Fréttablaðið - 14.01.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 14.01.2007, Síða 16
Fyrsti píramídasvikarinn til Bandaríkjanna „Ég varð ekki gamall viljandi, það gerðist bara. Ef þú ert heppinn kemur það kannski líka fyrir þig.“ Ástkær faðir okkar og tengdafaðir Þorsteinn V. Kristjánsson fyrrum bóndi að Uppsölum Svarfaðardal, sem lést þann 7. janúar verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 17. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Vallakirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda Kristján Þorsteinsson Sæunn Guðmundsdóttir Freygarður Þorsteinsson Elín S. Guðmundsdóttir Sigurður Einarsson Birna Jóhannsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sæunn Þuríður Gísladóttir til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 15. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. Margrét Kjartansdóttir Vigfús Sólberg Vigfússon Gísli Kjartansson Júlíana Aradóttir Svava Kjartansdóttir Ingibjörg Kjartansdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Ásgerður Alda Guðmundsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, sem lést laugardaginn 6. janúar verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 15. janúar kl. 13.00. Erla Linda Benediktsdóttir Friðbjörn Sveinbjörnsson Halldór Ingólfur Pálsson Sigurlaug Kristín Pálsdóttir Lára Margrét Pálsdóttir Svanur Tómasson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær bróðir okkar og frændi Kristján Kristjánsson (Danni) lést á Elliheimilinu Grund 12. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna Kristján Helgason Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson „Ég er á leið til Englands í góðum félagsskap,“ segir Jakob Þór Einars- son leikari sem er fimmtugur í dag. Jakob Þór var að stíga upp í leigubíl á leið í Leifsstöð þegar Fréttablaðið truflaði hann. „Ég, Friðrik Sturluson bassaleikari og Sigurður Sigurjónsson leikari erum á leið til Manchester undir því yfirskini að við séum á leið í leikhús. En svo vill til að Manchester United tekur á móti Aston Villa á sama tíma og okkur fannst kjörið að skella okkur á völlinn. Þannig að þessi menn- ingarferð er kannski bara dulbúin fót- boltabulluferð,“ segir hann og hlær. Jakob Þór kveðst vera mikið afmæl- isbarn, þó ekki jafn forfallið og eigin- kona sín, Valgerður Janusdóttir. „Hún veit ekkert skemmtilegra en að eiga afmæli og er sjálf nýorðin fimmtug og hélt upp á það með pomp og prakt en ég er ekki jafn veisluglaður. Það er því kannski ljótt að viðurkenna að hún verður skilin eftir á Íslandi en ég hef það mér til afsökunar að hún hvatti mig til þess.“ Jakob Þór segir að af mörgum skemmtilegum afmælisdögum standi sá fertugasti upp úr. „Við konan héld- um þá upp á sameiginlegt aldarafmæli. Saman vorum við 80 ára og áttum auk þess 20 ára brúðkaupsafmæli sem fyllti hund-raðið. Samkvæmt þeim mælikvarða eigum við 130 ára afmæli í ár en við ákváðum að gera ekki jafn mikið úr því og fyrir tíu árum.“ Jakob Þór er meðal annars þekktur fyrir að hafa leikið aðalhlutverkin í kvikmyndunum Óðal feðranna og Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunn- laugsson en fyrir nokkrum árum söðl- aði hann um og sneri sér að hljóðsetn- ingu. „Ég gríp alltaf í að leika þegar svo ber undir,“ segir Jakob Þór og kveðst boðinn og búinn til að leika aftur fyrir Hrafn ef til þess kæmi. „Það væri hægt að gera Hrafninn flýgur II, og fjalla um þegar Gestur snýr aftur á miðjum aldri,“ segir hann og skellir upp úr. AFMÆLI Hörður Wium Vilhjálmsson lést að Kumbaravogi hinn 14. desember síðastliðinn. Innilegt þakklæti til starfsfólksins fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Jarðarförin hefur farið fram. Lóa Henný Ólsen og fjölskylda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.