Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 10. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Uppgjörstímabilið er í nánd í Kauphöll Íslands
og bíða fjárfestar spenntir eftir fyrstu tölum.
Greining Glitnis ríður á vaðið með fyrstu
afkomuspá ársins en von er á svipuðum
skýrslum frá kollegunum í Kaupþingi og
Landsbankanum á næstunni. Í afkomuspánni
frá Glitni er spáð fyrir um afkomu flestra
fyrirtækja í Kauphöll Íslands á fjórða árs-
fjórðungi nýliðins árs auk afkomu félaganna
árin 2007 og 2008.
LANGLEIÐINA Í 8.000 STIG
Ekki verður annað sagt en að rífandi gangur
sé á hlutabréfamarkaði um þessar mundir en
Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 5,6 prósent
frá áramótum þegar þetta er ritað. Greining
Glitnis áætlar að vísitalan hækki um 21 pró-
sent á þessu ári sem yrði öllu meiri hækkun
en á síðasta ári þegar Úrvalsvísitalan hækk-
aði um 15,8 prósent. Þetta myndi þýða að
Úrvalsvísitalan stæði í um 7.750 stigum í lok
árs.
Aðstæður eru góðar á hlutabréfamarkaði,
horfur eru á góðri afkomu fyrir árið í ár og
kennitölur félaga eru hagstæðar. „Við teljum
að núverandi verðlagning markaðarins sé
fjárfestum hagstæð miðað við vænta afkomu
og arðsemi ársins 2007,“ segja sérfræðingar
Glitnis. Útlit er fyrir frekari útrás og vöxt
bæði fjármálafyrirtækja og annarra félaga
sem dragi enn frekar úr þýðingu innlends
efnahaglífs fyrir rekstur fyrirtækjanna. Að
mati greiningardeildarinnar eru það þó fjár-
málafyrirtækin sem koma til með að draga
vagninn, enda eru mörg rekstrarfélaganna
að ná tökum á þeim fyrirtækjakaupum sem
þau hafa verið að ráðast í og sýna því lakari
ávöxtun.
Glitnir telur ennfremur að erlendir fjár-
festar verði meira áberandi í eigendahópum
fyrirtækjanna en áhugi þeirra hefur farið vax-
andi á íslenskum fyrirtækjum. Aukin erlend
umræða um hagkerfið og íslensku bankana
hefur gert það að verkum að erlend fjármála-
fyrirtæki eru farin að greina íslenska banka.
Sameining Kauphallar við OMX eykur einnig
sýnileika íslenska markaðarins.
Helsta hættan, sem hlutabréfamarkaðn-
um stafar ógn af, er núverandi ójafnvægi í
hagkerfinu. Harkaleg lending þess, til dæmis
með skjótri lækkun krónunnar, gæti dregið
markaðinn niður en mjúk lending yrði hins
vegar jákvæð fyrir hann.
KAUPÞING OG FL SLÁ MET
Því er spáð að heildarhagnaður þeirra fyr-
irtækja sem Glitnir skoðar verði um 250
milljarðar króna fyrir árið 2006, þar af yfir
88 milljarðar króna á síðasta ársfjórðungi.
Fjármálafyrirtæki og fjárfestingarfélög taka
stærstan skerf sem endranær, enda einkennd-
ist árið 2006 af miklum sölu- og gengishagn-
aði hjá þeim. Fjögur félög skila yfir þrjátíu
milljarða króna hagnaði og það fimmta kemst
þar nærri. Rétt er að taka það fram að Glitnir
spáir ekki fyrir um eigin afkomu.
Arðsemi eigin fjár verður góð fyrir árið
2006 eða um 26 prósent.
Kaupþing leiðir listann fyrir árið 2006 sem
var mjög viðburðaríkt hjá bankanum. Honum
er spáð 11.945 milljóna króna hagnaði á
fjórða ársfjórðungi og yfir 79 milljarða hagn-
aði fyrir allt síðasta ár. Þetta yrði langmestur
hagnaður í sögu nokkurs íslensks fyrirtækis,
en bankinn hafði, sem kunnugt er, slegið árs-
metið strax eftir fyrstu níu mánuðina 2006.
FL Group skilar næstmestum hagnaði
fyrir árið eða yfir 45 milljörðum. Hann fell-
ur að mestum hluta til vegna söluhagnaðar
á Icelandair Group á síðasta ársfjórðungi.
Gangi spá Glitnis eftir um 35.542 milljarða
hagnað á fjórða ársfjórðungi er það örlítið
meira en methagnaður Kaupþings á þriðja
ársfjórðungi þegar bankinn innleysti mikinn
hagnað af sölu bréfa í Exista.
ÓVISSA MEÐ LANDSBANKANN
Glitnir reiknar með að bæði Landsbankinn og
Exista skili yfir þrjátíu milljarða króna hagn-
aði fyrir 2006 og Straumur-Burðarás verði
með 28 milljarða. Afkoma Landsbankans
á síðasta ári hefur verið yfir væntingum
Glitnis og er búist við góðum innri vexti í ár.
Greining Glitnis gerir ráð fyrir ríflega 7,5
milljarða hagnaði á síðasta ársfjórðungi en
óvissa felst í söluhagnaði á eignarhlutum LÍ
í CRa og Gretti.
