Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 74

Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 74
Ég er einföld manneskja og eyði tíma mínum yfir Skjá einum, drekk brennivín á virkum dögum og hangi á netinu. Ég er samt til og hugsa þótt tilvera mín sé ekki eftir- sóknarverð eða spennandi. Ég er með alveg hell- ing af skoðunum og veit ýmislegt betur en þið hin. Stjórnmálamenn- irnir sem eru alltaf að gaspra í sjónvarpinu eru fífl og fallega og fræga fólkið í Séð&heyrt og Mann- lífi eru kórónaðir fábjánar sem eiga upphaf sitt og endi á glans- pappírnum. Gervimanneskjur. Þetta veit ég vegna þess að ég er alvöru maður. Venjulegur maður sem keyrir enn á sumardekkjum, skuldar tryggingar og átti að fara með bílinn í skoðun fyrir hálfu ári. Ég veit þetta allt vegna þess að ég kaupi matinn minn í Bónus og borða fiskbollur upp úr dós. Sjálfsmynd mín er dælduð og mér líður ekki vel en samt er ég yfir þetta pakk hafinn enda er ég ekta þrátt fyrir allt. Internetið hefur sem betur fer gefið mér tækifæri til þess að tjá mig og láta í mér heyra en áður en spjallrásirnar þar opnuðu var ég að springa af því ég þurfti að byrgja allar mínar meiningar innra með mér. Málefnin.com breyttu á sínum tíma lífi mínu og þar hef ég fengið útrás í nokkur ár. Þrasað við fólk á mínu plani og látið ráðamenn kenna á písknum mínum. Nú er þetta ball búið vegna þess að allir nafnlausu vinir mínir þarna eru búnir að stofna Mogga- blogg og tjá sig nú undir eigin nafni og jafnvel mynd og fá meiri athygli en ég þoli. Mér finnst ég ekki nógu klár til að stofna Mogga- blogg. Ekki enn. Ég hef samt sem betur fer fund- ið mér enn betra athvarf á Barna- land.is. Þar hefur safnast saman fólk sem er verr statt andlega en ég og slúðrar um fallega og fræga fólkið. Ég þekki samt enga fræga en er búinn að vera duglegur að búa til sögur sem hitt liðið étur upp og finnst ég vera ógeðslega vel tengdur. Þarna er ég kóngur í ríki mínu og samt á ég ekki einu sinni börn og hef aldrei skipt á kúkableiu. E N N E M M / S IA / N M 2 5 5 3 8 Bónus-vinningur 27 milljónir Alltaf á mi›vikudögum! lotto.is Vertu me› fyrir kl.17. í dag 80 50 130 1. vinningur Bónuspotturinn nálgast fla› a› ver›a sá stærsti frá upphafi. milljónir Potturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 80 milljónir og bónusvinningurinn í 27 milljónir sem er að nálgast það að verða sá stærsti frá upphafi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.