelsins af þrem- ur. Þar eru 16 herbergi, matsalur, nýtt eldhús og bar. Svo erum við búin að breyta gamla íbúðarhús- inu í stórt lobbý, brjóta niður veggi og breyta.“ Samhliða hefðbundnum rekstri í gistingu, veitingasölu, ráð- stefnuhaldi og veislum verður svokölluð Heilsulind stór þáttur í starfsemi Hótel Laka að sögn Evu Bjarkar. „Við erum að setja upp dagskrá með heilsutengdum við- burðum og höfum fengið í lið með okkur um 20 bestu sérfræðinga landsins í mataræði, líkamsrækt og hvers kyns heilsueflingu. Þar má nefna Nataliu B. Sirenko, Sól- veigu Eiríksdóttur, Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, Goran yfirþjálf- ara hjá Nordica Spa, Ester Guð- mundsdóttur sem unnið hefur með matarfíkla og lithimnufræð- inginn Lilju Oddsdóttur. Einnig verðum við með spákonu sem rýnir í framtíðina og miðla, rope joga-meistara og heilun, fyrir utan heita potta og sauna sem við höfum boðið uppá lengi. Þannig að nú getur fólk gefið heilsubótar- helgi á Hótel Laka í tækifæris- gjafir!“ Efri-Vík er um fimm kílómetr- um sunnan við Kirkjubæjar- klaustur. Margir hafa notið þess að dvelja þar í heimagistingu og smáhýsum því ferðaþjónusta hefur verið rekin þar í áratugi af foreldrum Evu Bjarkar, Herði Davíðssyni og Salóme Ragnars- dóttur. Síðustu ár hafa þau Eva Björk og Þorsteinn Kristinsson maður hennar tekið fullan þátt í rekstrinum og nú mun nafnið á fyrirtækinu breytast. Eva Björk er spurð út í það. „Laki er þekkt örnefni í nágrenni okkar og því fylgir mikil orka. Það bendir til hræringa og breytinga, hita og krafts. Við ætlum að reyna að starfa þannig. Það má líka geta þess að golfklúbburinn hér heitir Laki og golfvöllurinn er á gamla túninu okkar.“ Heimasíða hótelsins er þó enn sem komið er www.efrivik.is. Lífsstílshótelið Laki KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905 Chitralada-höllin í Bangkok er heimili Bhum- ibol Adulyadej konungs og Sirikit drottningar Taílands. Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, heimsótti konungshöllina ný- lega. Höfuðborgin Bangkok er stærsta og fjölmennasta borg Taílands. Í borginni, sem er þekkt á máli heima- manna sem Krung Thep, búa samkvæmt opinberum tölum um það bil 6,4 milljónir manna. Sannleikurinn er hins vegar sá að í borginni búa og starfa allt upp í 15 milljónir manna. Straumur ferðamanna til borgarinnar hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár og er borgin nú vinsælasti ferða- mannastaður í Asíu. Eitt helsta aðdráttarafl ferða- manna í borginni er Chitralada-konungshöllin sem er ein af þremur höllum konungsfjölskyldunnar í borg- inni. Höllin og umhverfi hennar eru sveipuð sannköll- uðum ævintýraljóma, girðingin umhverfis hallargarð- inn þykir vera einstaklega falleg smíði og innan hennar eru gylltir þaktoppar, íburðarmiklar styttur og glæsi- legir listmunir sem gnæfa yfir gesti hallargarðsins. Bhumibol konungur, sem nú situr að krúnunni, er fyrsti konungurinn af ætt sinni til þess að búa í höllinni, en hann fluttist í höllina eftir að eldri bróðir hans, Rama VIII konungur, lét lífið með dularfullum hætti í annarri konungshöll í borginni. Íburðarmikið listasafn konungs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.