Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 33
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI?
Óskað er eftir tilnefningum til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins sem veitt verða í
annað sinn 22. febrúar nk.
Til greina koma allir sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir
okkur öll.
Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk sem á skilið að fá hraustlegt
klapp á bakið og er þess verðugt að fá slík verðlaun.
Allir koma til greina, allt frá óþekktum einstaklingum til félagasamtaka eða þjóðþekktra karla og
kvenna sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum til fyrirmyndar.
Samfélagsverðlaunin verða veitt í sex flokkum:
1. Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur einstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn
atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
2. Uppfræðari ársins
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar og aðrir uppfræðarar sem hafa skarað framúr
og látið gott af sér leiða.
3. Framlag til æskulýðsmála
Félagasamtök sem hafa sinnt börnum af sérstökum metnaði og alúð.
4. Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.
5. Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem hefur helgað líf sitt baráttu fyrir betra samfélagi.
6. Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af
mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll.
Sendið tilnefningar með því að fara inn á visir.is, með tölvupósti á netfangið
samfelagsverdlaun@frettabladid.is eða bréfleiðis merkt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð
24, 105 Reykjavík. Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 23. janúar. Dómnefnd mun taka allar
innsendar tilllögur til skoðunar. Verðlaunahafar verða kynntir og verðlaun afhent við hátíðlega athöfn
22. febrúar.