Fréttablaðið - 10.01.2007, Qupperneq 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
NISSAN PATHFINDER SE 32”
Nýskr. 12.05 - Sjálfskiptur - Ekinn 23 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
4.390
.000.
-
Birgir, á að varpa ASÍ fyrir
borð?
Niðurstöður nefndar
Framsóknarflokksins, sem falið
var að afla upplýsinga og móta
samningsmarkmið við Evrópu-
sambandið, verða kynntar á
flokksþingi framsóknar í mars-
byrjun.
Orri Hlöðversson, formaður
nefndarinnar, segir talsverða
vinnu við upplýsingaöflun að baki
og fram undan sé að vinna úr
gögnunum og draga saman niður-
stöður.
Nefndin hóf störf í ágúst 2005
og hefur starfað samkvæmt álykt-
un flokksþings frá í febrúar sama
ár. Í nefndinni sitja tveir fulltrú-
ar hvers kjördæmis, auk þing-
flokksformanns og þingmanna
Framsóknarflokksins í utanríkis-
málanefnd Alþingis.
Orri tekur skýrt fram að það
sé ekki í verkahring nefndarinn-
ar að kveða uppúr um hvort Fram-
sóknarflokkurinn eigi að stíga
einhver skref í átt til Evrópusam-
bandsins eða ekki. „Við höfum
ímyndað okkur að við séum í
aðildarviðræðum án þess að taka
afstöðu til þess hvort við eigum
að fara í þær eða ekki.“
Nefndin hefur fjallað um helstu
málaflokka sem samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið tekur
til og segir Orri Ísland njóta sömu
stöðu og Evrópusambandsríkin
hvað þá áhrærir. „Við erum fylli-
lega í takti við Evrópusambandið í
þessum helstu málaflokkum sem
við höfum unnið eftir,“ segir hann
og nefnir vinnumarkaðsmál,
umhverfismál og fjármagnsmark-
aði. „Við erum miklu Evrópu-
væddari heldur en við gerum
okkur grein fyrir dagsdaglega.“
Útaf standi klassísk ágreinings-
mál á borð við landbúnaðar- og
sjávarútvegsmál, með þau hafi
verið unnið sérstaklega og verða
samningsmarkmið skilgreind.
Sama gildi um öryggis- og varnar-
mál í víðum skilningi og svo mynt-
mál.
Nefndarmenn koma úr ýmsum
áttum og hafa ólíkar skoðanir á
Evrópumálum. Í hópnum eru
stjórnarmenn í Evrópusamtökun-
um og fyrrum stjórnarmaður í
Heimssýn – samtökum sem telja
það ekki samrýmast hagsmunum
Íslendinga að gerast aðilar að
Evrópusambandinu. Orri segir
nefndarmenn hafa reynt að halda
sig á ópólitískum nótum og nálg-
ast viðfangsefnið með faglegum
hætti. Þá hafi álita sérfræðinga á
einstökum málum verið leitað.
Flokksþing Framsóknarflokks-
ins verður haldið í Reykjavík dag-
ana 2. og 3. mars.
Framsókn mótar
samningsmarkmið
Innan Framsóknarflokksins er mótun markmiða Íslendinga í hugsanlegum
aðildarviðræðum við Evrópusambandið á lokastigi. Málið hefur verið í vinnslu
frá haustinu 2005 og verða niðurstöður kynntar á flokksþingi í byrjun mars.
Tæplega tvítugur piltur
var í gær ákærður fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir fíkni-
efnabrot, stórfelld eignaspjöll og
fjórtán umferðarlagabrot. Öll
þessi brot framdi hann á um það
bil níu mánaða tímabili.
Eignaspjöllin framdi pilturinn
í júlí þegar hann bramlaði tvær
BMW-bifreiðar á bílasölu, hellti
síðan yfir þær bensíni og kveikti
í. Báðar bifreiðarnar eyðilögðust
og tvær aðrar sem stóðu nálægt
þeim urðu fyrir skemmdum af
völdum eldsins.
Þá var pilturinn margoft tek-
inn við akstur, sviptur ökuréttind-
um, auk þess sem hann ók eitt
sinn tvisvar á sömu bifreiðina og
stórskemmdi hana.
Kveikti í tveim-
ur BMW-bílum
Vladimír Pútín, forseti
Rússlands, fyrirskipaði ríkisstjórn
sinni í gær að draga úr olíufram-
leiðslu vegna olíudeilunnar við
Hvíta-Rússland sem gæti því
dregist á langinn.
Rússland skrúfaði fyrir olíu
leiðslur í gegnum Hvíta-Rússland
til nokkurra Evrópulanda á mánu-
dag. Ástæðan er sögð að Hvítrúss-
ar ræni olíu úr leiðslunni.
Sérfræðingar segja að olíu-
birgðir Hvíta-Rússlands endast í
viku í mesta lagi en stjórnvöld
neita að tjá sig um stöðuna. Pútín
virðist telja dagaspursmál hve-
nær Alexander Lúkasjenko, for-
seti Hvít-rússa, gefi eftir í deil-
unni vegna þverrandi olíubirgða í
landinu að mati fréttaskýrenda.
