Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 54
„Ég er kominn ósköp vel á veg og veit í hjarta mér að sjái ég trippi eða folald fara um haga á það fleiri daga framundan en ég.“ Marteinn Lúther bannfærður Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuð- borgarsvæðisins, fór í fyrstu eftirlits- göngu sína í nýju umdæmi í gær. Höfuðborgarumdæmið hóf starfsemi sína á nýársdag þegar lögregluemb- ættin í Reykjavík, Kópavogi og Hafn- arfirði voru sameinuð, en fyrsti virki starfsdagurinn var í gær. „Svona hefð- bundin starfsemi á virkum dögum fór öll í gang núna,“ sagði Stefán í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann sagði breytingarnar hafa gengið ótrúlega vel, en þær hafa verið í undirbúningi í hálft ár. „Öll kerfi virkuðu og allir starfsmenn taka full- an og virkan þátt í þessu og mæta þess- um breytingum með jákvæðni og brosi á vör. Það er lykillinn að góðum árangri,“ sagði Stefán. Hann sagði embættið þó ekki vera fullskapað á öðrum degi. „Við erum ekki með allt saman klárt og tilbúið og mótað upp í topp – enda væri það óeðlilegt, því lög- reglan á að þróast í takt við það umhverfi sem hún býr í og þjónar,“ bætti hann við. Eitt markmiðið með sameiningunni var að gera löggæslu sýnilegri, og sagði Stefán eftirlitsgönguna um miðbæ Reykjavíkur hafa verið lið í því. „Þetta er það sem við munum gera, ekki bara ég, heldur allir yfir- menn hjá þessu nýja embætti. Þetta er mikilvægt fyrir sýnilegu löggæsluna, og einnig mikilvægt fyrir yfirmenn til að vera í tengslum við íbúana og það sem er að gerast í umdæminu,“ sagði Stefán. „Við þurfum nú einhverjum tíma að eyða fyrir aftan skrifborðin líka, en við ætlum að taka virkan þátt í þessari starfsemi,“ bætti hann við. Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, Kjartan Stefánsson Keen listmálari, Lundi, Skagaströnd, lést 22. desember. Örn Smári Kjartansson Bjarney Vala Steingrímsdóttir Árdís Kjartansdóttir Hjörleifur Jóhannesson Kristín Þóra Kjartansdóttir Hlynur Hallsson Guðlaug Ásta Stefánsdóttir Vazquez og barnabörn. Sambýlismaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, Ólafur Jónsson fyrrverandi formaður Landssambands eldri borgara, lést í Sunnuhlíð í Kópavogi á gamlársdag. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna Sigríður Gunnlaugsdóttir Bjarni Ólafsson Kristín Indriðadóttir Anna Ólafsdóttir Björn Jónsson Hafdís Ólafsdóttir Guðmundur Einarsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús E. Baldvinsson úrsmíðameistari, Hvassaleiti 58, Reykjavík, lést þann 30. desember síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 5. janúar kl. 11.00. Unnur H. Benediktsdóttir Erla Magnúsdóttir Örn Þórhallsson Guðrún Magnúsdóttir Jón Sveinsson Þuríður Magnúsdóttir Björn Á. Ágústsson barnabörn og langafabörn Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Svavar Sigurðsson vélvirki, Völvufelli 14, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 23. desember. Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju föstudaginn 5. janúar kl. 13.00. Ellen Ingibjörg Árnadóttir Gunnar Svavarsson Lára Sveinsdóttir Örn Svavarsson Anna Kristín Sigurjónsdóttir Guðmundur Sigurðsson Ólöf Jóhannsdóttir Hinrik Þór Harðarson Guðbjörg Óskarsdóttir Árni Már Harðarson Gerður Björk Harðardóttir Kjartan Ólafsson Björg Gunnarsdóttir Jóhanna Gunnarsdóttir Lilja Gunnarsdóttir María Gunnarsdóttir Viktor Örn Arnarson Daníel Sigþór Arnarson Aron Gunnar Halldórsson Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir og amma, Sigrún J. Jóhannsdóttir Mávahlíð 36, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 29. desember. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 5. janúar kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð hjúkrunarþjónustu Karítas, sími 551 5606 milli kl. 9 og 10. Sigurður J. Stefánsson Jóhann Kristján Kristjánsson Anna B. Gunnarsdóttir Ingólfur Davíð Sigurðsson Rósa Árnadóttir og barnabörn. Elskuleg systir okkar, Jóhanna María Jóhannsdóttir andaðist á sjúkrahúsi Neskaupstaðar 22. desember sl. Útför hennar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju fimmtu- daginn 4. janúar kl 14. Sigríður Jóhannsdóttir Ármann Jóhannsson og aðrir aðstandendur. Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Rögnu Björnsson Ásvallagötu 24, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. janúar kl. 15.00. Jón Ásgeir Sigurðsson Margrét Oddsdóttir Margrét Sigurðardóttir Þórir Haraldsson Björn Sigurðsson Hekla Smith barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Olga Gísladóttir Kirkjulundi 8, Garðabæ, áður Heiðragerði 90, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 1. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigurður Sigurðsson Erla Fríður Sigurðardóttir Ingvar Friðriksson Fríður Sigurðardóttir Ari Guðmundsson Guðmundur Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Lokað í dag, 3. janúar, vegna jarðarfarar Maríu Sigmundsdóttur. STOFNAÐ 1956
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.