Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 80
“Köld slóð er afbrags
skemmtun, góð og
spennandi sakamála-
saga. Vel gert.”
D.Ö.J. Kvikmyndir.com
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 6
TENACIOUS D kl. 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 8 B.I. 14 ÁRA
MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 5.50 B.I. 12 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3.45 og 5.50
ERAGON kl. 3.30 og 5.45 B.I. 10 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10.15 B.I. 14 ÁRA
BORAT kl. 10.40 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 6
TENACIOUS D kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
ERAGON kl. 6 B.I. 10 ÁRA
Frábær ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna!
Stórkostleg ævintýramynd
byggð á magnaðri metsölubók
Þegar myrkrið skellur á...
hefst ævintýrið!
Ath: Ekkert hlé á myndum Græna ljóssins.
20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti frá Kaupþingi
Toppmyndin á Íslandi í dag!
“Stórkostlega skemmtilegur
og hjartnæmur farsi sem
sendir áhorfendur brosandi
út úr salnum”
M.H.G. - Fréttablaðið
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Hljómsveitirnar R.E.M., Van
Halen, The Ronettes, Grandmast-
er Flash and the Furious Five og
söngkonan Patti Smith verða inn-
vígð inn í Frægðarhöll rokksins í
New York hinn 12. mars.
Sex hundruð manns úr tónlist-
arbransanum sáu um valið. Til að
eiga möguleika á að komast í
Frægðarhöllina þurftu listamenn-
irnir að hafa gefið út sína fyrstu
smáskífu eða plötu fyrir að
minnsta kosti 25 árum.
„R.E.M. og sérstaklega ég sjálf-
ur eigum mjög erfitt með að horfa
til baka,“ sagði söngvarinn
Michael Stipe. „Við sem hljóm-
sveit lítum stöðugt fram á við og
þess vegna er það frábært að ein-
hver, sérstaklega þó Frægðarhöll
rokksins, horfi til baka og kunni
að meta það sem við höfum gert.
Það er mikill heiður að þeir skuli
hafa hugsað til okkar,“ sagði
hann.
R.E.M. vakti mikla athygli með
sinni fyrstu plötu, Murmur, árið
1983 þar sem sérstæður stíllinn
var áberandi. Í framhaldinu varð
sveitin ein sú vinsælasta í heimi
með lögum á borð við Losing My
Relegion og Everybody Hurts.
Stipe segir að vinkona sín, Patti
Smith, sem hélt tónleika hér á
landi í fyrra, hafi hringt í sig og
óskað sér til hamingju. Sagðist
hann hafa ákveðið að hefja tónlist-
arferil eftir að hann heyrði tónlist
Smith fyrst á áttunda áratugnum.
„Það var frábært að geta óskað
henni til hamingju á móti.“
R.E.M., Van Halen
og Patti Smith valin
„Ég er afar sáttur,“ segir íþrótta-
fréttamaðurinn knái, Valtýr Björn
Valtýsson, en hann hefur verið
ráðinn til útvarpssviðs 365 miðla
og mun útvarpsmaðurinn stjórna
íþróttaþætti á X-inu 977. „Hann
verður með svipuðum hætti og
Mín skoðun á XFM en eitthvað
breyttur þó,“ segir Valtýr sem
kvaðst glaður yfir því að vera
kominn aftur á fornar slóðir en
hann var lengi á mála hjá Bylgj-
unni sem er í sama húsi og rokk-
hundarnir á X-inu.
Valtýr var einn þeirra fjöl-
mörgu sem neyddust til að taka
sitt hafurtask þegar útvarpsstöðv-
unum XFM og Kiss FM var lokað
um áramótin. Hann telur sig vera
kominn á réttan stað enda sé stutt
yfir til sjónvarpsstöðvarinnar
Sýnar sem nýlega eignaðist
sýningarréttinn á enska bolt-
anum en Valtýr hefur und-
anfarin ár lýst leikjum
úrvalsdeildarinnar á Skjás-
port og viðurkennir að þessi
staðreynd hafi óneitanlega
kitlað. „Meginástæðan er samt sú
að við heyrumst út um allt land og
það skiptir mig miklu máli,“ segir
Valtýr.
