Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 4
helmingi léttari! Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur helmingi minni viðbættan sykur og fitu en hefðbundin Kókómjólk og orkuinnihaldið er fjórðungi lægra. Yfir 80% af mjólkursykri- num hafa verið klofin og hentar drykkurinn því flestum þeim sem hafa mjólkursykursóþol. Yfirlýsing Geirs H. Haar- de forsætisráðherra um að matar- verð myndi lækka um allt að sex- tán prósent vegna lækkunar virðisaukaskatts hinn 1. mars var hraðsoðin og klaufaleg að mati Sigurðar Jónssonar, framkvæmda- stjóra Samtaka verslunar og þjón- ustu. Á kynningarfundi í október sagði Geir að ein afleiðing lækk- unarinnar verði sú að matvæla- verð á Íslandi gerist sambærilegt meðalverði á Norðurlöndunum. „Það er hálfgrætilegt að svo gott mál hafi verið hálfskemmt með slæmri kynningu,“ segir Sig- urður, en hann telur tillögur Geirs „sveipaðar þoku“. Sigurður bendir á að í nýjum útreikningum fjármálaráðuneyt- isins sé raunlækkunin 14,8 pró- sent. Af þeim séu hins vegar um tvö prósent til komin vegna lækk- unar á veitingastöðum, 1,5 prósent vegna óútskýrðrar tollalækkunar á innfluttu kjöti og 0,8 prósent vegna þess að mjólkurverð hækki ekki. „Hvernig það að hækka ekki leiðir til lækkunar, það er hag- fræði sem við skiljum nú ekki alveg,“ segir Sigurður. Sé allt þetta dregið frá heild- inni verði lækkun matarverðs í verslun um 10,6 prósent, að mati ráðuneytisins. „Við teljum að níu til tíu prósenta lækkun á um sjötíu prósentum af matarkörfunni sé nærri lagi,“ segir Sigurður og vill ekki ganga lengra fyrr en botn fáist í fyrirhugaða tollalækkun á kjöti, sem sé enn óútfærð nánar. Í forsætisráðuneytinu varð Ragnheiður E. Árnadóttir, aðstoð- armaður forsætisráðherra, fyrir svörum. Hún tekur ekki undir að yfirlýsing Geirs hafi verið van- hugsuð og telur að gagnrýni á lækkunina hafi að mestu verið svarað í bréfi til talsmanns neyt- enda fyrir jól, en þar stendur að utan kjöts, mjólkur og veitinga- staða, geti lækkunin leitt til „rúm- lega 10 prósenta lækkunar á mat- vælaverði“. Um mjólkurverðið segir Ragn- heiður að það sé hártogun að kalla þróun þess annað en lækkun: „Á hagfræðimáli þýðir „óbreytt verð“ raunlækkun.“ Spurð um eðli og áhrif boðaðr- ar fjörutíu prósenta lækkunar á tollum á innfluttu kjöti, vísaði Ragnheiður á landbúnaðarráðu- neytið. Ólafur Friðriksson, skrif- stofustjóri þar, mun vera einn um að svara fyrir tollamál í ráðuneyt- inu. Hann svaraði hins vegar ekki blaðamanni, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær. Lækkun matarverðs minni en lofað var Geir H. Haarde er sagður hafa staðið klaufalega að kynningu á lækkun virð- isaukaskatts og lofað upp í ermina á sér. Verð lækki ekki um sextán prósent heldur níu til tíu prósent. Mjólkurverð hækkar ekki en það heitir raunlækkun. Flokksþing framsókn- armanna, hið 29. í röðinni, verður haldið dagana 2. og 3. mars á Hótel Sögu í Reykjavík. Þingið er framhald þingsins sem haldið var í ágúst síðastliðnum en meginefni þess var að kjósa flokknum forystu. Fyrir þinginu nú liggur að fjalla um pólitísk málefni og leggja drög að kosningabaráttu vorsins. Á Hótel Sögu í byrjun mars Tekin hefur verið ákvörðun hjá tveimur lífeyris- sjóðum að fresta skerðingu eða niðurfellingu greiðslna til örorkulífeyrisþega til vors. Það eru lífeyrissjóðirnir