Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 53

Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 53
H A U S MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 Ú T T E K T Evrópu þar sem skógur geti vaxið gildi það sama og í Danmörku. „Þar er miklu meiri samkeppni um landið til matvælaframleiðslu. Nánast allt akuryrkjuland í heiminum er þar sem áður stóð skógur áður en menning varð til.“ Aðalsteinn segist vita til þess að á Norðurlandabúar hafi litið til þess að hér kynni að vera hægt að fjárfesta í kolefni með skógrækt og að óformlegar þreifingar hafi átt sér stað í þá átt. Aðalsteinn bendir á að ungir skógar hér á landi, sem gróðursettir séu eftir 1990 og teljist þar með „Kyoto-skógar“ bindi um þess- ar mundir um átta prósent af heildarlosun Íslendinga af gróðurhúsalofttegundum á ári hverju. Hann segir að ef farin yrði leiðin sem Arnór stingur upp á í grein sinni í Skógræktarritinu værum við eftir tæpa hálfa öld komin í þá stöðu að helmingur allrar los- unar hér á ári hverju yrði bundinn í skógum. „Svo bætist við að kolefni er að verða verð- mæti,“ segir hann og telur ekki loku fyrir það skotið að í framtíðinni kynnu gjaldmiðlar landa að styðj- ast við kolefnisfót, með sama hætti oggullfót áður. „Í hverju í tonni koltvísýrings sem ekki er losað eða er bundið með einhverjum hætti er u svo mikil verðmæti. Þetta kemur til viðbótar við önnur hefðbund- in verðmæti sem tengd hafa verið skógrækt svo sem timbur, skjól, minni jarðvegseyðing og aðrir slík- ir hlutir.“ Enn er þó margt á reiki um hver næstu skref verða í reglusetningum um bindingu gróðurhúsalofttegunda og ekki mikil umræða um málið í atvinnulífinu hér. Aðalsteinn segir umræðuna lengra komna, til dæmis á vettvangi Evrópusambandsins, þar sem nú síðast hafi borist fregnir af sér- stökum skatti sem leggja eigi á flug til og frá Evrópu vegna flugsins. „Svo gáfu Norðmenn í jólagjafir bundið tonn af koltvísýringi.“ Til þess að markaður geti orðið til hér segir Aðalsteinn að ekki vanti annað hér en laga- umhverfi. „Tryggja þarf eignarhaldsákvæði á þessum kvóta sem er að verða til. Ég bind vonir mínar við það að þessi lagarammi verði til og þá kemur skógrækt sjálfkrafa til sem einn liðurinn í því umhverfi sem til verður.“ UNNIÐ AÐ RAMMA UM VIÐSKIPTI Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri á skrif- stofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála í umhverfisráðuneytinu segir að eins og nú sé búið um hnútana getum við ekki selt úr landi kolefniskvóta út af „íslenska ákvæð- inu“ svokallaða. „Í þeirri loftslagsstefnu sem núna er í gildi er ekki gert ráð fyrir miklum viðskiptum innanlands. Við höfum talið að við yrðum innan okkar skuldbindinga. Til dæmis erum við ekki með mikið af fyrirtækjum hér sem fá úthlutað kvótum í Evrópu. Að miklu leyti eru það orkuver sem brenna olíu, kolum og jarðgasi. Álver eru til dæmis ekki þar á meðal. Hins vegar er ekki útlilokað að hér þróist einhver kolefnismarkaður í framtíð- inni. Síðan er þetta auðvitað pólitískt metn- aðarmál að sýna að við séum á réttri leið og sýnum viðleitni til að minnka losun og auka bindingu.“ Í ársbyrjun 2005 fór af stað fyrsti vísirinn að kvótakerfi Evrópusambandsins með kol- efnisbindingu þótt við hér séum ekki þátttak- endur í því. „Það er hins vegar ekki ólíklegt að þetta þróist þannig í framtíðinni að til verði nokkurs konar kolefnishagkerfi og við munum taka þátt í því.