Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 82
9
Handboltinn verður
sífellt vinsælli á alþjóðavísu og
það er ekki á allra vitorði að
handboltinn er mjög vinsæll í
arabalöndunum.
Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera
hefur gengið frá samningi við
mótshaldara HM í Þýskalandi
og mun sýna beint frá mótinu í
yfir 40 löndum.
HM í beinni á
Al-Jazeera
Það batnar ekki
ástandið í herbúðum danska
landsliðsins sem beið afhroð á
eigin æfingamóti um síðustu
helgi.
Ein aðalskytta liðsins, Bo
Spellerberg, er meiddur og því
hefur Ulrik Wilbek landsliðs-
þjálfari kallað á Las Möller
Madsen, lærisvein Arons
Kristjánssonar hjá Skjern, í
hópinn.
Bo Spellerberg
meiddur
Leitað að staðgengli á gítarinn fyrir Loga
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Hitablásarar
Hinir einu sönnu
hitablásarar
Stjarnan vann mikilvæg-
an útisigur á Gróttu í DHL-deild
kvenna í gærkvöldi þar sem liðið
skoraði jafn mörg mörk í fyrri
hálfleik og öllum síðasta leik
sínum þar sem liðið tapaði illa
fyrir toppliði Vals. Forystan í hálf-
leik var níu mörk og fátt sem ógn-
aði henni í síðari hálfleik þó svo að
leikmenn Gróttu hafi bætt leik
sinn heilmikið.
Varnarleikur Stjörnunnar skóp
fyrst og fremst sigurinn. Bæði lið
hófu reyndar leikinn af miklum
krafti en sterk vörn og kröftug
markvarsla Stjörnunnar í fyrri
hálfleik gerði það að verkum að
liðið skoraði mikið af hröðum
mörkum og dró þar með kjarkinn
úr heimamönnum. Það sást best á
því að sóknarleikur Gróttumanna
var afar tilviljanakenndur fyrir
leikhlé og tapaði liðið boltanum í
gríð og erg vegna klaufamistaka.
Markvarsla var líka sama og engin
og ekki fyrr en í síðari hálfleik
sem Íris Björk markvörður fór í
gang.
Gestirnir fóru reyndar illa að
ráði sínu í upphafi síðari hálfleiks
og skoruðu ekki nema þrjú mörk á
fyrsta stundarfjórðungnum. En
munurinn var einfaldlega of mik-
ill til að heimamenn næðu að ógna
forskoti þeirra.
„Miðað við síðasta leik er ég
mjög ánægður,“ sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar.
„Varnarleikur okkar var frábær í
fyrri hálfleik og við fengum fullt
af góðum hraðaupphlaupum upp
úr því. Svo létum við boltann
ganga vel í sóknarleiknum og
skytturnar okkar voru heitar.
Kristín Guðmundsdóttir þá sér-
staklega í fyrri hálfleik og svo
kom Jóna Margrét með mjög mik-
ilvæg mörk í þeim síðari. En það
var liðsheildin fyrst og fremst
sem var frábær. Við vorum lengi í
gang í seinni hálfleik en okkar
leikmenn sýndu mikinn karakter
með því að hleypa þeim aldrei nær
en 5-6 mörkum og við kláruðum
leikinn að mér fannst mjög skyn-
samlega.“
Stjarnan hefur einungis tapað
fyrir Val í deildinni, nú síðast á
heimavelli og segir Aðalsteinn að
ólíkt þeim leik hafi leikmenn
Stjörnunnar sýnt gegn Gróttu
hvað þær kunna í handbolta.
„Okkur er spáð mikilli velgengni
og við viljum standa undir þeim
væntingum. Það hefði verið slæmt
að tapa öðrum leiknum í röð, sér-
staklega vegna þess að Valur er
búinn að vinna síðustu átta leiki
sína fyrir gærkvöldið.“
Frábær fyrri hálfleikur nóg
Liverpool tók á móti Ars-
enal á Anfield í annað sinn á
skömmum tíma þegar liðin mætt-
ust í enska deildarbikarnum.
Liðin mættust um síðustu helgi í
enska bikarnum en þá fór Arsen-
al með sætan sigur af hólmi, 1-3.
Það voru talsvert breytt lið sem
mættu til leiks í gær enda hafa
stóru liðin þann siðinn á að gefa
minni spámönnum tækifæri í
deildarbikarnum sem nýtur ekki
sömu virðingar og sjálf bikar-
keppnin. Það dró ekki úr skemmt-
anagildi leiksins og áhorfendur
sáu níu góð mark í 3-6 sigri Ars-
enal.
Arsenal komst yfir eftir 27.
mínútna leik í gær þegar Frakk-
inn Jeremie Aliadiere komst einn
í gengum vörn Liverpool. Jerzy
Dudek varði skot hans en boltinn
hrökk aftur fyrir fætur Aliadiere
sem var ekki vandræðum með að
koma tuðrunni yfir endalínuna.
Markið hleypti miklu lífi í leik-
inn og aðeins nokkrum mínútum
síðar fiskaði Robbie Fowler auka-
spyrnu rétt fyrir utan vítateig
Arsenal. Hana tók Aurelio og gott
skot hans var vel varið af Almun-
ia í marki Arsenal. Boltinn hrökk
út í teiginn og hann var síðan
sendur á Robbie Fowler sem
laumaði boltanum laglega yfir
línuna með hælnum.
Fjörið var svo sannarlega ekki
á enda því Brasilíumaðurinn Julio
Baptista skoraði stórkostlegt
mark beint úr aukaspyrnu þegar
fimm mínútur voru eftir af fyrri
hálfleiknum. Martröð Jerzy
Dudek, markvarðar Liverpool,
var fullkomnuð í uppbótartíma
fyrri hálfleiks þegar glórulaust
úthlaup hans eftir hornspyrnu
gerði það að verkum að Alexand-
er Song kom boltanum yfir lín-
una. Þegar leikmenn voru að gera
sig klára fyrir teið í hálfleik kom
hreint út sagt frábær sókn hjá
Arsenal þar sem vörn Liverpool
var leikin sundur og saman og
Baptista batt endahnútinn á með
því að leggja boltann í netið. 1-4
og Jerzy Dudek búinn að fá sjö
mörk á sig í þrem hálfleikjum
gegn Arsenal.
Ekki batnaði ástandið hjá
Liverpool í síðari hálfleik. Jerzy
Dudek nældi reyndar í smá sjálfs-
traust þegar hann varði víta-
spyrnu frá Baptista en það sjálfs-
traust fór skömmu síðar þegar
Baptista skoraði með langskoti og
fullkomnaði þar með þrennuna.
Steven Gerrard svaraði með lag-
legu marki nokkru síðar. Sami
Hyypia, sem hafði átt ömurlegan
leik, bætti örlítið fyrir það með
marki tíu mínútum fyrir leikslok
en Baptista stráði síðan salti í
sárin með sínu fjórða marki og
sjötta Arsenal eftir frábæra
skyndisókn.
Arsenal niðurlægði Liverpool á heimavelli þeirra síðarnefndu í gær er liðin
mættust í deildarbikarnum. Leikurinn var veisla fyrir stuðningsmenn gest-
DHL-deild kvenna:
Lýsingarbikar karla:
Enski bikarinn: