Fréttablaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 16
Fyrsti píramídasvikarinn til Bandaríkjanna
„Ég varð ekki gamall
viljandi, það gerðist bara.
Ef þú ert heppinn kemur
það kannski líka fyrir þig.“
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir
Þorsteinn V. Kristjánsson
fyrrum bóndi að Uppsölum Svarfaðardal,
sem lést þann 7. janúar verður jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 17. janúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Vallakirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda
Kristján Þorsteinsson Sæunn Guðmundsdóttir
Freygarður Þorsteinsson Elín S. Guðmundsdóttir
Sigurður Einarsson Birna Jóhannsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Sæunn Þuríður Gísladóttir
til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 15. janúar
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Margrét Kjartansdóttir Vigfús Sólberg Vigfússon
Gísli Kjartansson Júlíana Aradóttir
Svava Kjartansdóttir
Ingibjörg Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma
Ásgerður Alda
Guðmundsdóttir
Árskógum 6, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 6. janúar verður jarðsungin frá
Seljakirkju mánudaginn 15. janúar kl. 13.00.
Erla Linda Benediktsdóttir Friðbjörn Sveinbjörnsson
Halldór Ingólfur Pálsson
Sigurlaug Kristín Pálsdóttir
Lára Margrét Pálsdóttir Svanur Tómasson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær bróðir okkar og frændi
Kristján Kristjánsson
(Danni)
lést á Elliheimilinu Grund 12. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna
Kristján Helgason
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
„Ég er á leið til Englands í góðum
félagsskap,“ segir Jakob Þór Einars-
son leikari sem er fimmtugur í dag.
Jakob Þór var að stíga upp í leigubíl á
leið í Leifsstöð þegar Fréttablaðið
truflaði hann. „Ég, Friðrik Sturluson
bassaleikari og Sigurður Sigurjónsson
leikari erum á leið til Manchester
undir því yfirskini að við séum á leið í
leikhús. En svo vill til að Manchester
United tekur á móti Aston Villa á sama
tíma og okkur fannst kjörið að skella
okkur á völlinn. Þannig að þessi menn-
ingarferð er kannski bara dulbúin fót-
boltabulluferð,“ segir hann og hlær.
Jakob Þór kveðst vera mikið afmæl-
isbarn, þó ekki jafn forfallið og eigin-
kona sín, Valgerður Janusdóttir. „Hún
veit ekkert skemmtilegra en að eiga
afmæli og er sjálf nýorðin fimmtug og
hélt upp á það með pomp og prakt en
ég er ekki jafn veisluglaður. Það er því
kannski ljótt að viðurkenna að hún
verður skilin eftir á Íslandi en ég hef
það mér til afsökunar að hún hvatti
mig til þess.“
Jakob Þór segir að af mörgum
skemmtilegum afmælisdögum standi
sá fertugasti upp úr. „Við konan héld-
um þá upp á sameiginlegt aldarafmæli.
Saman vorum við 80 ára og áttum auk
þess 20 ára brúðkaupsafmæli sem
fyllti hund-raðið. Samkvæmt þeim
mælikvarða eigum við 130 ára afmæli
í ár en við ákváðum að gera ekki jafn
mikið úr því og fyrir tíu árum.“
Jakob Þór er meðal annars þekktur
fyrir að hafa leikið aðalhlutverkin í
kvikmyndunum Óðal feðranna og
Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunn-
laugsson en fyrir nokkrum árum söðl-
aði hann um og sneri sér að hljóðsetn-
ingu. „Ég gríp alltaf í að leika þegar
svo ber undir,“ segir Jakob Þór og
kveðst boðinn og búinn til að leika
aftur fyrir Hrafn ef til þess kæmi.
„Það væri hægt að gera Hrafninn
flýgur II, og fjalla um þegar Gestur
snýr aftur á miðjum aldri,“ segir hann
og skellir upp úr.
AFMÆLI
Hörður Wium Vilhjálmsson
lést að Kumbaravogi hinn 14. desember síðastliðinn.
Innilegt þakklæti til starfsfólksins fyrir góða umönnun
og hlýlegt viðmót. Jarðarförin hefur farið fram.
Lóa Henný Ólsen og fjölskylda.