Fréttablaðið - 10.01.2007, Qupperneq 57

Fréttablaðið - 10.01.2007, Qupperneq 57
15MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007MARKAÐURINN H É Ð A N O G Þ A Ð A N Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Árið 2006 var gjöfult fyrir Flugfélag Íslands og jókst farþegafjöldi milli ára um átta prósent. Fjöldi farþega í innanlandsflugi fylgir nokkuð vel efnahagssveiflum og því er ekki að undra að farþegafjöldi hafi aukist mest til Egilsstaða á síðasta ári. Hefur hann rúmlega tvöfaldast á fjórum árum: Sextíu þúsund farþegar flugu þangað árið 2002 en við lok síðasta árs voru þeir tæplega 130 þúsund. Aukinn farþega- fjölda má að mestu leyti rekja til framkvæmd- anna á Austurlandi og hliðaráhrifa þeim tengd- um. „Það er augljóst að framkvæmdirnar á Austurlandi hafa haft mikið að segja,“ segir Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Hann segir það þó hafa komið á óvart hversu farþegum hafi fjölgað mikið á öðrum flugleiðum. Það telur hann að helst megi rekja til þess að æ fleiri sjái nú kosti flugsins og leyfi sér að nýta þá, auk þess sem innspýtingin í atvinnulíf- ið fyrir austan hafi áhrif víðar en þar. „Farþegum til Akureyrar fjölgaði til að mynda mikið, sem kom skemmtilega á óvart. Það er líka mikið líf á Akureyri um þessar mundir og uppgangur, bæði í mennta- og menn- ingarmálum.“ Flugfélag Íslands flýgur á sjö áfangastaði innanlands. Flogið er frá Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða og í október var flug hafið aftur til Vestmannaeyja. Frá Akureyri er svo flogið til Grímseyjar, Vopnafjarðar og á Þórshöfn. Þar að auki er flogið til Grænlands og Færeyja. Þær ferðir segir Árni njóta síaukinna vinsælda. „Samskipti Íslendinga við bæði Færeyinga og Grænlendinga hafa verið að aukast, viðskiptalega og menningarlega séð, á undanförnum árum. Svo virðist því sem Íslendingar séu að uppgötva grannþjóðir sínar.“ Töluvert hefur verið lagt í markaðs- starf í tengslum við komur erlendra ferðamanna hingað til lands. Það virð- ist hafa skilað sér vel og er hlutfall erlendra ferðamanna um tólf til fimmt- án prósent af heildarfarþegafjölda Flugfélags Íslands og hefur farið hratt vaxandi á undanförnum árum. Þetta segir Árni bæði skýrast af breyttum ferðavenjum og auknum fjölda fólks frá löndum utan Evrópu. „Dvalartími erlendra ferðamanna hefur verið að styttast. Meðal annars þess vegna eru margir, sem vilja sjá sem mest af landinu, sem nýta sér kosti flugsins. Fjölgun ferðamanna frá Japan og Kína hefur líka haft sitt að segja. Þeir eru þekktir fyrir að vilja sjá sem mest á sem skemmstum tíma.“ Í sumar tekur Flugfélag Íslands upp tvær nýjar flugleiðir og verður í báðum tilfellum flogið þrisvar í viku. Annars vegar verður beint morgun- flug í tengslum við millilandabrott- farir í Keflavík og flug seinnipartinn frá Keflavík til Akureyrar. Þar að auki verður í boði beint flug til höfuðborg- ar Grænlands, Nuuk, sem ekki hefur verið boðið áður. Æ fleiri nýta sér kosti flugsins Flugfélag Íslands bætir í sumar við flugleiðum til að mæta aukinni eftirspurn. Fjöldi farþega jókst um átta prósent í innanlandsflugi í fyrra. Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands segir viðhorf til flugs hafa breyst. „Samskipti Íslendinga við bæði Færeyinga og Grænlendinga hafa verið að aukast, við- skiptalega og menning- arlega séð, á undanförnum árum. Svo virðist því sem Íslendingar séu að uppgötva grannþjóðir sínar.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.