Fréttablaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 78
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
APOCALYPTO kl. 3, 6 og 9 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3
CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
ERAGON kl. 3 B.I. 10 ÁRA
BORAT kl. 10.15 B.I. 12 ÁRA
APOCALYPTO kl. 5, 8 og 10.55 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.55
THE BLACK DAHLIA kl. 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3.40 og 8 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 1.30 og 3.40
ERAGON kl. 1.20, 3.30 og 5.45 B.I. 10 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10.15 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2
MÝRIN kl. 2 og 5.50 B.I. 12 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 1.30
APOCALYPTO kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA
TENACIOUS D kl. 10 B.I. 12 ÁRA
ERAGON kl. 4 og 6 B.I. 10 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 4
Ath: Ekkert hlé á myndum Græna ljóssins.
Toppmyndin á Íslandi í dag!
“Stórkostlega skemmtilegur og hjartnæmur
farsi sem sendir áhorfendur brosandi
út úr salnum” M.H.G. - Fréttablaðið
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Gagnrýni. baggalútur.is
20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti frá Kaupþingi
FRÁ LEIKSTJÓRA SCARFACE OG THE UNTOUCHABLES
BYGGÐ Á SÖGU EFTIR HÖFUND L.A.CONFIDENTIAL
BEINT Á TOPPINN Í USA!
Á hverju ári í janúar rekst maður
á plötur eins og þessa, sem er
stórkostleg en var samt af ein-
hverjum ástæðum hvergi að finna
á árslistum gagnrýnenda.
Það þýðir engan veginn að
platan sé eitthvað síðri en þær
sem þar voru, heldur er magn
útgefinna titla á hverju ári bara
orðið svo gífurlegt að jafnvel þau
okkar sem kafa djúpt eftir nýrri
tónlist neyðumst til að sætta
okkur við að sjá aðeins topp ísjak-
ans hvert ár.
Þessi ungi maður, Patrick Wat-
son, er frá Kanada og heimsótti
okkur nú síðast á Iceland Airwa-
ves-hátíðina. Hann spilaði meira
að segja með mér á tónleikum í 12
tónum á föstudeginum, en samt
náði ég einhvern veginn að missa
algjörlega af honum. Alveg magn-
að hvað maður getur verið blind-
ur fyrir umhverfi sínu þegar
maður er með hausinn upp í eigin
rassgati.
Ímyndið ykkur bara að vísinda-
menn gætu blandað saman erfða-
vísum þekktra tónlistarmanna og
skapað nýjan einstakling með
hæfileika allra hinna. Patrick,
sem leikur á píanó og syngur, væri
þá eðalblanda af Tom Waits, Isaac
Brock úr Modest Mouse, Tori
Amos og Jeff Buckley. Hann hefði
erft lagasmíðahæfni Isaacs, putta
Tori, næmi Waits fyrir ævintýra-
legum útsetningum og raddbönd
Buckley. Já, ég geri mér fulla
grein fyrir því að þetta eru svaka-
legar samlíkingar, en pilturinn á
inni fyrir þeim. Hann er þó ekkert
í stöðugum raddfimleikum, eins
og hinn tilfinninganæmi Buckley,
en sýnir þó getu sína af og til eins
og í laginu frábæra Luscious Life.
Annað frábært lag á plötunni heit-
ir The Storm, myndmál þess og
útsetning er svo sterk að það er
ómögulegt að hlusta á það án þess
að bíósýningarvélin í hausnum
fari af stað.
Eins og oft vill verða með plöt-
ur snillinga, eru þær nokkuð
þungur biti að kyngja í fyrstu.
Þannig er þetta vissulega
þunglamaleg plata á köflum og ég
get vel ímyndað mér að fjöldi
fólks eigi eftir að gefast upp áður
en platan getur haft teljandi áhrif
á þá. Þetta er plata sem maður
verður að tyggja svolítið vel áður
en hægt er að renna henni niður í
maga. Hér er of mikið af upplýs-
ingum, og heilinn þarf einfaldlega
tíma til þess að vinna almennilega
úr þeim.
En ef þið gefið þessu tíma, þá
eignist þið plötu í safnið sem
ykkur á eftir að þykja vænt um til
æviloka, og jafnvel lengur.
Patrick Amos Buckley Waits?
Þegar hann heimsótti okkur á Air-
waves hafði enginn hugmynd um
hver hann var, en Patrick Watson
er undrabarn og þessi nýja plata
hans meistarastykki.
Sacha Baron Cohen, sem hefur
slegið rækilega í gegn sem Borat
frá Kasakstan, segir það hafa
tekið sinn toll að leika sjónvarps-
manninn sérstæða.
Sérstaklega hafi það verið erf-
itt þá mánuði sem tökur á mynd-
inni stóðu yfir því þá þurfti hann
stanslaust að vera í karakter.
Þegar kvikmyndin var frumsýnd
þurfti hann síðan að halda hlut-
verkinu áfram í nokkra mánuði í
viðbót í kynningarskyni.
Við tökurnar neitaði hann
meira að segja að þvo gráu jakka-
fötin sín og að nota svitalyktar-
eyði til að auka á raunveruleika
persónunnar. „Þetta var mjög erf-
itt,“ sagði hinn 35 ára Cohen. „Ég
varð að vera svona dag og nótt,
vegna þess að ef minnsta smáat-
riði hefði breyst hjá mér hefði ég
gert þá tortryggna. Meira að
segja þegar ég fór á klósettið
þurfti ég að fara þangað sem
Borat.“
Erfitt að leika Borat
Rokkgotinn Marylin Manson er
víst búinn að næla sér í nýja kær-
ustu, hina nítján ára gömlu Evan
Rachel Wood en sjálfur á Manson
tvö ár í fertugt. Hann skildi við
eiginkonu sína, Ditu Von Teese, í
desember en hjartaknúsarinn var
ekki lengi að finna ástina á ný.
Að sögn var eiginkonan fyrr-
verandi orðin þreytt á gjálífi
bónda síns auk þess sem henni
fannst hann og Wood orðin of náin.
„Dita er miður sín, hún átti ekki
von á þessu,“ segir vinur hjón-
anna.
Evan Rachel Wood er leikkona
og sló í gegn fyrir fáum árum í
myndinni Thirteen þar sem hún
lék á móti Holly Hunter. Hún og
Manson hafa að sögn verið vinir
lengi. Á vefsíðu sinni segist Man-
son hafa kynnst Wood þegar hann
bað hana að leika í hryllingsmynd-
inni Phantasmagoria: The Visions
of Lewis Carroll.
Manson kominn
með nýja kærustu