Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 83
 Martin Thuesen mun spila með Snæfelli í Iceland Express-deild karla og spilar sinn fyrsta leik með liðinu gegn Þór í Þorlákshöfn 1. febrúar næstkom- andi. Thuesen stóðst læknisskoð- un í gær og er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta er gleðiefni fyrir Hólmara en þjálfari liðsins, Geof Kotila, og Martin unnu saman þrjá stóra titla með Bakken Bears, danska meistaratitilinn 2004 og 2005 og danska bikarmeistaratitilinn 2005. „Ég sé fram á að fá að spila aftur og vonast til að geta hjálpað mínu liði í lokaúrslitin líkt og þrjú sl. ár. Þegar ég fékk aftur tæki- færi til að spila undir mínum fv. þjálfara, Geof Kotila, þurfti ég ekki langan umhugsunarfrest,“ sagði Martin Thuesen í gær í samtali við heimasíðuna danskba- sket.dk. Ekki lengi að ákveða sig Kvennalið Hamars hefur fengið til sín norska landsliðsbakvörðinn Anne Flesland sem er 24 ára gömul og 174 cm á hæð. Flesland er þrátt fyrir ungan aldur orðin sjötta leikjahæsta landsliðskona Noregs en hún á að baki 38 leiki og hefur gegnt stöðu fyrirliða landsliðsins í nokkrum þeirra. Flesland hefur aflað sér mikillar reynslu undanfarin þrjú ár en Hamar verður sjötta liðið í sjötta landinu sem hún spilar með síðan haustið 2004. Sjötta landið á þremur árum Íshokkímaðurinn Brynjar Freyr Þórðarson, leikmaður Bjarnarins, hefur verið dæmdur í tveggja ára bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem var tekið að loknum leik SR og Bjarnarins í ísknattleik í október síðastliðnum. Bann Brynjars gildir til og með 28. nóvember 2008. Sýni Brynjars innihélt bæði afleiðu vefaukandi sterans Nandrolons og örvandi fíkniefnið amfetamín. Íshokkímaður féll á lyfjaprófi Graeme Souness staðfesti í gær að hann væri búinn að gera 20 milljóna punda tilboð í Wolves, eða Úlfana eins og liðið er iðulega kallað hér á landi. Félagið neitar því að hafa fengið tilboð frá Souness sem skilur ekkert í þeim viðbrögðum. „Ég veit ekki af hverju þeir hafna þessum fréttum. Ég gerði tilboð í síðustu viku með fyrirvara um skoðun á bókhaldi félagsins en það tilboð er í kringum 20 milljónir punda,“ sagði fyrrum leikmaðurinn og knattspyrnu- stjórinn. Reynir að kaupa Úlfana Það var hart barist í Seljaskóla í gærkvöldi þegar Skallagrímur sótti ÍR heim í Lýs- ingarbikarnum. ÍR sýndi klærnar í síðari hálfleik og vann sætan sigur, 92-88. Fyrri hálfleikur var bráðfjör- ugur þar sem góð sóknartilþrif sáust frá báðum liðum. Heima- menn leiddu með einu stigi, 27-26, eftir fyrsta leikhluta en gestirnir voru komnir með eins stigs for- ystu í leikhléi, 50-51. Darrell Flake var sprækur í fyrri hálfleiknum og skoraði 17 stig og Axel Kárason byrjaði vel með 10 stig í fyrsta leikhluta. Hreggviður Magnússon skoraði 13 stig fyrir ÍR í fyrri hálfleik þar sem Steinar Arason fór mikinn er hann skoraði 4 þriggja stiga körfur. Vendipunktur varð í upphafi síðari hálfleiks þegar Darrel Flake fékk sína fjórðu villu og varð að hvíla. Meðan hann sat utan vallar skoraði ÍR 16 stig gegn 6 stigum Skallanna og náði yfirhöndinni. Hreggviður fór mikinn í 3. leik- hluta og skoraði 17 stig en allt lið Skallagríms skoraði 13 stig á sama tíma. Staðan var 73-64 þegar einn leikhluti var eftir. Þar kom fyrirliði ÍR, Eiríkur Önundarson, sterkur til leiks er hann skoraði átta síðustu stig ÍR en það voru hans einu stig í leikn- um. Skallarnir sóttu að heima- mönnum en náðu aldrei að klóra almennilega í bakkann. „Við erum búnir að spila topp- bolta síðan við Nate Brown komum inn af fullum krafti og höfum sýnt að við getum sigrað hvaða lið sem er. Ef við höldum uppteknum hætti þá getum við hæglega skilað tveim dollum í Breiðholtið,“ sagði maður leiksins, Hreggviður Magnússon. Getum unnið öll lið í deildinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.