Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 57
15MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007MARKAÐURINN
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Árið 2006 var gjöfult fyrir Flugfélag
Íslands og jókst farþegafjöldi milli
ára um átta prósent. Fjöldi farþega
í innanlandsflugi fylgir nokkuð vel
efnahagssveiflum og því er ekki að
undra að farþegafjöldi hafi aukist mest
til Egilsstaða á síðasta ári. Hefur hann
rúmlega tvöfaldast á fjórum árum:
Sextíu þúsund farþegar flugu þangað
árið 2002 en við lok síðasta
árs voru þeir tæplega 130
þúsund. Aukinn farþega-
fjölda má að mestu leyti
rekja til framkvæmd-
anna á Austurlandi og
hliðaráhrifa þeim tengd-
um. „Það er augljóst
að framkvæmdirnar á
Austurlandi hafa haft
mikið að segja,“ segir
Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags
Íslands. Hann segir það
þó hafa komið á óvart
hversu farþegum hafi
fjölgað mikið á öðrum
flugleiðum. Það telur
hann að helst megi rekja
til þess að æ fleiri sjái nú
kosti flugsins og leyfi sér
að nýta þá, auk þess sem
innspýtingin í atvinnulíf-
ið fyrir austan hafi áhrif
víðar en þar. „Farþegum
til Akureyrar fjölgaði
til að mynda mikið, sem
kom skemmtilega á óvart. Það er líka
mikið líf á Akureyri um þessar mundir
og uppgangur, bæði í mennta- og menn-
ingarmálum.“
Flugfélag Íslands flýgur á sjö
áfangastaði innanlands. Flogið er frá
Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar,
Egilsstaða og í október var flug
hafið aftur til Vestmannaeyja. Frá
Akureyri er svo flogið til Grímseyjar,
Vopnafjarðar og á Þórshöfn. Þar að auki
er flogið til Grænlands og Færeyja.
Þær ferðir segir Árni njóta síaukinna
vinsælda. „Samskipti Íslendinga við
bæði Færeyinga og Grænlendinga
hafa verið að aukast, viðskiptalega
og menningarlega séð, á undanförnum
árum. Svo virðist því sem Íslendingar
séu að uppgötva grannþjóðir sínar.“
Töluvert hefur verið lagt í markaðs-
starf í tengslum við komur erlendra
ferðamanna hingað til lands. Það virð-
ist hafa skilað sér vel og er hlutfall
erlendra ferðamanna um tólf til fimmt-
án prósent af heildarfarþegafjölda
Flugfélags Íslands og hefur farið hratt
vaxandi á undanförnum árum. Þetta
segir Árni bæði skýrast af breyttum
ferðavenjum og auknum fjölda fólks
frá löndum utan Evrópu. „Dvalartími
erlendra ferðamanna hefur verið að
styttast. Meðal annars þess vegna eru
margir, sem vilja sjá sem mest af
landinu, sem nýta sér kosti flugsins.
Fjölgun ferðamanna frá Japan og Kína
hefur líka haft sitt að segja. Þeir eru
þekktir fyrir að vilja sjá sem mest á
sem skemmstum tíma.“
Í sumar tekur Flugfélag Íslands
upp tvær nýjar flugleiðir og verður í
báðum tilfellum flogið þrisvar í viku.
Annars vegar verður beint morgun-
flug í tengslum við millilandabrott-
farir í Keflavík og flug seinnipartinn
frá Keflavík til Akureyrar. Þar að auki
verður í boði beint flug til höfuðborg-
ar Grænlands, Nuuk, sem ekki hefur
verið boðið áður.
Æ fleiri nýta sér kosti flugsins
Flugfélag Íslands bætir í sumar við flugleiðum til að mæta aukinni eftirspurn. Fjöldi farþega jókst um átta
prósent í innanlandsflugi í fyrra. Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands segir viðhorf til flugs hafa breyst.
„Samskipti
Íslendinga
við bæði
Færeyinga og
Grænlendinga
hafa verið að
aukast, við-
skiptalega
og menning-
arlega séð, á
undanförnum
árum. Svo
virðist því sem
Íslendingar séu
að uppgötva
grannþjóðir
sínar.“