Valtýr skiptir um lið
Orðrómur er uppi um að hljóm-
sveitin The Police ætli að koma
saman á nýjan leik á þessu ári með
tónleikahaldi í Bretlandi og Banda-
ríkjunum.
Á þessu ári verða þrjátíu ár
liðin frá því að eitt vinsælasta lag
sveitarinnar, Roxanne, kom út.
Var það jafnframt fyrsta lagið
sem vakti athygli á The Police í
Bandaríkjunum. Hljómsveitin
hætti störfum árið 1986.
„Við getum staðfest að það
verður eitthvað sérstakt gert í til-
efni af þessu en það er óákveðið
hversu mikið hljómsveitin verður
viðloðandi verkefnið,“ sagði á
heimasíðu söngvarans Sting.
Til stendur að gefa út DVD-
mynddisk með The Police á árinu
auk þess sem safnbox með öllum
hljóðversupptökum sveitarinnar
og sjaldheyrðu efni er væntan-
legt.
The Police, sem hætti störfum
árið 1986, hefur tvisvar komið
fram síðan þá. Fyrst var það í
brúðkaupi Sting árið 1992 og síðan
fyrir þremur árum þegar sveitin
var innvígð í frægðarhöll rokks-
ins.
Kemur The Police
saman aftur?
Bandaríski teiknarinn Iwao Taka-
moto, sem teiknaði hundana Scoo-
by-Doo og Muttley, er látinn 81 árs
gamall. Hann teiknaði ýmsar per-
sónur úr þáttunum The Flinstones
og The Jetsons þegar hann starf-
aði fyrir fyrirtækið Hanna-Bar-
bera.
Takamoto átti einnig þátt í
hönnun kvikmynda á borð við
Pétur Pan, 101 Dalmatíuhundur og
Öskubuska. Spannaði starfsferill
hans rúma sex áratugi.
Teiknaði
Scooby-Doo
Morrissey, fyrrum söngvari The
Smiths, verður hugsanlega full-
trúi Bretlands í Eurovision-
söngvakeppninni í ár.
Morrissey lýsti fyrst yfir áhuga
á að taka þátt í
keppninni
eftir að lag
Bretlands,
Teenage Life,
lenti í fimmta
neðsta sæti á síðasta ári. „Ég fyllt-
ist hryllingi en var samt ekki undr-
andi á því að lagið skyldi ekki ná
langt,“ sagði Morrissey. „Hvers
vegna báðu þau mig ekki um að
taka þátt?“
Breska ríkisútvarpið, BBC,
virðist hafa tekið Morrissey á orð-
inu því það hefur staðfest að það
eigi í viðræðum við hann um að
semja og hugsanlega flytja lagið í
ár.
Morrissey, sem er 47 ára, sló í
gegn með hljómsveitinni The
Smiths á níunda áratugnum. Eftir
að sveitin hætti árið 1987 hóf hann
sólóferil sem hefur heppnast vel.
Alls hefur hann komið tíu smá-
skífum á topp tíu-listann í Bret-
landi.
Morrissey hefur áður verið
orðaður við Eurovision-keppnina,
eða þegar hann starfaði með fyrsta
sigurvegara Bretlands í keppn-
inni, Sandie Shaw, á níunda ára-
tugnum. Til þess að komast í
úrslitin þarf kappinn þó fyrst að
komast í gegnum undankeppnina.
Á meðal þeirra sem hafa dottið úr
keppni þar í gegnum tíðina eru
Antony Costa, fyrrum söngvari
strákabandsins Blue, og ofurfyrir-
sætan Jordan.
Næsta Eurovision-keppni verð-
ur haldin í Finnlandi í maí, heima-
landi síðustu sigurvegara, Lordi.
Í viðræðum vegna Eurovision