Undirstaða hagnaðar Exista á síðasta ári
byggist á gengishagnaði af hlutabréfum,
einkum í Kaupþingi og Bakkavör. Horfur
á þessu ári og því næsta eru góðar þar
sem Glitnir gerir ráð fyrir hækkunum á
eignarhlut í Kaupþingi og batnandi reksturs
rekstrarfélaga eins og VÍS. Exista er því
eina fyrirtækið tengt fjármálaþjónustu sem
mun auka hagnað sinn á milli 2006 og 2007,
Glitnir reiknar með 46 milljarða hagnaði
Exista á árinu og að aðeins Kaupþing skili
hærri tölum í hús.
Afkoma Straums
var nokkuð sveiflu-
kennd á síðasta ári.
Gengishagnaður á fyrsta
ársfjórðungi skapaði
meginhluta hagnaðar
síðasta árs. Fjórði árs-
fjórðungur gæti einnig
orðið ágætur en félagið
hefur eflt mjög tekju-
þætti er snúa að vaxta-
og þóknunartekjum.
Afkoma Actavis
og Bakkavarar fyrir
árið 2006 slagar hátt í
tíu milljarða og verð-
ur góður hagnaður hjá
félögunum á fjórða
ársfjórðungi. Í forsend-
um Glitnis er gert ráð
fyrir að Bakkavör fái
tryggingabætur vegna
bruna frá árinu 2004 en
bæturnar eru hærri en
bókfært virði eigna. Þá
skilar Alfesca miklum
hagnaði fyrir fjórða árs-
fjórðung.
Hf. Eimskipafélagið
verður með yfir tíu milljarða hagnað á síð-
asta ársfjórðungi gangi spáin eftir. Þar er um
að ræða mikinn söluhagnað af eignum í Avion
Group, en næsta ár mun einkennast af mikilli
samþættingu. Í vel dreifðum eignasöfnum
er mælt með yfirvogun á bréfum
í Eimskipafélaginu sem þýðir að
félagið muni skila betri ávöxtun
en markaðurinn til næstu þriggja
til sex mánaða. Aðeins eitt annað
félag er sett í yfirvogun en það er
Kaupþing.
SÖLUHAGNAÐUR LÆKKAR
Glitnir setur sig í völvustelling-
ar og spáir fyrir um árið 2007
og ennfremur árið 2008 sem er
nýmæli þar á bæ. Býst hann við
því að hagnaður fyrir yfirstand-
andi rekstrarár lækki á milli ára
sem skýrist aðallega af því að
árið 2006 einkenndist af miklum
söluhagnaði fyrirtækja. Vænt V/H
gildi markaðarins hækkar þannig
úr 10,4 í 11,8 fyrir árið 2007 og
vænt arðsemi eigin fjár fer úr 26
prósentum í 17,7 prósent.
Hins vegar er gert ráð fyrir
að samanlagður hagnaður ársins
2008 verði meiri en fyrir árið
2006. „Við gerum því ráð fyrir að vöxtur
stöðugra rekstrartekna nái á tveimur árum
að yfirvinna hinn mikla söluhagnað af eign-
um og aðra einskiptis hagnaðarliði frá árinu
2006,“ segja sérfræðingar Glitnis.
Fjármálafyrirtækin draga áfram vagninn
Útlit er fyrir að hlutabréfaárið 2007 verði betra en það síðasta að mati greiningar Glitnis sem reiknar með því að hagnaður
fyrirtækja verði um 88 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi og yfir 250 milljarðar fyrir nýliðið ár. Hagnaður á yfirstandandi
rekstrarári lækkar frá 2006 vegna minni söluhagnaðar en mun aukast á ný árið 2008 þegar rekstrartekjur yfirvinna söluhagn-
að. Eggert Þór Aðalsteinsson gluggaði í spána.
S P Á G L I T N I S U M A F K O M U
K A U P H A L L A R F É L A G A
2 0 0 6 O G Á 4 . Á R S F J . *
Afkoma 2006 4. ársfj. 2006
365 hf. Spá ekki -7
Actavis 9.726 3.188
Alfesca 1.637 1.807
Atorka Group 6.143 716
Bakkavör 9.587 4.511
Exista 31.043 6.748
FL Group 46.519 35.542
Hf. Eimskipafélagið 5.172 10.128
Icelandic Group -672 -984
Kaupþing 79.170 11.945
Landsbankinn 32.800 7.557
Marel 104 38
Mosaic Fashions 1.974 705
Straumur-Burðarás 28.005 7.167
Vinnslustöðin 15 -73
Össur 287 -359
251.510 88.629
* Bankinn spáir ekki fyrir um eigin afkomu.
Allar tölur í milljónum króna
S P Á G L I T N I S U M A F K O M U F J Á R M Á L A -
O G F J Á R F E S T I N G A R F É L A G A 2 0 0 6 - 2 0 0 8
2006 2007 2008
Kaupþing 79.170 57.879 66.886
FL Group 46.519 28.664 31.393
Landsbankinn 32.800 24.184 28.958
Exista 31.043 45.988 54.289
Straumur-Burðarás 28.005 19.750 22.108
Alls 217.537 176.465 203.634
Allar tölur í mlljónum króna
Helsta hættan,
sem hlutabréfa-
markaðnum stafar
ógn af, er núver-
andi ójafnvægi
í hagkerfinu.
Harkaleg lending
þess, til dæmis
með skjótri
lækkun krónunn-
ar, gæti dregið
markaðinn niður
en mjúk lending
yrði hins vegar
jákvæð fyrir hann.