Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 25
Óðinn Andrason þriggja ára
hefur mikinn áhuga á traktor-
um.
„Við þurftum að setja traktorinn
saman,“ segir Óðinn Andrason
þriggja ára skýr strákur á Akur-
eyri sem að sögn foreldra sinna
hefur mikinn áhuga á bílum, trakt-
orum og öðrum stórum vélum.
Óðinn á mikið safn af alls kyns
traktorum og bílum auk þess sem
hann fékk stóran flottan traktor í
jólagjöf frá mömmu sinni og
pabba. Auður, mamma hans, segir
að aðrar gjafir hafi ekki fengið
mikla athygli þegar traktorinn
hafi komið í ljós undan jólapapp-
írnum.
„Fyrsta orðið sem hann sagði
var Toyota,“ segir mamma hans
hlæjandi og bætir við að Óðinn
sakni jeppans sem þau hafi nú
selt. Óðinn segist kannski ætla að
verða bóndi svo hann geti keyrt
traktora og gröfur allan daginn.
„Við erum með stóran traktor í
sveitinni og það er gaman að leika
sér á honum,“ segir hann en
mamma hans bætir inn í að um
gamlan ónýtan traktor sé að
ræða.
Litlu bræður Óðins, tvíburarnir
Askur Freyr og Ás Teitur, hafa
einnig gaman af að leika sér með
traktorana og Óðinn leyfir þeim
að leika með sér. „Þeir sitja oft í
kerrunni og láta Óðinn keyra sig
um stofuna,“ segir mamma
þeirra.
Fyrsta orðið var Toyota
Smábarnaskólinn við Ránar-
grund er fyrir börn á aldrinum
níu mánaða til tveggja ára.
Hjallastefnan í leikskólamálum er
mörgum að góðu kunn og nú hefur
verið opnaður smábarnaskóli í
Garðabæ undir sömu merkjum.
Hulda Hákonardóttir veitir skól-
anum forstöðu en hann er ætlaður
börnum á aldrinum níu mánaða til
tveggja ára. „Skólinn var opnaður
í nóvember síðastliðnum og hefur
vakið mikla athygli og góð við-
brögð,“ segir Hulda og bætir því
við að börnin sem eru í skólanum
núna séu öll orðin eða alveg að
verða eins árs vegna biðlista.
Hjallastefnunni er fylgt en ekki
út í ystu æsar. „Í venjulegum
Hjallastefnuskóla er ekki mikið af
leikföngum heldur áherslan lögð á
sköpunargleði og samskipti en
svona lítil börn eru lítið að spá í
hvert annað. Þau læra mest á því
sem þau hafa í höndunum. Svo það
skiptir máli hvað það er. Krakkar
á þessum aldri læra af efniviðnum
sem þau hafa í höndunum og
umhverfinu og hér erum við að
þjálfa skynjun og lána þeim hluti
með mismunandi lit, lögun og
áferð til að læra af. “
Í smábarnaskólanum eru tutt-
ugu og tvö börn og dvalarlengd er
eins og foreldrar óska eftir, frá
fjórum og upp í átta og hálfan tíma
eða bara hefðbundinn leikskóla-
dagur. „Húsnæðið sem við erum í
er mjög sérstakt,“ segir Hulda.
„Þetta er gamalt einbýlishús niðri
við sjó sem var lagað að starfsem-
inni og gert barnvænna. Það sem
við höfum umfram alla leikskóla
er að við erum með bílskúr þar
sem er vagnageymsla svo börnin
geta sofið úti í fersku lofti en eru
samt alveg í skjóli. En auðvitað
geta börnin líka sofið inni ef for-
eldrarnir vilja.“ Bílskúrinn er tví-
skiptur og í hinum endanum er
leiksvæði þar sem meðal annars
má finna innisandkassa og litla
rennibraut. „Innileikvöllurinn er
ætlaður til að brúa bilið yfir í það
að fara út að leika,“ segir Hulda.
„Mörg börnin eru svo nýfarin að
labba að þau hafa kannski aldrei
labbað í skóm. Þau eru klædd í
útiföt og æfa sig að fara út að leika
án þess að lenda í vindhviðum og
regni sem auðveldlega feykja
smáfólki um koll.“
Annað sem markar Smábarna-
skólanum við Ránargrund sér-
stöðu er næðið. „Það að vera með
svona lítil börn gerir það að verk-
um að það er mikil ró í húsinu. Á
svefntíma er algjör kyrrð í húsinu
því allir eru í sama takti.“ Matur
er sendur frá Hjallastefnuskólan-
um Ásum. „Reglulegar og örar
máltíðir eru geysilega mikilvægar
fyrir svona lítil börn svo það eru
ávaxtatímar milli máltíða. Ef þau
fá vel að borða og drekka vatn á
meðan þau leika sér þá una þau
sér svo miklu betur.“ Það er líka
hægt að sameina þetta á skemmti-
legan hátt. „Meðan við bíðum eftir
sandkassanum fylltum við stóran
bala af haframjöli og leyfðum
börnunum að moka og leika sér
með það. Þau borðuðu haframjölið
fyrst og töluvert meira af því en
sandinum núna,“ segir Hulda og
hlær. „En haframjöl er bara hollt,
sérstaklega ef maður passar að
þau fái nóg vatn með.“
Nánari upplýsingar um smá-
barnaskólann Ránargrund og
Hjallastefnuna má finna á www.
hjalli.is.
Haframjölið vin-
sælla en sandur