Gildi og Sameinaði lífeyrissjóðurinn sem ætla að reikna út greiðslurnar að nýju með því að framreikna greiðslur í samræmi við launa- vísitölu eins og Öryrkjabandalag- ið hafði krafist. Ekki er vitað hvort hinir lífeyrissjóðirnir tólf geri hið sama en Matthildur Hermanns- dóttir, framkvæmdastjóri Greiðslustofu lífeyrissjóða, segir málið til umfjöllunar þar. Greiðslur reikn- aðar á ný Íbúar á höfuðborg- arsvæðinu geta nú skráð sig inn á nýja kynningarsíðu lögreglunnar og fengið sendar fréttir úr sínu hverfi. Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, skráði sig inn á fréttavef Hlíðahverfisins, þar sem hann býr, er hann heimsótti höfuðstöðvar lögreglu höfuðborg- arsvæðisins, eftir að hann hafði formlega opnað kynningarsíðuna. Að því búnu undirrituðu ráðherra og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæð- isins, nýtt skipurit í upplestrarsal lögreglustöðvarinnar. Ný kynningar- síða lögreglu Halastjarnan McNaught sást vel á vesturhimni í gærkvöldi, en hún er á leið sinni gegnum innri hluta sólkerfisins. Í morgunsárið er hægt að sjá hala- stjörnuna, sem er í um hundrað milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu, í austri. Búast má við að halastjarnan sjáist fram til 14. janúar. Þegar hún fer sem næst sólinni er hún helmingi nær henni en Merkúr, sem er sú pláneta sólkerfisins sem er næst sólu. Sést vel með berum augum Bæjarstjórn Kópavogs felldi í gær tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar, fulltrúa Vinstri grænna, um að fresta frekari undirbúningsvinnu við stofnun nýrrar lóðar við Rjúpnahæð á meðan hugur eigenda nærliggj- andi lóðar yrði kannaður. Ólafur greiddi einn atkvæði með tillögu sinni. Vildu aðrir bæjarfulltrúar fara hefðbundna leið og skipuleggja lóðina og auglýsa síðan eftir athugasemdum. Felldu tillögu Ólafs Þórs „Mér finnst það vera grund- vallaratriði við veitingu fram- kvæmdaleyfa að framkvæmdirnar nýtist til uppbyggingar í næsta nágrenni við auðlindarnar. Miðað við þau áform sem uppi eru [stækkun álvers Alcan í Straumsvík] þá er ekki gert ráð fyrir því að orkan sem verð- ur til vegna nýtingar auðlinda verði nýtt í heimahéraði og það er umhugs- unarefni,“ segir Sigurður Jónsson, sveitarstjóri í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi, en sveitarstjórnir sjá um að veita framkvæmda- leyfi vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda. Þegar hefur verið auglýst eftir athugasemdum vegna vinnu við aðalskipulag í uppsveitum Árnessýslu, það er Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, og Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar, hafa þegar undirritað samkomulag sem fram- lengir viljayfirlýsingu um gerð raf- orkusamnings til stækkunar álvers- ins í Straumsvík. Samkvæmt áætlunum Landsvirkjunar er ráð fyrir því gert að virkjað verði í Neðri- Þjórsá. „Nauðsynlegt er að hefja þessa vinnu [hönnun virkjanamann- virkja] strax svo unnt verði að standa við orkuafhendingu á tilsettum tíma,“ segir í fréttatil- kynningu frá Landsvirkjun 15. desember síðastliðinn. Virkjunarleyfi hefur ekki verið gefið út af iðnaðar- ráðuneytinu og þá eiga sveitarstjórnir í uppsveitum Árnessýslu eftir að taka afstöðu til þess hvort fram- kvæmdaleyfi verður veitt. Vill nýta orkuna heima fyrir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.