Fréttablaðið - 10.01.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 10.01.2007, Qupperneq 38
2 Rétt við Ingólfsgarð þar sem varð- skipin lágu áður fyrr og Faxaskáli vitnaði um veldi Eimskips er hafin bygging tónlistarhúss. Niðri í djúp- um grunni er unnið að þéttri bind- ingu járna og þótt mannshöndin sé þar að verki þá kemur krani líka að góðum notum við að færa járnin til. Aðeins austar með ströndinni er verið að stækka landið með stórgrýti sem sturtað er í sjóinn og malarpúði lagður ofan á. Þar eiga vinnubúðir Íslenskra aðalverktaka að standa en þeir hafa byggingu tónlistarhússins með höndum. Grjótið kemur upp úr grunni í Borgartúninu þar sem sprengt er og grafið fyrir enn einu stórhýsinu. Öflugir bílar eru svo í förum eftir Sæbrautinni með hnull- ungana. Pétur Pétursson er að jafna úr grjóthlössum á glænýrri Hyundai- gröfu sem hann segir með þeim stærri og betri á landinu. Hann hefur stjórnað gröfum í átta ár og hefur því samanburðinn. Meðal annars kveðst hann hafa verið upp við Kárahnjúka í eitt ár við að fleyga inni í göngum og fleira sem til féll og ekki viljað missa af þeirri reynslu. Nú starfar hann hjá fyrirtækinu Ísar sem er verktakafyrirtæki í bryggju- framkvæmdum. Hann er að spjalla við Bjarna Ástvaldsson sem vinnur hjá Íslenskum aðalverktökum og hefur gert frá árinu 1973. Lengst af kveðst Bjarni hafa verið í steypustöð á Keflavíkurflugvelli en nú hafa fært sig til borgarinnar. Spurður hvort hann búist við að verða við tónlist- arhússbygginguna næstu mánuði og ár svarar hann brosandi. „Ég veit ekkert hvar ég verð eftir morgun- daginn. Þá gæti ég verið kominn austur á land.“ -gun Vélar á vettvangi framkvæmdanna Hvarvetna þar sem framkvæmdir standa yfir blasa við vinnuvélar, stórar og smáar. Liðstýrðu Schäffer Lader liðlétt- ingarnir hafa verið framleiddir í meira en 50 ár. Fjörutgerðir eru fáanlegar og þær minnstu eru innan við 80 sm á breidd. Liðstýring Lader gerir þeim kleift að smjúga um í miklum þrengslum, um leið og þeir hafa þann kost að hlífa undirlaginu. Þó að liðléttingur taki krappa beygju á grasfleti veldur hann litlum skemmdum, en snúningsradíus- inn á minnstu vélinni er 55 sm. Vegna þess hve vel liðléttingur- inn fer með landið hafa til dæmis Kirkjugarðarnir í Reykjavík keypt nokkrar vélar og Egilshöllin notar liðlétting við vinnu á gervigrasinu þar. Allar vélarnar eru fjórhjóla- drifnar og er lyftigeta minnstu vélanna um tonn en þrjú tonn á þeim stærstu. Umboðsaðili Schäffer Lader á Íslandi er Jötunn Vélar ehf á Sel- fossi sem einnig flytja inn Valtra og Massey Ferguson dráttarvél- arnar ásamt ýmsum öðrum vél- búnaði. Schäffer Lader „smá“hjólaskóflur Vélar og þjónusta er fyrirtæki sem byggir á gömlum merg, með sölu- umboð fyrir fjölda merkja í þunga- vinnuvélum, lyfturum og landbúnað- artækjum. Af þungavinnuvélunum má nefna HYDREMA sem hafa staðið sig vel við íslenskar aðstæður. Nú hafa Vélar og þjónusta flutt inn fyrstu belta- gröfurnar frá HYDREMA og fyrstu hjólagröfurnar koma í febrúar. Vélar og þjónusta er einn- ig með umboð fyrir hinar kínversku YUCHAI- þ u n g a v i n n u - vélar. Þessar vélar eru útbúnar CUMMINGS- eða PERKINS-mótorum, glussakerfi og dælum frá Toshiba og beltagangifrá Bridgestone. Einnig er Vélar og þjón- usta með umboð fyrir VENIERI sem framleiðir traktorsgröfur og hjóla- skóflur í ýmsum stærðum. Meðal fleiri merkja sem boðið er upp á eru Hyster-lyftarar, McCormik- dráttarvélarnar, og hey- vinnslutæki frá CRONE, McHale og fleirum. Fjölmörg merki í boði { vélar og tæki } VERKTAKAR KYNNIÐ YKKUR KEESTRACK MALARHÖRPURNAR Sterkbyggðar og afkastamiklar hörpur frá Belgíu. Auðveldar í flutningi og notkun. Stærðir frá 16 - 30 tonna. B.M.M. Sími 894-3836
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.