Fréttablaðið - 10.01.2007, Side 81

Fréttablaðið - 10.01.2007, Side 81
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI Háskólabíó KÖLD SLÓÐ kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 THE CHILDREN OF MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 6 - 9 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal. kl. 5:40 Leyfð DÉJÁ VU kl. THE DEPARTED kl. 7:40 - 10:30 B.i. 16 BOSS OF IT ALL kl. 5:30 B.i.7 EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 8 - 10:10 Leyfð FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 B.i. 16 SAW 3 kl 10:30 B.i. 16 STRANGER THAN FICTION kl. 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð THE CHILDREN OF MEN kl. 10:20 B.i.16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 5:40 Leyfð HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 5:40 - 8 Leyfð DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i.12 THE HOLIDAY kl. 8 B.i. 7 EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð STRANGER THAN FICTION kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:30 Leyfð STRANGER THAN FICT.. VIP kl. 8 - 10:30 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i.16 THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal. kl. 3:20 - 5:40 Leyfð FRÁIR FÆTUR VIP kl. 3:20 - 5:40 HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 3:20 - 5:40 Leyfð DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i.12 SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 3:20 Leyfð Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood. the Holiday Cameron Diaz • Kate Winslet Jude Law • Jack Black Frábær rómantísk gamanmynd FRÁ FRAMLEIÐENDUM WEDDING CRASHERS GEGGJUÐ GRÍNMYND ekki missa af mest slÁandi og einni Áhrifamestu kvikmynd Ársins. HJ. MBL RÁS 2 FRÁBÆRLEGA FYNDIN OG SNIÐUG GAMANMYND... ...SEM KEMUR ÖLLUM Í GOTT SKAP Á NÝJU ÁRI STRANGER THAN FICTION kl 8 Leyfð HAPPY FEET M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð FLAGS OF OUR FATHERS kl 5:40 - 8 B.i.16 Skráðu þig á SAMbio.is Ekki láta spaugileg „90´s“ kvöld vinar míns Curvers plata ykkur. Þó svo að nostalgía yngri kyn- slóða snúist yfirleitt um það að gera því hátt undir höfði sem miður fór í tónlist á síðasta ára- tug og þau kvöld séu full af Aqua, 2Unlimited og öðrum viðbjóði sem fáir myndu leggja á sig að hlusta á edrú var tíundi áratug- urinn líka fullur af frábærri tón- list. Á þeim árum gátu líka krafta- verkin enn gerst í tónlistarbrans- anum. Þvengmjóir nördar með þykk gleraugu sem kunnu lítið að syngja og höfðu útlitið svo sannarlega ekki með sér gátu þá orðið poppstjörnur. Pulp var sönnun þess að ef þú gast samið sæmilega smeðjuleg popplög var nóg að vera orðheppinn og frum- legur til þess að slá í gegn. Gæti einhver eins og Jarvis Cocker orðið stjarna á nútíma popp- markaði? Yrði honum ekki bara alltaf ýtt til hliðar af brjóstaskor- um og vel snyrtum glaumgosum? Svo látin dúsa í skugga „önder- gránd”-stöðva, hvað sem það nú þýðir!? Það hefur nú ekki farið mikið fyrir Pulp síðustu ár, og því kannski ekkert undarlegt að við höfum ekki orðið mikið vör við útgáfu fyrstu sólóplötu for- sprakkans skemmtilega. Það eru nú ekki margar stjörnur sem hafa þolinmæði til þess að bíða með útgáfu fyrstu sólóplötunnar til 43 ára aldurs, en Jarvis virðist ekkert hafa verið að flýta sér. Hann er stórkostlegur textahöf- undur, þannig er það bara. Honum bregst heldur ekkert bogalistin á þessari plötu sinni. Textar á borð við I Will Kill Again, sem inniheldur afbragðs lýsingu á nútíma einverumanni, sýna vel að hann getur ennþá kreist upp fersk yrkisefni. Í öðru lagi heldur Jarvis því svo fram að spikfeit börn hafi rænt lífi hans. Við skulum vona að hann sé nú ekki að syngja um eigin afkvæmi. Tónlistin gæti þess vegna verið flutt af Pulp. Jarvis gerir engar tilraunir til þess að finna sér nýjan hljóðheim á sólóferlin- um. Þar finnst mér hann gera svolítið lítið úr hljómsveitinni. Í þessu felst stærsti galli plötunn- ar. Vegna þess að lögin hljóma eins og Pulp, er ekkert annað hægt en að miða þau við þá sveit. Þá skynjar maður það fljótlega að nýju lögin eru hvergi jafn fersk og grípandi og þau gömlu voru, þó þau vinni vissulega á við ítrekaða hlustun. Eftir stendur að fyrsta sólóplata Jarvis hljóm- ar örlítið eins og hún sé full af afgangslögum frá Pulp. Samt ótrúlega gott að heyra í kauða aftur. Heyr, heyr, lifi Jarvis. Aðalnörd 10. ára- tugarins snýr aftur Hljómsveitin Ampop er í viðtali í nýjasta tölublaði erótíska tímaritsins Play- girl. Þar er sveitin sögð ein af þeim sem eru líklegar til árangurs á árinu 2007 í grein sem ber yfirskriftina „Northern Exposure“. „Við þóttum tilvalið efni í þetta blað,“ segir Kjartan Friðrik Ólafs- son, hljómborðsleikari Ampop, í léttum dúr. „Við kynntumst stelpu á Airwaves-hátíðinni og hún vildi endilega að við töluðum eitthvað við Playgirl. Við erum samt dannaðir þar eins og alls staðar annars staðar en ég man samt ekki eftir því að annar Íslendingur hafi birst í Playgirl. Þetta er nú bara umfjöllun um bandið og ekki verið að gera mikið úr kynþokka okkar, nema kannski Bigga söngvara. Þar er verið að leggja merkingu í gælu- nafn hans, Biggi,“ segir Kjartan og hlær. „Þetta er meira hugsað sem kynning og þarna er verið að fjalla um skandinavísk bönd.“ Ampop mun halda ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mán- aðamót. Hinn 30. janúar spilar sveitin á Cinespace í Hollywood og kvöldið eftir verður hún á Silverlake Lounge í Los Angeles. Fimmta og sjötta febrúar spilar Ampop síðan á TBA og Pianos í New York. „Markmiðið með þessari ferð til Bandaríkjanna er að kynna þessar fínu plötur sem við eigum. Vonandi finnum við ein- hvern farveg fyrir okkur þarna,“ segir Kjartan. Ampop spilaði síðast í Bandaríkj- unum árið 2005 þegar hún tróð upp á South by Southwest-hátíðinni í Texas. Eftir það hélt sveitin tón- leika í Kanada en kom við í milli- tíðinni í New York til að spila á Pianos. „Við fengum þokkalega fínar viðtökur en giggið á Pianos var reyndar ekkert sérstakt,“ segir Kjartan um síðustu ferð. „Ég vona að það verði skemmtilegra í þetta skiptið.“ Hvað varðar Bret- landsmarkað segir Kjartan að hlutirnir séu í biðstöðu þar en stefnan sé tekin á að fara þangað út til að kynna nýjustu plötu Ampop, Sail to the Moon, sem kom út fyrir síðustu jól og fékk góðar viðtökur. Góða skemmtun Þeir sem greiða með VISA kreditkorti fá tvo miða á verði eins í SAMbíóin og Háskólabíó á miðvikudögum í janúar Munið VISA tilboðið á miðvikudögum í janúar GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM, EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG EKKI Í VIP Kynnið ykkur myndir sýningar tíma og fleira á SAMbio.is * *

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.