Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 78
Kate Middleton, kærasta
Vilhjálms prins til fjögurra
ára, gæti verið bjargvætt-
ur Buckingham-hallar en
bresku fjölmiðlarnir kalla
hana „hina nýju prinsessu
fólksins“.
Breskir fjölmiðlar hafa að undan-
förnu líkt Kate við hina elskuðu
móður Vilhjálms, Díönu prins-
essu. Sjálf segist Kate ekki gefa
mikið fyrir þann samanburð sem
er þó óhjákvæmilegur. Vefútgáfa
Guardian skautaði yfir sviðið og
bar saman fyrstu fréttirnar af
Díönu og nú þá umfjöllun sem
Kate hefur mátt þola. Í fyrstu
virðast þær keimlíkar en að mati
Gurdian virðist Kate líklegri til
að lifa af glímuna við draugana í
Buckingham.
Meginmunurinn á Díönu og
Kate liggur í mönnunum sem
komu þeim í kastljós fjölmiðla.
Samband Kate og Vilhjálms er
talið byggt á vináttu og virðist
hafa verið ást við fyrstu sýn. Vil-
hjálmur fær ekki þá konunglegu
meðferð sem hann er vanur heima
fyrir hjá kærustu sinni því Kate
hefur sést segja honum til synd-
anna og sagði í gamni að það væri
Vilhjálmur sem væri sá heppni.
Slík rómantík var ansi fjarlægur
hlutur hjá Karli og Díönu á sínum
tíma en til gamans má geta að
hann bað hennar á heimili Camillu
Parker-Bowles, núverandi eigin-
konu sinnar. Þá höfðu fjölmiðlar
birt lista yfir þær þrjátíu konur
sem komu til greina fyrir næsta
konung Bretlands, þeirra á meðal
var systir Díönu.
Ævintýrið fagra um saklausu
stúlkuna og kvennabósann frá
Buckingham er ekki sveipað jafn-
miklum dýrðarljóma og margir
kynnu að halda. Fjölda ástkvenna
Karls hafði verið hafnað á þeim
forsendum að þær væru ekki
hreinar meyjar. Slúðurblöðin
reyndu allt hvað þau gátu til að
reyna að finna eitthvað krassandi
um ástarlíf Díönu en höfðu ekki
erindi sem erfiði. Minna er vitað
um samlíf Kate með öðrum karl-
mönnum en breska blaðið Specta-
tor hélt því fram fullum fetum að
Kate væri eins óspjölluð og verð-
andi drottningu sæmdi. Og þar
liggja vegir Kate og Díönu saman
á ný; baráttan við paparazzi-ljós-
myndaranna sem bíða á hverju
götuhorni og fjölmiðla sem leggja
sig í líma við að grafa upp eitthvað
„óheppilegt“ úr fortíðinni. Karl
Bretaprins hefur séð sig neyddan
til að taka í taumana og biðlaði
nýverið til fjölmiðla um að þeir
sýndu Kate Middleton meira næði
en Díönu. Karl vonast vafalítið til
þess að þurfa aldrei aftur að heyra
eitthvað í líkingu við lýsingu
Díönu prinsessu á hirðlífinu
og fjölmiðlum. „Þetta er
farið úr böndunum. Ég finn
miklu meira fyrir einveru
heldur en vanlíðan,“ sagði
Díana, buguð af kastljós-
inu.
Þegar öllu er á botn-
inn hvolft binda Bret-
ar miklar vonir við
Kate sem arftaka
Díönu, manneskju
sem hirðina hefur
vantað og þjóðin
hefur saknað í ára-
tug.
Gamanleikarinn Chevy Chase fór
í meðferð á níunda áratugnum
vegna fíkn,ar í verkjalyf. Fór hann
í meðferð á Betty Ford meðferðar-
heimilið eftir að hafa lesið um að
Betty, eiginkona Bandaríkjafor-
setans fyrrverandi Geralds Ford,
hefði farið í meðferð vegna áfeng-
issýki.
„Ef það hefði ekki verið vegna
hugrekkis hennar, að viðurkenna
áfengisvandamál sitt, hefði ég
aldrei fengið þá hjálp sem ég
þurfti,“ sagði Chase.
Chase fór í
meðferð
Leikstjórinn M. Night Shyamalan
ætlar að gera kvikmynd byggða á
hinni vinsælu teiknimyndaseríu
Avatar: The Last Airbender.
Þættirnir eru undir sterkum
áhrifum frá asískri list, goðafræði
og hinum ýmsu slagsmálategund-
um. Hafa þeir notið vinsælda hjá
eldra fólki sem vanalega horfir á
teiknimyndir á Nicelodeon-krakk-
astöðinni í Bandaríkjunum.
Shyamalan mun skrifa handrit-
ið, leikstýra og framleiða myndina
og vonast menn til að úr verði
þriggja mynda sería.
Þetta verður fyrsta myndin í
leikstjórn Shyamalan sem er ekki
byggð á hans eigin hugmynd. Síð-
asta barnamynd hans var Stuart
Little þar sem hann var annar af
handritshöfundunum.
Leikstýrir Avatar
Nikki Bacharach, dóttir lagahöf-
undarins Burts Bacharach og leik-
konunnar Angie Dickinson, er látin.
Hin fertuga Nikki, sem var eina
barn þeirra, þjáðist af Asperger
heilkenninu. Hún lést á heimili
sínu í Kaliforníu.
Burt Bacharach var kvæntur
Dickinson á árunum 1965 til 1981.
Hann á þrjú önnur börn úr fyrra
hjónabandi. Á meðal þekktustu
laga hans eru Raindrops Keep
Falling on My Head og What the
World Needs Now is Love.
Framdi sjálfsvíg
Katrín Edda Svansdóttir
- sölumaður í þjónustuveri RVR
V
62
22
B
Skrifstofuvörur
á janúartilboði
Bréfabindi A4,
5cm og 8cm kjölur.
148kr.
Mopak ljósritunarpappír,
5x500 blöð í ks.
1.240kr. ks.
Á tilboði
í janúar 2007
Bréfabindi, ljósritunar-pappír, merkipennar,
töflutússar og
veggklukka
Merkipennar,
898kr. pk.
bláir, svartir, rauðir
og grænir, 12 stk í pk.
Við minnum ríkisstofnanir og sveitarfélög á eftirtalda rammasamninga:
RK 02.15: Ritföng og skrifstofuvörur. RK 02.01: Ljósritunarpappír.