“ Til skemmri tíma litið hefur þjóðin ákveðn- ar útblástursheimildir og segir Hugi spár hafa bent til þess að við yrðum innan þeirra. „Ef hins vegar verður farið í alla þá stóriðju sem verið hefur í umræðunni, til dæmis stækkun í Straumsvík, álver í Helguvík og á Húsavík þá erum við komin yfir þessar heim- ildir í lok tímabilsins,“ segir hann og kveður því nokkra óvissu ríkjandi um hvað við tekur árið 2013. „Það er auðvitað nokkuð sem við þurfum að gera ráð fyrir.“ Hugi segir að þótt rætt hafi verið um skort á lagaramma um kolefnisviðskipti hér hafi fyrsta skrefið í þá átt þegar verið stigið í lögum um skráningu gróðurhúsaloftteg- unda sem samþykkt voru á Alþingi síðasta vor. „Þar er kveðið á um að við setjum upp svokallað skráningarkerfi, sem segja má að sé nokkurs konar rafrænn banki fyrir heim- ildir. Þetta er nokkuð sem öll ríki þurfa að setja upp samkvæmt Kyoto-bókuninni, og er forsenda fyrir því að svona viðskipti geti farið fram. Árið 2008 úthlutar skrifstofa Kyoto-bókunarinnar okkur heimildum sem lagðar verða inn á þetta skráningarkerfi eða netbanka og okkur svo frjálst að deila því út á reikninga til einstakra fyrirtækja. Þá geta menn verslað með slíkar heimildir.“ Hugi segir nefndina sem vann að undirbúningi þessara laga, en hún er á vegum umhverfis- iðnaðar- og fjármálaráðuneytis, hafa fengið umboð til að halda áfram störfum og bæta við lögin með það fyrir augum að tryggja að við yrðum innan okkar skuldbindinga. „Þó að spár bendi til þess að við verðum fyrir innan, teljum við að það þurfi að vera til reglur um úthlutun á þessu íslenska ákvæði, bæði til að skapa ákveðna festu varðandi það og eins ef til kæmi einhver starfsemi umfram það sem nú er inni í spám,“ segir Hugi og bætir við að í lok þessa árs sé gert ráð fyrir því að línur hafi skýrst í þessum efnum. HUGA ÞARF AÐ JAFNRÆÐI FYRIRTÆKJA Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins, segir að í kolefn- isbókhaldi fyrir Ísland sem skila eigi inn á skrifstofu alþjóða- samningsins um loft- lagsmálefni sé heimilt að setja að hluta kolefni sem bundið sé í skóg- um og landgræðslu. „Og að hluta er slík binding nú þegar inni í bókhaldinu. Ríkin sem aðilar eru að lofts- lagssamningnum hafa beitt ýmsum aðferð- um til að létta það sem þau þurfa að gera að öðrum kosti, þar er með talin skógrækt og landgræðsla og síðan að ráðast í verkefni í þróunarríkjum eða öðrum aðildarríkjum sem tekið hafa að sér skuldbindingar samkvæmt Kyoto, til dæmis í austantjaldsríkum og víðar. Þetta gera menn í tölu- vert miklu mæli.“ Pétur segir í raun ekki skipta máli fyrir umhverfið hvort dregið verði úr útstreymi með því að binda í skógrækt hér á landi eða með bindingu í öðrum skógum eða verk- efnum í þróunarríkjum. „Ef menn vilja hér fara þessa leið þá höfum við lagt á það ríka áherslu að hér yrði reynt að hafa þær aðgerðir eins hag- kvæmar og frekast er unnt.“ Pétur bendir á að verð kolefnisheim- ilda sveiflist til og frá og því í raun erfitt að gefa sér nokkuð um framtíðarhagkvæmni þess að binda útblástur í skógum hér á landi. „Verðið á kolefnistonni í Evrópusambandinu er á milli fjórar og fimm evrur og er líklega svip- að við að ráðast í verk- efni í þróunarríkjunum. Íslensk skógrækt held ég að sé ekki endilega mjög samkeppnishæf við það.