Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 21
Ranghermt var í Fréttablaðinu
sl. laugardag að þeir sem njóta
ferðaþjónustu fatlaðra gætu
pantað bíl samdægurs.
Frestun hefur orðið á gildistöku
nýrra reglna um að fatlaðir geti
pantað bíl með minnst þriggja
tíma fyrirvara. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Maríu Rúnarsdóttur,
verkefnastjóra velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, er ekki ljóst á
þessari stundu hvenær þær breyt-
ingar taka gildi. Fréttablaðið mun
fylgjast með því máli en harmar
að hafa gefið rangar upplýsingar
nú í byrjun árs.
Leiðrétting
Ný gerð Hyundai Coupé er álitin eiga góða
möguleika í Evrópu.
Þriðja kynslóð af Hyundai Coupé, sem nefnist ein-
faldlega Hyundai Coupé SIII, hefur vakið töluverða
athygli. Ekki hvað síst vegna yfirhalningar sem bíll-
inn hefur fengið og þykir hafa heppnast einstaklega
vel. Gera framleiðendur sér vonir um að hún eigi
eftir að auka vegsemd bifreiðarinnar sem fer í sölu á
Evrópumarkaði innan skamms.
Hinn nýi Hyundai Coupé er mun sportlegri en fyrri
gerðir bílsins, en útlitsbreytingarnar taka til ýmissa
þátta, þar á meðal bílgrindarinnar, ljósa og felgna. Er
þá óupptalið það sem hefur verið breytt í bílnum inn-
anverðum, til að mynda mælaborðinu, sem er almennt
álitið mun flottara og útbúið fleiri eiginleikum en
áður. Þá má velja um svart eða rautt leðuráklæði á
sætin, eða eftir því hvernig bíllinn er á litinn.
Vélarnar eru hins vegar þær sömu og áður. Minnsta
gerðin er 1.6 DOHC 16V, 103 hestafl. Þar næst kemur
gerðin 2.0 DOHC 16V 141 hestafl. Sú stærsta er 2.7
V6 DOHC 24V, en hún skilar 165 hestöflum.
Eins og fyrr sagði eru framleiðendur Hyundai
Coupé SIII vongóðir um að yfirhalningin muni auka
sölu á bílnum. Sala á fyrri gerðum hefur ekki gengið
sem skyldi og telja sumir að þar spili helst inn í útlit
þeirra, sem þótti ekki samrýmast kröfum nútíma-
neytenda.
Andlitslyfting talin auka sölu
Bílasýningin í Detroit hófst 7.
janúar síðastliðinn. Bílasýning-
in er ein sú mikilvægasta fyrir
framleiðendur.
Í 99 ár hefur athygli bílaheimsins
beinst að Detroit í ársbyrjun. Þá
sýna allir helstu bílaframleiðend-
ur heims afurðir sínar, bæði þær
sem ætlaðar eru fyrir markaðinn
sem og hugmyndabíla sem ein-
göngu eiga að vekja athygli og
umtal.
Á síðasta ári sóttu tæplega
800.000 manns sýninguna. 91
framleiðandi sýndi afurðir sínar,
70 bíla og 33 hugmyndabíla. Fjöld-
inn er svipaður í ár en ljóst er að
áherslan hefur færst í átt að
umhverfisvernd og orkusparnaði.
Hybryd bílar, dísilvélar og lífræn-
ir orkugjafar eru fyrirferðarmikl-
ir en inn á milli slæðist staka bens-
ínsvelgur með 500 hestafla vél.
Síðasta ár var erfitt fyrir marga
bílaframleiðendur en þó eru
nokkrir sem koma sterkir til leiks
í Detroit með fullar hendur fjár.
Lamorghini hefur aldrei selt fleiri
bíla og Toyota stefnir hraðbyri á
að verða stærsti bílaframleiðandi
í heimi.
Bílasýningin í Detroit stendur
yfir 7. til 21. janúar en hún verður
opnuð almenningi 13. janúar.
Ballið byrj-
að í Detroit
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl .
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is