Ár er síðan truflun varð á gas-
flutningi frá Rússlandi vegna
verðdeilu Rússa og Úkraínu-
manna. Deilan hefur á ný vakið
áhyggjur hve Evrópa er háð Rúss-
land um orku.
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, og
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, tóku harkalega til orða í
gær. „Óviðunandi“ væri að lönd,
sem flytji eða framleiði orku,
skrúfi fyrir án samráðs.
Merkel sagði að Þýskaland gæti
ekki verið háð einum aðila um gas.
Aðrir möguleikar væru nýting
kjarnorku og endurnýtanleg orka.
Hörð afstaða Pútíns í olíudeilu
Sexburar komu í
heiminn í Kanada síðastliðna
helgi, eftir aðeins sex mánaða dvöl
í legi móður sinnar. Börnin vega
aðeins 700 til 800 grömm og eru
ekki mikið stærri en svo að þeir
rúmast í lófa. Fyrsti sexburinn
fæddist á laugardagskvöld og
hinir fimm fylgdu í kjölfarið á
sunnudagsmorgun.
Frægasta fjölburafæðing í Kan-
ada hingað til var þegar Dionne-
fimmburarnir fæddust árið 1934.
Fæðingu þeirra var fagnað sem
læknisfræðilegu kraftaverki en
sorgleg örlög biðu þeirra. Yfirvöld
dæmdu foreldra þeirra óhæfa til
að ala börnin upp.
Sexburar litu
dagsins ljós
Kaupþing gekk í gær frá
útgáfu skuldabréfa til þriggja ára
í Sviss fyrir sem nemur 200
milljónum svissneskra franka,
eða 11,5 milljörðum króna.
Guðni Níels Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri fjárstýringar
Kaupþings, segir kjörin með þeim
bestu sem bankanum hafa boðist í
nokkurn tíma, 28 punktar yfir
LIBOR millibankavöxtum. Í
sambærilegri útgáfu í Bandaríkj-
unum fyrir áramót voru kjörin 70
punktar. „Við vildum vera vissir
um að fara ekki aftur inn á
Evrópumarkað nema að góð kjör
væru í boði. Þetta sýnir að
ávöxtunarkrafan á Kaupþing er
að lækka,“ segir hann, en útgáfan
er sú fyrsta hjá bankanum á
Evrópumarkaði í rúmt ár.
Kröfur lækka
um ávöxtun
Enn ber á því að
illa sé farið með erlent vinnuafl á
íslenskum vinnumarkaði. Youss-
ouph Bayo frá Senegal bjó og
starfaði á Íslandi í hálft ár. Hann
hafði búið á Spáni í fimmtán ár
þegar hann kom til landsins í júlí.
Hjá Útlendingastofnun fékk
hann þær upplýsingar að hann
ætti að finna vinnu og vinnuveit-
andinn myndi síðan útvega honum
leyfi og kennitölu. Það gekk ekki
eftir.
Youssouph Bayo, sem í gær
bjóst við að yfirgefa landið í morg-
un, segir að hann hafi starfað í
hálft ár við garðyrkjustörf og
hellulagnir hjá Má Ívari Henrys-
syni, eiganda Járnvirkjans. Youss-
ouph segir að á þessum tíma hafi
hann búið hjá vinnuveitandanum í
Meðalholti og aðeins fengið tíu og
fimmtán þúsundkall í laun öðru
hvoru.
Youssouph missti þolinmæðina
um áramótin og óskaði eftir laun-
unum en segir að þá hafi Már tekið
af honum útidyralykilinn og lokað
hann úti. Youssouph hafði sam-
band við lögreglu, Vinnumála-
stofnun og Trésmiðafélag Reykja-
víkur til að innheimta launin sín.
Halldór Jónasson, starfsmaður
Trésmiðafélagsins, segist hafa
reynt að hafa samband við vinnu-
veitandann en án árangurs. Hann
telur ekki mikla von um að inn-
heimta takist.
Ekki náðist í Má Ívar Henrys-
son, eiganda Járnvirkjans, í gær.
Varð að fara án launa sinna
Sterar og vaxtar-
hormón fundust í bíl í Norrænu í
gær af tollgæslunni á Seyðisfirði.
Lögreglan sagði efnin falin í
farangri: 200 stykki af vaxtar-
hormónum og 40 hylki af sterum.
Bílinn átti par á þrítugsaldri og
viðurkenndi karlmaðurinn að efnin
væru til eigin nota. Kaupverð er
um hálf milljón króna.
Tekinn með 40
hylki af sterum
Daginn áður en
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti kynnir breyttar áherslur í
Írak lagði Ted Kennedy, öldunga-
deildarþing-
maður demó-
krata, fram
lagafrumvarp
sem meinar
forsetanum um
aukafjárveit-
ingar til að
hrinda tillögum
sínum í
framkvæmd.
Demókratar ráða meirihlutanum
á þingi .
Gordon Smith, öldungadeildar-
þingmaður repúblikana, staðfesti
í gær að forsetinn leggi til
fjölgun um 20.000 hermenn í
Írak. Liðsaukanum væri ætlað að
styrkja setulið Bagdad og í
Anbar-sýslu, þar sem uppreisnar-
menn súnnía hafa haft sig einna
mest í frammi.
Gætu strandað
á demókrötum