“ Pétur segir að varð- andi reglur um bindingu útblásturs þurfi að hafa hér almennar reglur sem atvinnulífið hér og í öðrum löndum gangist undir á svipuðum tíma. „Og að ekki sé þá verið að skekkja samkeppn- isstöðu innlendra fyrir- tækja gagnvart öðrum löndum.“ Hann segir að standi vilji manna til þess að opna fyrir heimildir fyrirtækja til að binda útblástur í skógum þurfi að opna fyrir að hægt sé að binda hann eftir öðrum leiðum erlendis líka. Tryggja verði að gera megi hlutina á eins hag- kvæman hátt og frek- ast sé unnt. „Á næstu áratugum verður mest aukning í útstreymi í þróunarríkjunum og þar er helst bent á Indland og Kína,“ segir Pétur. „Atvinnulífið leggur því áherslu á að leita megi hagkvæmustu leiða og þær verði ekki bundnar við Ísland. Í þessu er ekki frekar en í öðrum viðskiptum hægt að líta einangrað á eitt ríki.“ Pétur segir nýjar tillögur Evrópusambandsins gera ráð fyrir að frá 2004 til 2006 fái fyrirtæki í flugi úthlutað með- alútstreymi frá starfseminni, en alla aukningu þurfi þau að ná sér í annars staðar frá. „Það gera menn ekki með skógrækt á Íslandi. Menn ná sér þá í heimildir þar sem þær eru hag- kvæmastar og ódýrastar. Það getur verið með margvíslegum verkefnum víðs vegar um heim og inn í þá röð þarf íslensk skógrækt að raða sér,“ segir hann og bendir á að sem stendur bendi ekkert til annars en Ísland fái staðið við allar skuldbinding- ar sínar gagnvart Kyoto-bókuninni. „En hvað síðan tekur við þegar Kyoto-tímabilinu lýkur árið 2012 vita menn bara ekki. Um það á eftir að semja á alþjóðavísu og ólíklegt að það takist fyrr en 2009 eða 2010. Það eru því nokkur ár í að menn sjái hvað tekur við af þessu.“ ri í peninga máta. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér bindingu kolefnis. Samtök atvinnulífs- kt. Stjórnvöld vinna að umgjörð utan með útblásturskvóta að sinni. Gróðurhúsaáhrif jöfnuð út með skógrækt Starfsmenn Iðntæknistofnunar hafa reiknað út hversu mikinn skóg þurfi að rækta til að binda þann koltvísýr- ing sem reksturinn losar. Í nýjasta hefti Skógræktarrits Skógræktarfélags Íslands kemur fram að starfsmennirnir ætli sér að rækta skóg til að draga úr gróðurhúsaáhrifum rekstursins og að þeir geri það í kjölfar aukinnar umræðu um hlýnun veðurfars. Við útreikninginn var gengið út frá að allir 65 starfsmenn stofnunarinn- ar kæmu akandi á einkabíl til vinnu og að meðalakstur þeirra vegna vinn- unnar væri um 20 kílómetrar á dag. „Vitað er að meðalbinding koltvísýrings vegna skógræktar á Íslandi er 4,4 tonn á hektara á ári þau 90 ár sem það tekur skóginn að vaxa upp,“ segir í ritinu og er niðurstaðan því sú að rækta þyrfti rúma 18 hektara af skógi til að reka Iðntæknistofnun „án útblásturs“ í 80 til 90 ár. Á hinum Norður- löndunum eru ekki sömu möguleikar á að nýta nýskógrækt sem leið til að draga úr losun. Svíþjóð er að 70 prósentum vaxin skógi, Finnland að 80 prósentum og Noregur vaxinn skógi alls stað- ar nema í fjöllum og lítið er um láglendi. Danmörk er mjög þétt- býl og mjög þéttbær landbúnaður og þar af leiðandi mikil sam- keppni um not á því landi,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.